Krakkar, loftslag og útlandaferðir

Ef nemendur sem skrópa fyrir loftslagið undir kjörorðinu ,,aðgerðir strax" meina eitthvað með afstöðu sinni ættu þau að harðneita öllum útlandaferðum.

Þotueldsneyti myndar koltvísýring við bruna, veldur gróðurhúsaáhrifum og, samkvæmt kenningunni sem börnin aðhyllast, hækkar lofthitinn í framhaldi.

Ferðalögin ættu að vera innanlands, helst fótgangandi en til vara á reiðhjólum.

Maður á fyrst að gera kröfu á sjálfan sig. Vonandi hafa börnin lært það í uppeldinu.


mbl.is Reyna að múta nemendum með pítsu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Láglaunaríkidæmi: senda út 50 þús. kr. á mánuði

Sá sem á 50 þús. krónur í hverjum mánuði til að senda frá sér getur ekki verið fátækur. Að meðaltali gera útlendingar einmitt þetta í hverjum mánuði.

Útlendingar koma til Íslands í uppgrip, verða vel fjáðir á skömmum tíma.

En verkó segir láglaunafólk lepja dauðann úr skel.

Láglaunaríkidæmið á Íslandi er eftirsótt á alþjóðavísu.


mbl.is Leiðir velmegunarkúna ekki til slátrunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstriparadís: myglaðir skólar og flóttamannabúðir á Austurvelli

Skólar mygla vegna þess að vinstrimeirihlutinn í Reykjavík forgangsraðar í þágu bragga, pálmatrjáa og ókyngreindra salerna.

Til að vinstripólitíkin fari ekki framhjá neinum eru settar upp flóttamannabúðir á Austurvelli í boði borgarstjórnar Reykjavíkur.

Virkilega flottir á því, vinstrimenn.


mbl.is Skoða mygluvanda í fleiri skólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. mars 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband