Píratar fagna ofbeldi

Píratar vilja setja peninga til hælisleitenda en ekki til ellilífeyrisþega, öryrkja og í velferðarþjónustuna. Það lá fyrir. Nýtt er að Píratar eru jákvæðir gagnvart ofbeldi.

Afstöðu Pírata má finna í orðum Halldóru Mogensen þingmanns. Hún harmar ekki vaxandi ofbeldi hér á landi en er með böggum hildar að dómsmálaráðherra axli ábyrgð og fái fjármuni til að bregðast við ótíðindunum. 

Halldóra lætur sér fátt um finnast að skipulögðum glæpasamtökum vaxi fiskur um hrygg og herji á samfélag sem hingað til hefur þótt friðsamlegt. 

Píratar telja forgangsmál að setja peninga í útlendinga sem hingað koma í leit að öðru en vinnu; húsnæði og uppihaldi í hrekklausu samfélagi.

Píratar sýna samstöðu með skipulagðri glæpastarfsemi og eru jákvæðir gagnvart ofbeldi. Fyrir nokkrum árum stillti flokkssystir Halldóru, Þórhildur Sunna, sér upp fyrir framan myndavélar alþingis með svarta húfu þar sem á voru tveir hástafir, FO. Þórhildur Sunna er svo ánægð með boðskapinn að hún gerir höfuðfatið með torræðu áletruninni að einkennisbúningi sínum.

Nú er upplýst hvað stafirnir standa fyrir: Fögnum Ofbeldi. 


mbl.is Nóg fjármagn „til þess að fara í stríð gegn fólki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. nóvember 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband