Sterkar konur spila ekki, en veiklaðir karlar fá enga miskunn

Konur veikjast síður af kórónuveirunni en karlar og þola betur veikindin. Þær frá farsóttarfrí frá boltaleik. Körlum er aftur ætlað að ljúka tímabilinu.

Hljómar ekki eins og karlstýrður heimur.

Nema, auðvitað, maður sé femínisti.


mbl.is Ensku úrvalsdeildinni aflýst hjá konunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jöklamýs - afleiðing án orsaka

Mosavaxnir steinar á jöklum færast úr stað án skýringa. Úr prentuðu útgáfu fréttarinnar:

Þrátt fyrir ýmsar tilgátur virðist enn ekki staðfest hvað skýrir hreyfinguna. Einfaldar tilgátur líkt og að steinarnir leiti einfaldlega niður á við eða stjórnist af vindi virðast ekki skýra hreyfinguna. „Við vitum það ekki enn, og ég er enn frekar forviða,“ segir Bartholomaus.

Vísindin kenna að engin hreyfing sé án orsaka. Jöklamýsnar, verandi steinar, ættu ekki að hreyfast. En hreyfast engu að síður.

Jöklamýsnar minna á að lögmálið um að allar afleiðingar eigi sér orsök er ósannað. Til dæmis er engin örsök fyrir því að þetta blogg er um mosavaxna steina en ekki forsetakosningar lýðveldisins. Nema að steinaríkið sé skemmtilegra en mannlífið. Kannski að jöklamúsum leiðist.


mbl.is Skrýtnar hreyfingar jöklamúsa vekja furðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. maí 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband