Laugardagur, 31. ágúst 2019
Hitler var alþjóðasinni ekki þjóðhyggjumaður
Guðni Th. fer villur vegar þegar hann kennir þriðja ríki Hitlers og félaga við þjóðhyggju. Karlamagnús stofnaði til fyrsta ríkisins í kringum 800, samkvæmt sögukenningu nasista, annað ríkið var stofnað í Frakklandi 1871, já í Versölum, og bæði þessi ríki voru alþjóðasinnuð.
Ef Hitler hefði verið sannur þjóðhyggjumaður myndi hann hafa smalað Þjóðverjum í eitt ríki og látið þar við sitja. En það var aldrei ætlunin. Þriðja ríkið átta að vera yfir allri Evrópu.
Þjóðhyggja er hófstillt og býr að sínu á meðan alþjóðahyggja Hitlers, Stalíns og ESB er til stöðugra vandræða. Eins og dæmin sanna.
Mikilvægt að varast þjóðrembu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 31. ágúst 2019
Börnin í Chimú og New York - og góða fólkið
Guardian segir frá uppgreftri í Chimú á líkum 227 barna sem fórnað til að friðþægja veðurfyrirbrigði er kallast El Ninio. Góða fólkið í Chimú trúði að saklaus börn gætu breytt veðurfari.
Góða fólkið er enn að og teflir nú fram börnum og unglingum í New York, Greta Thunberg í fararbroddi, til að breyta loftslagi jarðarinnar.
Börnum er beitt fyrir bábiljur góða fólksins til að smyrja sakleysi yfir hugmyndafræði sem stenst ekki skoðun.
Thunberg mótmælti við höfuðstöðvar SÞ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 31. ágúst 2019
Tvær gerðir af fólki
Í einn stað er fólk sem vill búa að sínu, eiga samfélag við aðra í friði og leyfa hverjum að syngja með sínu nefi, svo lengi sem það veldur ekki óskunda hjá öðrum.
Í annan stað er fólk sem er vakandi og sofandi að hugsa um hvernig aðrir eigi að haga lífi sínu. Þessi tegund fólks er í stöðugri leit að trú og hugmyndafræði sem réttlætir afskipti af lífi annarra.
Þessar tvær grunnútgáfur af manninum eru í stöðugum erjum: frjálsræði gegn stjórnlyndi.
Náttúrulegt ástand mannsins er vitanlega að fá að vera í friði með sig og sitt. Ónáttúran kemur með stjórnlyndinu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)