RÚV skapar verðmæti í Namibíu

RÚV er áhrifavaldur í namibískum stjórnmálum. Fyrst var íslenskur skipstjóri handtekinn og nú togari kyrrsettur.

Samkvæmt RÚV verða verða menn ríkir í Namibíu við samkrull opinbers valds, s.s. stjórnmála og fjölmiðla, annars vegar og hins vegar viðskipta.

Vænar fjárhæðir munu skipta um hendur til að leysa úr þeim vanda sem íslensk fyrirtæki og namibísk stjórnvöld eiga í. 

RÚV skapar verðmæti í Namibíu, landi sem RÚV-arar hafa lýst sem gjörspilltu.


mbl.is Togarinn Heinaste kyrrsettur af dómara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múslímar og femínistar

Pakistanskir múslímar efna til ráðstefnu um femínista án þess að nokkur kona fari með hlutverk.

Femínistar ræða reglulega karlmennsku án þess að karlar eigi þar orð.

Margt er líkt með skyldum.


mbl.is Engar konur í pallborði um femínisma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Play, Excel og tiltrú

Fjárfestar sem eiga að hafa vit, og bera því forskeytið fag-, eru tregir til að setja pening í flugfélag sem aðeins er til á pappírunum og heitir Play.

Fjárfesting, hvort heldur fagfjárfesta eða annarra, byggir á tiltrú að fyrirtækið standi við loforð að skapa eigendum sínum arð.

Reikniforritið Excel útfærir loforðið í krónur og aura að gefnum forsendum. Sölumenn viðskiptahugmynda eru flinkir á Excel sem þó er aðeins skáldskapur um framtíðina.

Ferðaþjónusta óx hratt hér á landi á meðan WOW flutti hingað ferðamenn sem voru niðurgreiddir með peningum fjárfesta. Samdrátturinn í kjölfar falls WOW kom illa niður á ferðaþjónustunni.

Stofnendur Play biðla til ferðaþjónustunnar um ,,sameiginlega" fjárfestingu eins og hlutafélag sé eitthvað annað en einmitt það - sameiginleg fjárfesting hluthafa.

Á endanum ræður tiltrú fjárfesta á viðskiptahugmyndinni hvort nægt hlutafé safnast til að fyrsta flugvélin merkt Play taki á loft. Trúin flytur fjöll, segir orðtakið. Í þenslu og góðæri er meiri trú en minni í samdrætti og hallæri.

Tilboði um sameiginlegt skipbrot er auðvelt að hafna ef maður er ekki þegar munstraður á fleyið. 


mbl.is Biðla til hóps fjárfesta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. nóvember 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband