Föstudagur, 15. mars 2019
Sígild skilaboð frá Ara fróða
En nú þykir mér það ráð, kvað hann, að vér látum og eigi þá ráða, er mest vilja í gegn gangast, og miðlum svo mál á milli þeirra, að hvorir tveggju hafi nakkvað síns máls, og höfum allir ein lög og einn sið. Það mun verða satt, er vér slítum í sundur lögin, að vér munum slíta og friðinn.
Ofanritað er frásögn af uppgjöri tveggja trúarmenninga, kristni og heiðni.
Lögmálið um ,,ein lög og einn sið," gildir enn, þegar vestræn menning stendur í enn öðru uppgjöri.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 15. mars 2019
Morðsiðir, kristnir og múslímskir - og góða fólkið
Af orðum forsætisráðherra Noregs í meðfylgjandi frétt má ráða að þegar hvítur og kristinn drepur múslíma er það öfgahyggja en þegar múslímar drepa hvíta og kristna er það eitthvað annað og betra en öfgahyggja.
Útkoman er þó hin sama; saklaust fólk er drepið við saklausa iðju.
Algeng afsökun góða fólksins fyrir hryðjuverkum múslíma er að morðin séu fylgifiskur fjölmenningar sem við verðum að búa við.
Tvöfeldninni verður ekki logið á góða fólkið - það auglýsir hræsnina sjálft.
Vekur upp sárar minningar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 15. mars 2019
Róbert dæmir fyrir Villa vin; Evrópa talar
Róbert Spanó er höfundur meirihlutaálits Mannréttindadómstólsins í Evrópu (MDE) um að landsréttur sé ranglega skipaður. Róbert og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður, sá sem kærði til MDE, eru æskuvinir.
Til að gera málið enn fáránlegra er einn dómara landsréttar, sem gæti misst vinnuna, faðir Vilhjálms H. og alnafni.
Íslenskt réttarfarslegt innherjasvindl í bland við skyldleikaræktun er veruleikinn. Í munni samfylkingarpírata heitir það að ,,Evrópa hefur talað".
Ekki allir sammála um afleiðingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)