Laugardagur, 18. apríl 2020
Helgi Hrafn endurtekur fávitafimmuna
Jón Þór Pírati bjó til nýjan dagskrárlið á alþingi í vikunni, fávitafimmuna. Helgi Hrafn flokksbróðir Jóns Þórs endurtekur fimmuna.
Jón Þór sagði á þingi að vegna sóttvarna mætti ekki halda þingfund.
Helgi Hrafn segir ótækt að halda þingfund með Steingrím J. sem forseta.
Eitt einkenni fávita er að þeir tala í mótsögnum.
Case closed.
Sakar Steingrím um að ljúga og misnota aðstæður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 18. apríl 2020
Mótefni við Trump-hatri RÚV
RÚV birtir enn eina níðfréttina um Trump. Fyrirsögnin er Trump hundsaði vísindasamfélagið.
Vísindasamfélagið var margklofið í afstöðu sinni, eins og Simon Jenkins bendir á í Guardian, sem seint telst til aðdáenda Trump.
WHO, Alþjóða heilbrigðismálastofnunin, taldi framan af janúar að allt væri í himnalagi í Kína og veiran smitaðist ekki á milli manna.
Trump-hatur RÚV er komið langt út fyrir öll eðlileg mörk. Og var það löngu fyrir kórónuveiruna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 18. apríl 2020
Vigdís hlýðir ekki sirkusstjóra ráðhússins - kærð fyrir einelti
Helgu Björgu Ragnarsdóttur skrifstofustjóra á skrifstofu borgarstjóra ofbýður að Vigdís Hauksdóttir hlýði sér ekki. Skrifstofustjórinn getur ekki á sér heilum tekið og kærir Vigdísi.
Helga Björg var dæmd fyrir slæma framkomu gagnvart undirmanni sínum. Borgin varð að greiða skaðabætur. Í dómsorði segir m.a.
Um þá skilyrðislausu hlýðni sem skrifstofustjórinn virðist ætla af stefnanda verður sagt það eitt að þrátt fyrir stjórnunarrétt annars og hlýðniskyldu hins eru undirmenn ekki dýr í hringleikahúsi yfirmanna sinna.
Vigdís hlýðir ekki sirkusstjóranum og fær á sig kæru fyrir einelti. Kafka hefði ekki samið lygilegri sögu og vissi hann þó sitthvað um myrkviði sálarinnar í kolsvarta kerfinu.
Vigdís fundar með bakið í skrifstofustjóra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)