Málsvörn ţjóđarhagsmuna er ekki málţóf

Miđflokksmenn standa fyrir málsvörn ţjóđarhagsmuna í orkupakkamálinu. Ţeir fara í einu og öllu eftir ţingsköpum. Ótćkt er ađ fjölmiđlar éti upp áróđur andstćđinga nýja ţjóđarflokksins um ađ hér sé á ferđinni málţóf.

Ţingstörf geta haldiđ áfram eins og ekkert hafi í skorist, eins lengi og ríkisstjórnin geymir orkupakkann áfram ofan í skúffu - en hann hefur veriđ í geymslu frá 2009.

Orkupakkinn er ósvífin tilraun til ađ blekkja ţjóđina. Góđu heilli sá Miđflokkurinn ekki ástćđu til ađ taka ţátt í blekkingunni og beitir viđurkenndum ađferđum til ađ hindra meirihluta alţingis ađ ganga erinda lítils minnihluta ţjóđarinnar.

 


mbl.is „Vćntanlega lengra ţing“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Sterkir menn, veikir flokkar

Farage í Englandi, Le Pen í Frakklandi, Salvini á Ítalíu, Urban í Ungverjalandi og Kurz í Austurríki eru sigurvegarar ESB-kosninganna 2019. Allir til hćgri og gagnrýnir á yfirţjóđlegt vald.

Miđjan hrynur í Evrópu samtímis sem fleiri kjósendur taka afstöđu en áđur. Stórir meginflokkar, t.d. í Englandi og Frakklandi, eru rúnir trausti og standa á barmi glötunar.

Hamskiptin í Evrópu munu hafa áhrif á íslensk stjórnmál. Eftirspurn eftir afgerandi afstöđu eykst en ţolinmćđi fyrir mođsuđu minnkar.


mbl.is „Svona er ađ upplifa tortímingu“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 27. maí 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband