Miðvikudagur, 31. ágúst 2022
Þóra: nýtt handrit á Glæpaleiti
Við erum voða hissa, er viðkvæðið núna hjá blaðamönnum RSK-miðla vegna aðildar þeirra að líkamsárás með byrlun, gagnastuldi, stafrænu kynferðisofbeldi og broti á friðhelgi einkalífs.
Þóra Arnórsdóttir segir í samtali við mbl.is að yfirheyrslan hafi verið heldur furðuleg upplifun. Það verður að minnsta kosti afar undarlegt ef meira verður úr þessu máli, segir Þóra.
Þóra á RÚV og þrír aðrir blaðamenn á Stundinni og Kjarnanum (RSK-miðlum) voru kynnt til sögunnar sem sakborningar 14. febrúar sl. Það var ekki lögreglan sem kynnti alþjóð sakborninga heldur fjölmiðlar sjálfir. Sakborningar gætu verið fleiri. Raunar er öruggt að þeir séu a.m.k. fimm.
Í viðtengdri frétt mbl.is er haft eftir Saklausu-Þóru: ,,Hún segir að hún hafi mest megins verið spurð út í hluti sem hún gæti ekki tjáð sig um, vinnu sinnar vegna."
Ha?
Þóra birti ekkert efni úr síma Páls skipstjóra á RÚV. Það gerðu Kjarninn og Stundin. Er það í starfslýsingu Þóru á RÚV að gramsa í stolnum símum en birta ekkert efni? Tekur ríkisfjölmiðillinn reglulega við þýfi og dreifir til annarra fjölmiðla?
Við erum voða hissa.
Fyrsta handrit RSK-miðla til að útskýra sakamálið var að lögreglan stundaði ofsóknir gegn fjölmiðlum. Lögreglan stendur að ,,aðför að blaðamennsku," sagði borginmannlegur Þórður Snær ritstjóri Kjarnans um miðjan febrúar. Hann taldi lögregluna á höttunum eftir heimildarmanni RSK-miðla. Viku seinna sagði Gísli Marteinn á RÚV að rannsókn lögreglu væri ,,klámhögg."
Lögreglan ofsækir blaðamenn, var sem sagt fyrsta útgáfan. Blaðamennirnir hefðu vitanlega í beinu framhaldi átt að leggja spilin á borðið, segja hvers kyns væri og útskýra aðkomu sína að málinu, bæði fyrir lögreglu og ekki síður almenningi.
En blaðamennirnir lögðu á flótta, útskýrðu ekkert og höfðuðu dómsmál til að komast undan skýrslutöku lögreglu. Ekki beittustu hnífarnir í skúffunni, glæpagengi RSK-miðla. Segja eitt en gera allt annað. Vanir að kaffæra mál í fréttaflóði útúrsnúninga og hálfsannleika.
Loksins, loksins eftir hálft ár skila Gísli, Eiríkur og Helgi og forsetaframbjóðandinn sér til lögreglu að gefa skýrslu. Augun standa á stilkum: málinu hlýtur ljúka eftir kaffispjall við lögguna.
Ef svo yrði væri refsilaust að gera líkamsárásir með byrlun, stela gögnum, stunda stafrænt kynferðisofbeldi og brjóta á friðhelgi einkalífs með þessari afsökun: ég er bara blaðamaður að gera frétt.
Í greinargerð lögreglu frá 23. febrúar sl., sem var lögð fram vegna dómsmáls Aðalsteins Kjartanssonar á Stundinni segir: ,,Lögreglan er með töluvert af símasamskiptum, tölvupóstum og annars konar samskiptum X við ákveðna fjölmiðlamenn." X er veik kona, náin Páli skipstjóra Steingrímssyni, sem var verkfæri í höndum blaðamanna við líkamsárás með byrlun og símastuldi. Blaðamenn sem notfæra sér andleg veikindi til að koma höggi á fólk eru dálagleg fyrirmynd. Í hvernig samfélagi fá slíkir fjölmiðlamenn verðlaun?
Stafrænt kynferðisofbeldi stunduðu blaðamenn RSK-miðla í hjáverkum. Eiga þeir þó að heita heilir á geðsmunum.
Sími Páls skipstjóra var afritaður, klónaður, á Efstaleiti. Afritaði síminn geymdi einnig staðsetningarforrit. Snillingarnir á Glæpaleiti skildu eftir slóð sem verður rakin í ákærum og í dómssal.
Við verðum öll voða hissa loksins, loksins þegar sannleikurinn um verðlaunablaðamennina verður tíundaður fyrir opnum tjöldum. Sennilega ekki í beinni útsendingu RÚV með Gísla Martein sem þulu.
Þóra og Aðalsteinn yfirheyrð í gær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)