Laugardagur, 2. nóvember 2019
Samfylking elur á öfund
Frjálst framtak og einkaeign felur í sér að sumir efnast, einhverjir eru meðalefnum búnir og aðrir efnalitlir.
Samfylkingin fékk tækifæri, í Jóhönnustjórninni 2009-2013, að stokka upp efnahagskerfið og breyta því í átt að sósíalisma. En Samfylkingin gerði ekkert í þá áttina. Nema við köllum það sósíalisma að gefa útlendingum bankana og framselja fullveldið til Brussel.
Pólitík Samfylkingar er öfund - og aðgerðarleysi þegar á hólminn er komið.
0,1% áttu 5,7% eigin fjár landsmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 2. nóvember 2019
Samfélagsmiðlar, sjálfsímynd og heimsendir
Maðurinn þekkir sjálfan sig í gegnum aðra. Án mannlegra samskipta er maðurinn ókunnugur sjálfum sér. Að svo miklu leyti sem maðurinn getur ekki skilið sjálfan sig í samfélagi við aðra af sinni tegund grípur hann til trúar á yfirskilvitleg öfl.
Sjálfsþekking verður fyrst og fremst til í nærumhverfi, hjá fjölskyldu, nágrönnum, vinum og félögum í leik og starfi. Þekkingin verður til í tíma, maður kynnist fyrst þeim sem standa manni næst. Aldur og reynslu þarf til sjálfsþekkingar.
Samfélagsmiðlar brengla sjálfþekkingarferli mannsins. Brenglunin hittir þá verst fyrir sem eru yngstir og næmastir á umhverfi sitt. Veröldin verður ókunnugleg í yfirþyrmandi áreiti allan sólarhringinn. Tími vinnst ekki til að vega og meta sífelldan straum skilaboða og staðfæra þau í tilveru sjálfsins.
Brenglunin veldur óvissu og ótta. Leit að hálmstrái að halda sér í verður örvæntingarfull eftir því sem þau slitna eitt af öðru.
Örvæntingin magnar þörfina fyrir fullvissu.
Trú á heimsendi er ein tegund fullvissu.
Sífelldur samanburður eykur vanlíðan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)