Ekkert traust á óöld ESB-umsóknar

Flokkspólitískir hagsmunir Samfylkingar og sviksemi Vinstri grænna urðu til þess að Ísland sendi inn umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Með umsókninni var kveikt ófriðarbál innanlands annars vegar og hins vegar alið á vantrú á íslensku efnahagskerfi erlendis.

Ráðherrar Samfylkingar, Árni Páll fremstur í flokki, tala reglulegan niður krónuna og finna henni allt til foráttu. Þegar stjórnvöld hafa ekki trú á gjaldmiðli eigin þjóðar er viðbúið að aðrir líti með vanþóknun á myntina.

Til skapa traust á efnahagskerfinu verður stefna stjórnvalda að vera í samræmi við langtímahagsmuni þjóðarinnar og í tengslum við þjóðarviljann. Ríkisstjórn Jóhönnu Sig. stendur undir hvorugri forsendunni. Traust mun ekki vaxa á íslensku samfélagi fyrr en ríkisstjórn Jóhönnu Sig. víkur.


mbl.is Ísland skortir traust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Mig langar einnig að vekja athygli á einu. Nú á að hækka skatta enn eitt skiptið um áramótin og ætti það ekki að koma á óvart þó afar pirrandi sé það. Svo munu snilldarsamningar Vilhjálms og Gylfa fjölga gjaldþrotum og auka atvinnuleysi eins og nú er að koma á daginn.

Vegna skattahækkana ríkisins og fáránlegra kjarasamninga (sem margir vöruðu við í sumar) mun ástandið hérlendis einungis versna. Fjárfestar eru kerfisbundið fældir frá landinu með ýmsum aðgerðum (þá er ég ekki að tala um Nubo).

Fólk flýr yfirleitt sósíalískar ríkisstjórnir og í A-Evrópu á tímabili lagði fólk sig í lífshættu til að sleppa. Fólk flýr vegna þeirrar stjórnar sem nú situr þó Jóhanna og Steingrímur telji sig vera að bjarga hér öllu. Er fólk sem er úr tengslum við veruleikann ekki veikt?

Ég held að ráð væri að senda Árna Pál og Össur til Grikklands og láta þá kumpána útskýra fyrir Grikkjum hvað evran er frábær og einnig að útskýra hvers vegna ferðamannaiðnaðurinn stendur ekki með blóma þar. Nema þeir skilji ekki samhengið þar á milli?

Helgi (IP-tala skráð) 15.12.2011 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband