Hvítir kristnir í öfgalandi fjölmenningar

Vinstrimenn flytja inn í landið framandi fólk sem oft kann ekki að haga sér í vestrænu samfélagi; stundar kvennakúgun ef ekki beint ofbeldi.

Hvítir kristnir óttast um líf sitt, siði og eigur í öfgafjölmenningu vinstrimanna.

Skammbyssa verður möst, vélbyssa gefur aukið öryggi.

Öfgafjölmenningin lætur ekki að sér hæða.


mbl.is Námskeiði úthýst af Grand
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvær hægristefnur, tvær manngerðir, tveir flokkar

Hægristefna er til í tveim meginútgáfum. Aðra má kenna við raunsæi en hina við hugsjónir. Sú fyrri hverfist um gildi og stofnanir en hin seinni um háleit markmið.

Raunsæishægrið lítur á manninn og samfélagið sem afleiðingu af langtímaþróun sem ætti að fikta sem minnst í með pólitískri tilraunastarfsemi. Hugsjónahægrið er aftur tilbúið með sniðmát um hvernig hlutirnir eigi að vera. Hugsjónamenn eru ginnkeyptir fyrir stórum hugmyndum, þeir raunsæju spyrja hvað virkar.

Hvor stefnan um sig laðar til sín ólíkar manngerðir. Íhaldssemi og þjóðhyggja einkenna  raunsæisfólkið en frjálslynd alþjóðahyggja er áberandi meðal hugsjónaliðsins. Við eigum að breyta heiminum segja þeir sem eru á valdi hugmynda. Framkvæmdin eyðileggur iðulega fegurstu hugmyndir svara þeir sem eru með báða fætur á jörðinni. 

Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður 1929 af stórum íhaldsflokki og smáflokki frjálslyndra. Á seinni tímum færist móðurflokkurinn yfir væng hugsjóna á kostnað raunsæis. Miðflokkurinn er valkostur.

 


Bloggfærslur 6. apríl 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband