Þriðjudagur, 19. janúar 2021
Lög fyrir lélega ráðherra
Við lagasetningu þarf að hafa í huga að sumir ráðherrar eru góðir en aðrir síðri, er efnislegt sjónarmið Helgu Völu formanns velferðarnefndar í umræðu um sóttvarnarlög.
En er þetta ekki sjónarmið sem ætti að viðhafa um alla lagasetningu? Ráðherrar eru brigðulir og lögin ættu að taka með með í reikninginn - á meðan þau eru enn frumvarp.
Tek ofan fyrir þér, Helga Vala, í þetta sinn. Stundum ratast kjöftugum satt orð í munn.
Helga Vala ekki mótfallin skyldubólusetningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 19. janúar 2021
Engin kreppa á Íslandi
Bankar skila auknum hagnaði, smásöluverslun í byggingavörum gerir það gott og verslunarkeðjur í matvælum og fatnaði bera sig vel. Orðið á götunni er að innlend eftirspurn eftir ferðaþjónustu í sumar sé meiri en nokkru sinni.
Þótt ekki séu skrifaðar fréttir um það þá er áberandi sterk eftirspurn erlendis frá í sérhæfðari ferðaþjónustu s.s. laxveiðar. Landið liggur þannig að efnaðir ferðamenn og bólusettir kaupa sér þjónustu þar sem gera má ráð fyrir að samfélagið sé starfhæft. Allt stefnir í að Ísland verði starfhæft með tryggum sóttvörnum á Keflavíkurflugvelli.
Víst er atvinnuleysi i hærri kantinum. En þokkalegar líkur eru á að það jafni sig með vorinu og minna verði um innflutt vinnuafl en á góðæristíma fjöldatúrisma, - sem, vel að merkja, kemur vonandi aldrei aftur.
Ísland er í góðum málum.
Stefnir í 6 milljarða hagnað á síðasta ársfjórðungi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)