Fimmtudagur, 19. janúar 2023
Grétufræði í Davos
Örvænting hamfarasinna í loftslagsmálum eykst og samsæriskenningarnar verða stórbrotnari. Nú heitir það að olíufyrirtækin séu álíka kaldrifjuð og tóbaksframleiðendur sem í áratugi seldu vöru sína vitandi að hún ylli krabbameini.
Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, sakar olíufyrirtæki um að vita í áratugi að CO2, koltvísýringur, valdi heimshlýnun. En það er ómöguleiki. Enginn hefur sýnt fram á tölfræðilegt samhengi CO2 og hlýnunar á sambærilegan hátt og tölfræði sýnir fylgni reykinga og lungnakrabba. Almenn vitneskja er að CO2 er gróðurhúsalofttegund líkt og vatnsgufa. En að segja CO2 valda heimshlýnun er eins og að staðhæfa að súrefni orsaki krabbamein.
Antonio Guterres valdi ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos til að kynna samsæriskenninguna. Vettvangurinn er við hæfi. Í Davos eru beittustu hnífarnir í skúffunni; boða alþjóðahyggju en hrinda í framkvæmd þveröfugri stefnu sem skiptir ríkjum í verðug og óverðug. John Kerry, loftslagssendiherra Bandaríkjanna, segir hlýnunarsinna nánast yfirnáttúrulega. Hálfguðir á einkaþotum.
Kenningin um heimshlýnun er á fallandi fæti. Judith Curry, lofslagsvísindamaður, bendir á að Guterres og félagar í hamfarakórnum hafi sjálfir lækkað spár um vænta hækkun hitastigs, úr 4-5 oC í 1,5-2 oC, en hrópi samt alltaf úlfur, úlfur.
Ástæðan fyrir lækkuninni er að raunmælingar sýna að reiknilíkön hamfaraspámanna eru með innbyggða skekkju, spá meiri hita en raun er á. John Christy hefur í áratugi mælt hita lofthjúpsins. Hann segir gögnin ekki sýna fram neina yfirvofandi hamfarahlýnun.
Jordan Peterson ræddi Grétufyrirbrigðið í réttu samhengi. Peterson er sálfræðingur.
Sakar olíufyrirtæki um stóra lygi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)