Svona verður raforkan einkavædd

Á heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkur segir: ,,Þrjú dótturfélög eru ásjóna starfsemi OR gagnvart viðskiptavinum og landsmönnum öllum." Eitt þessara félaga er ON. Nú kemur einhver og fer í samkeppni við ON og segir: Engin leið að keppa við ON.

Orkupakkar ESB bútuðu Orkuveitu Reykjavík í einingar. Þessar einingar verða einkavæddar með þeim rökum að opinber fyrirtæki hafi samkeppnisforskot á einkafyrirtæki. Viðbótarrök, til að slá á alla gagnrýni verða: orkupakkareglur mæla svo fyrir.

Þeir sem græða eru tveir hópar. Í fyrsta lagi stjórnendur orkufyrirtækjanna og í öðru lagi fjárfestar, auðmenn. En einmitt þessir hópar studdu innleiðingu orkupakka 3.

Almenningur tapar enda einkavædd einokun ávísun á hærri raforku.

Þingmenn, sem samþykktu orkupakka 3, einkavæða raforkuna okkar til hagsbóta fyrir útvalda. Þessir þingmenn eru mesta óþurftarliðið sem við höfum lengi haft á alþingi. Svei þeim.


Vinstri grænir í hermangi og fullveldisframsali - Gréta til bjargar?

Á vakt vinstri grænna í forsætisráðuneytinu fyllist landið af bandarískum hergögnum með tilheyrandi dátum, sem líklega er kátt að dansa við, um leið og fullveldið er sent til Brussel.

Einu sinni voru róttækir vinstrimenn í Alþýðubandalaginu eitthvað smávegis andsnúnir hernaðarbrölti og létu sér annt um fullveldið.

En núna góna þeir vonlausu grænu upp í loftið og bíða eftir hamfarahlýnun. Líklega grípa vaffgéarar til þess ráðs að senda varðskip, óvopnað vitanlega, eftir Grétu sænsku til að boða heimsendi hlýrra lofts. Það er eftir öðru að væla yfir góðviðri á Íslandi og halda að maður fái atkvæði út á það. Vonlausir grænir skipta út hugsjónum fyrir völd og gera hjávísindi að trúarsetningu.


mbl.is Hergögn streyma til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. september 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband