Fimmtudagur, 12. september 2019
Hlýnun um 2 gráður er gott mál
Tveggja gráðu hækkun á hitastigi yrði gæfa fyrir Ísland en ekki hamfarir. Á miðaldahlýskeiðinu, sem ýmist er talið 900 til 1300 eða 1000 til 1200 var um tveggja gráðu hærri meðalhiti.
Á þessu skeiði fylltist Ísland af norrænu fólki. Við settumst að á Grænlandi og fáeinir reyndu fyrir sér með búsetu í Ameríku.
Að kalla það hamfarahlýnun þótt hitastig jarðar hækki til jafns við það sem tíðkaðist á miðöldum sýnir hve illa gáttaðir margir eru um gang náttúrunnar.
Vísindamenn, sem standa undir nafni, t.d. Roy Spencer, þreytast ekki á að benda á vitleysur glópahlýnunarsinna. En það eru miklir hagsmunir tengdir því að halda bábiljum að fólki. Eins og löngum áður.
Valkvæð túlkun á orðum mínum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 12. september 2019
Trúfélag gagnrýnir vísindi Sigmundar Davíðs
Trúfélag sem kallast Náttúruverndarsamtök Íslands uppnefnir virðulega stofnun, Global Warming Policy Forum, ,,svindlara."
Aðalræðumaður á ársfundi GWPF á liðnu ári var heimsþekktur vísindamaður á sviði loftslagsfræða, Richard Lindzen.
Sigmundur Davíð er með vísindin sín megin, trúfélagið ekki.
Segja Sigmund hafa vitnað í þekkta svindlara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 12. september 2019
Kolbeinn, mannakjötið og loftslagið
Sænskur vísindamaður leggur til mannát í baráttunni við hlýrra loftslag. Kolbeinn Proppé segir ragnarök í nánd og öll pólitík verði að taka mið af hamfarahlýnun.
Kolbeinn hlýtur að leggja til að mötuneytið á Austurvelli geri samning við sjúkrahús og vistheimili aldraða.
Hvort má bjóða þér síðubita eða læri af sjálfdauðu, Kolli?
Kannski svið?
Öll pólitík verði hugsuð út frá loftslagsmálum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)