Þriðjudagur, 2. febrúar 2021
Pírati býr til spillingu - í pólitískum tilgangi
Píratinn Halldór Auðar Svansson er einn höfunda skýrslunnar um spillingu á Íslandi, upplýsir Brynjar Níelsson. Halldór Auðar vill komast á þing.
Halló Hafnarfjörður, er það ekki spilling að búa til skýrslu um spillingu og bjóðast sjálfur til að lagfæra ósköpin? Hvort er líklegt að Halldór Auðar hafi bætt í eða dregið úr meintri spillingu, - þegar hann sjálfur hyggst hagnast á henni?
Vinstrifuglar eins og Halldór Auðar gera Ísland ljótt og bjóða síðan fegrunaraðgerð á kostakjörum. Fremur ósmekklegt, svo ekki sé meira sagt. Að ekki sé talað um hugarfarið að baki. Ljótleikinn byrjar innra með fólki.
Ísland í 17. sæti á spillingarlista | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)