Guðni notar sniðmát Ólafs Ragnars

Ólafur Ragnar náði forsetakjöri 1996 út á andófsfylgi, einkum frá vinstrimönnum. Þegar harðast var sótt að Ólafi Ragnari, RÚV-Þóra í kosningunum 2012, hélt sitjandi forseti embættinu fyrir atbeina hægrimanna úr röðum Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og óstofnaðs Miðflokks.

Guðni Th. var vinstra RÚV-framboðið árið 2016 og fékk sigur á Davíð Oddssyni og hægrimönnum. En þegar Guðni Th. stendur til endurkjörs sækir hann stuðninginn til hægri. Óopinbert málgagn Pírata, Stundin, kortleggur bakland sitjandi forseta. Sama sniðmátið og Ólafur Ragnar notaði 2012 blasir við.

Völd á Íslandi lúta eftirfarandi lögmáli. Til að ná völdum, einkum á tíma upplausnar, er óreiðu-vinstrið þénugt verkfæri. Þar eru atkvæði óstabíla fólksins sem hægt er að róta í sér til gagns. Aftur er óvinnandi vegur að halda völdum án kjölfestu samfélagsins: hægrimönnum.

Glæsilegasta dæmið um fullnustu lögmálsins er ekki forsetakosningar heldur tvennar þingkosningar, 2009 og 2013. Í þeim fyrri kaus hugsjúk hrunþjóð yfir sig fyrstu hreinu vinstri stjórn sögunnar, Jóhönnu Sig.-stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. Fjórum árum síðar var Jóhönnu og félögum slátrað. Samfylking tapaði tveim af hverjum þrem kjósendum sínum og fylgi Vinstri grænna helmingaðist.

Sitjandi forseti fer í bækur hins íslenska Machiavelli og finnur þar sniðmátið til endurkjörs. 

 


mbl.is Framboð Guðmundar og Guðna staðfest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drífa: veit ekkert um efnahagsmál, en allt um Icelandair

ASÍ-Drífa segist ekkert vita hvernig efnahagsmál þróast næstu vikur og mánuði. Ekki fyrr en í haust sé hægt að leggja mat á áhrif farsóttar á atvinnulíf.

Hreinskilið svar hjá forseta ASÍ. Enginn veit hvernig farsóttin leikur efnahagskerfið.

Aftur er það vitað að Icelandair er dæmt félag að óbreyttum kjarasamningum. Eigendur félagsins vita það, stjórnendur einnig. Flugmenn vita og féllust á breytta kjarasamninga. Sama gildir um flugvirkja.

Flugfreyjur aftur á móti halda að áfram sé hægt að reka flugfélag í taprekstri. Og ASÍ-Drífa er hjartanlega sammála.

Hvernig væri nú að forseti ASÍ tileinkaði sér sömu hreinskilnina í málefnum Icelandair og efnahagsmálum almennt?


mbl.is Vitum ekki hver staðan verður fyrr en í haust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. maí 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband