Trump í stríđi viđ frjálslynda alţjóđasinna

Frjálslyndir alţjóđasinnar ţóttust komast í feitt ţegar kórónuveiran skall međ ţunga á Bandaríkin og kenndu Trump forseta um mannfalliđ.

Trump galt rauđan belg fyrir gráan og kenndi stofnun alţjóđasinna, WHO, um ađ bregđast skyldu sinni. Og hefur nokkuđ til síns máls. Forstjóri WHO gerđi lítiđ úr veirunni í fyrstu og marglofađi kínversk stjórnvöld fyrir öflugar veiruvarnir. Á daginn kom ađ Kínverjar reyndu ađ ljúga sig úr vandanum og gripu seint til varna. Kínverska veiran stökkbreyttist og varđ alţjóđleg en WHO svaf á verđinum.

Sóttvarnir eru hápólitískar og eftir ţví eldfimar. Skynsamar ţjóđir, eins og Íslendingar, taka pólitíkina út fyrir sviga. Enda frjálslyndir alţjóđasinnar veikir og sundrađir hér á landi eftir glatađa ESB-umsókn og ömurlegan orkupakka. Í Bandaríkjunum eru frjálslyndir í kosningaham og ćtla ađ nota kínversku veiruna til ađ fella sitjandi forseta í haust.


mbl.is „Hjálpar ekki ađ skella skuldinni á ađra“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Mesta kreppa í 12 ár á Íslandi, 300 ár í Bretlandi

Kórónuveiran veldur mestu heimskreppu í 90 ár, segir Alţjóđa gjaldeyrissjóđurinn. Bretar búa sig undir verstu kreppu í 300 ár. Ísland, ljónheppiđ ađ vanda, ţarf ekki ađ horfa nema tylft ára tilbaka í leit ađ sambćrilegri efnahagskreppu.

Hruniđ var Íslandi mun verra en efnahagslegt áfall. Ţjóđin lenti í siđferđilegri og pólitískri kreppu sem var langvinnari en ţeir fáu mánuđir sem efnahagslega voru erfiđir.

Íslendingar búa ađ erfiđri reynslu og taka kórónukreppunni međ samheldni og stóískri ró. Veröldin umbyltist og enginn veit hvađ verđur. Á međan dyttum viđ ađ heima hjá okkur.  


mbl.is Mesti samdráttur frá kreppunni miklu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 15. apríl 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband