Píratar og Samfó vilja lögregluríki

Samherja-Namibíumálið nota Píratar og Samfylking til að krefjast aukins eftirlits og inngripa yfirvalda í líf borgaranna. Fjárframlög skulu aukin til eftirlitsstofnana og opinberar valdheimildir auknar.

Sjálfir gera Píratar Stasi-tilraunir til að koma upp gagnasöfnun um óæskilega hegðun Jóns og Gunnu.

Lögregluríki í boði Pírata og Samfylkingar er orðinn pólitískur valkostur.


mbl.is „Áframhaldandi plástrapólitík“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðni Th., elíta, múgur og þriðja þjóðin

Hversdags starfar forseti Íslands fyrir elítuna. Forsetinn heldur boð, veitir verðlaun, flytur ávörp, opnar starfsstöð og margt fleira í þágu viðskiptaelítunnar - og gerir það sama fyrir menningarelítuna, sem er önnur ella.

Bakland Guðna Th. er múgurinn sem lyfti honum til valda úr stóli álitsgjafa RÚV um skandalinn sem þá stundina var á dagskrá Efstaleitis. Til að friðþægja múginn grípur Guðni Th. til þess ráðs að hallmæla elítunni sem hann þjónustar hverdags. Tungutakið er ættað úr vinstrisinnaðri orðræðu um síðnýlendukúgun hvíta mannsins.

Þriðja þjóðin, þessi sem hvorki aðhyllist múgræði né er hluti elítunnar, er ekki til í huga Guðna Th. 


mbl.is Óverjandi framferði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúin á spillinguna, spámennirnir og fall Bensa

Á Íslandi er trú á spillingu. Líkt og í trúarmálefnum almennt er ekki spurt um undirstöðu trúarinnar, að Ísland sé spillt, - það væri guðlast - heldur iðka menn trú sína án þess að spyrja um rök eða forsendur.

Trúin þrífst á spámönnum, sem margir hverjir hreiðra um sig í fjölmiðlum, og trúarsöfnuðum sem kalla sig stjórnmálaflokka. Safnaðarlífið er giska fjörugt síðustu ár og misseri; söfnuðir á víxl stofnaðir og aflagðir.

Endrum og sinnum birtast spámönnum opinberanir um spillingu. Lykilatriði er að nafngreina þann spillta, sem eftir atvikum er einstaklingur en sjaldnar fyrirtæki eða stofnun. Ef um er að ræða lögaðila þarf að setja andlit einstaklings í forgrunn enda verður sá spillti að vera af holdi og blóði til að þjóna tilgangi blóðfórnar.

Spillti einstaklingurinn er ekki tekinn neinum vettlingatökum. Þekktu spámennirnir ryðja brautina í fjölmiðlum og segja véfréttir af þeim spillta. Minni spámenn koma í halarófu á eftir og úthúða skotmarkinu fyrir stórt og smátt. Söfnuðir halda bænastundir, semja ályktanir og oddvitarnir taka til máls á alþingi og samfélagsmiðlum.

Takist vel til með opinberunina skapast stemmning í samfélaginu fyrir allsherjarsamkomu þeirra trúuðu. Samkoman er venju samkvæmt haldin á Austurvelli. Þar berja þeir réttlátu sér á brjóst, stíga á stokk og strengja heit.

Trúin á spillinguna er þrungin stæku hatri á sérvöldum fórnarlömbum. Í ferlinu frá opinberuninni og fram að allsherjarmessunni á Austurvelli fer saman reiði og sjálfsupphafning múgsins. Við erum þeir hreinu, réttlátu, saklausu og þarna fer úthrópaða kvikindið sem hvergi skal um frjálst höfuð strjúka.

Þegar móðurinn rennur af spámönnunum og söfnuðinum, nokkra daga eða vikur eftir Austurvallamessu, átta sumir sig á að opinberunin var haganlega saman settur spuni með hálfsannleik og kryddaður nokkrum sannleikskornum.

En vei þeim sem efast um gildi sakramentanna. Maður er kallaður Bensi, liðtækur minni háttar spámaður, og sat í ríkisstjórn sem sprakk eftir næturfund hjá einum söfnuðinum. Bensa varð það á í aðdraganda kosninganna í kjölfarið að viðurkenna svo aðrir heyrðu til að hafa gleymt opinberuninni sem felldi ríkisstjórnina. Óðara var Bensi sviptur hempunni í söfnuðinum sem hann stofnaði og veitti forstöðu. Í framhaldi var þingsetan afturkölluð.

Trúin á spillingu er öllum boðorðum æðri. Spyrjið Bensa, ef þið vogið ykkur að trúa ekki.


mbl.is Sósíalistar álykta vegna Samherjamálsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. nóvember 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband