Föstudagur, 12. apríl 2019
Íslam: konur eru hálfvitar karla
Í sharía-lögum múslíma segir að vitnisburður tveggja kvenna þurfi til að jafna vitnisburð eins karlmanns.
Konur búa aðeins að hálfu viti á við karla, segir í túlkun sharía-laga.
En, eins og þeir segja í Brúnei, er sharía-lögum ekki ætlað að refsa, heldur fyrirbyggja glæpi. Eins og t.d. þann að konur krefjist jafnréttis.
Tveir valinkunnir karlar þurfa að bera vitni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 12. apríl 2019
Frétt: veður er náttúrufyrirbrigði
Við erum orðin svo vön staðhæfingum stjórnmálamanna og hjávísinda að veðurfarið sé manngert að sérstaklega þarf að taka fram að veðrið lýtur náttúruferlum.
Fyrirsögnin á viðtengdri frétt, ,,Veðurfar byggir á umhverfisbreytingum", vekur athygli á hinu augljósa.
Í lok fréttarinnar segir ,,Því má segja að breytingarnar fyrir fimm árþúsundum hafi markað upphaf þess veðurfars sem við þekkjum í dag."
Ha?, 5000 árum? Hvað var steinaldarmaðurinn að bralla sem hratt úr vör veðurfarsbreytingum er enn ríkja?
Veðurfar byggir á umhverfisbreytingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)