Þriðjudagur, 19. mars 2019
Óttinn við einelti verkó - menn þora ekki að semja
Verkó stundar skipulegt einelti á samfélagsmiðlum gagnvart þeim sem sitja ekki og standa eins og sósíalistum þóknast.
Gunnar Smári formaður Sósíalistaflokksins slær tóninn með því að fara í manninn en ekki boltann.
Óttinn við að verða fyrir einelti sósíalista hamlar því að samningar náist í kjaraviðræðum.
Aðgerðahópurinn fundar í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 19. mars 2019
Flóttamenn, vanvirðing og Egill Helga
Flóttamenn vanvirtu Austurvöll og styttu Jóns Sigurðssonar. Agli Helga finnst það ekki tiltökumál.
Flóttamenn eru eðli málsins samkvæmt ekki þjóðin. Í fyllingu tímans gætu þeir orðið hluti íslensku þjóðarinnar. Ekki er til of mikils mælst að umsækjendur um Ísland sýni þjóðinni lágmarksvirðingu.
En Egill skilur ekki þessi einföldu sannindi,enda tekur hann jafnan undir þegar landi og þjóð er hallmælt.
Mótmælendur brutu skilmála borgarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 19. mars 2019
Meira atvinnuleysi, lægri laun
Atvinnuleysi eykst, hagkerfið kólnar með loðnubresti og færri ferðamönnum. laun munu lækka.
Þess vegna er ekki talað um launahækkun í kjaraviðræðum heldur vinnutíma.
ASÍ-félögin semja um lágmarkslaun. Í þenslu hækka lágmarkslaunin með launaskriði en lækka í samdrætti.
Þess vegna er ekki talað um launahækkun í kjaraviðræðum heldur vinnutíma.
Verkföll skapa ekki verðmæti heldur tortíma þeim.
Þess vegna er ekki talað um launahækkun í kjaraviðræðum heldur vinnutíma.
Almenningur veit að það er ekki meira til skiptanna, þótt forysta verkó láti eins og hún viti það ekki.
Þess vegna er ekki talað um launahækkun í kjaraviðræðum heldur vinnutíma.
Vinnutíminn eldfimur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)