Samfylkingin og alþjóðastjórnmálin

Össur, Björgvin G., Árni Páll  og núna Jóhanna Sig. tóna öll sama stefið um stöðu Evrópusambandsins, samanber

Hún [Jóhanna] segist í viðtalinu vonast til þess að erfitt ástand í Evrópu vari stutt og að álfan vinni sig út úr vandanum.

Það eru engar líkur að skuldakreppa Evrópusambandsins og pólitísk vandkvæði tengd kreppunni vari í skamman tíma. Haldi evru-samstarfið á annað borð mun það taka að minnsta kosti fimm til tíu ár að koma nauðsynlegum breytingum á stofnsáttmála Evrópusambandsins. Í þeirri vegferð verða ekki með ríki eins og Bretland og Svíþjóð. Meiri líkur eru þó á að evru-samstarfið haldi ekki og þá er Evrópusambandið sjálft í uppnámi.

Ef ekki væri að trúnaðarfólk í æðstu embættum Samfylkingar ætti í hlut væri kjánaskapurinn fyndinn.


mbl.is Vandræðin í Evrópu geta haft áhrif á áhuga Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Jóhanna vonar að erfitt ástand í Evrópu vari stutt,  hvað stutt? Kanski álíka lengi og vandi okkar hefur varað í umsátrinu um land okkar??  Álfan spjarar sig,en álfarnir í Esb.,eru í bullandi vanda,ég næ bara ekki að samhryggjast.

Helga Kristjánsdóttir, 21.9.2011 kl. 22:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband