Loftslagskvíði og gamalt húsráð

Fólk skemmtir sér ekki lengur vegna loftslagskvíða, segir í frétt á Vísi. Hvernig er hægt að skemmta sér kortéri fyrir endalok heimsins vegna hlýnunar og hruns vistkerfa?

Erlendis eru haldin námskeið fyrir fólk þjakað af kvillanum.

Eitt fórnarlambanna, sem blaðamaður Vísis talaði við, segir: ,,Ég hugsa að lausnin sé bara að taka nokkur þúsund skref aftur á bak, endurhugsa þessa heimsmynd okkar og minnka samfélögin."

Gamalt húsráð við færa samfélög ,,aftur á bak" og minnka þau er stríð. Ráðið er þrautreynt og gefur nær undantekningalaust sömu niðurstöðuna. 


Byltingarmaðurinn og Viðreisn

Formaður VR reyndi fyrir ári innflutning á mótmælum gulvestunga í Frakklandi.

Ragn­ar Þór Ing­ólfs­son, formaður VR, hvet­ur fólk til að mót­mæla stjórn­mála­ástand­inu á Íslandi. Ragn­ar birti mynd á Face­book í dag af gulu vesti með áletr­un­um og spyr hvort hann eigi að panta fleiri, segir í ársgamalli frétt mbl.is

Engin eftirspurn var eftir gulvestungamótmælum Ragnars Þórs fyrir ári. En byltingarmaðurinn er ekki af baki dottinn. Nú skal mótmæla ,,afrekum Samherja á erlendri grundu."

Gaurar eins og Ragnar Þór eru alltaf til í byltingu að tveim skilyrðum uppfylltum. Í fyrsta lagi að samfélagsvöld séu boði. Í öðru lagi að byltingarmennirnir fái hlutverk á stóra sviðinu, komist í valdastöðu. Hugmyndafræðin er aukaatriði, völdin aðalatriði.

Nýrra ber við að stjórnmálaflokkurinn Viðreisn, almennt kallaður saga-class útgáfa Sjálfstæðisflokksins, bjóði upp á byltingu. En Viðreisn getur ekki á sér setið, enda langsoltin í völd, og stekkur á Sammherjavagn Ragnars Þórs.

Viðreisn boðar til fundar til að fordæma ,,meinta hægrimenn" í Sjálfstæðisflokknum. Við erum sannir hægrimenn, segir Viðreisnarfólk, og boðar markaðsvæðingu samfélagsins.

Ragnar Þór og Viðreisn hljóta að sameina kraftana og markaðsvæða allt sem hægt er að kaupa og selja og láta Evrópusambandið um afganginn. Þannig verður samfélagið óspillt. Og völdin komast í ,,réttar" hendur.

Fyrirsjáanlegt er kosningabandalag Ragnars Þórs og Viðreisnar. Jafnvel að Sósíalistaflokkur Gunnars Smára sláist í för. RÚV yrði málgagnið.


mbl.is „Samfélagslegum gildum okkar er ógnað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efsta stig RÚV, frumstig veruleikans

RÚV ákærði og dæmdi Samherja í einum sjónvarpsþætti í nóvember 2019 fyrir að múta namibískum stjórnmálamönnum. Seðlabanki Íslands gerði húsleit hjá Samherja 2012, í samráði við RÚV, vegna gjaldeyrisviðskipta. Dómsmál sem leiddi af þeirri rannsókn sýknaði fyrirtækið fyrir rúmu ári.

Meintar mútur Samherja í Namibíuviðskiptum eru til rannsóknar þarlendra yfirvalda frá 2014, samkvæmt frétt á RÚV.

Myndin sem blasir við er þessi: RÚV ætlar sér að knésetja Samherja, fyrst með ásökunum um brot á gjaldeyrisviðskiptum á Íslandi og síðar með ásökunum um mútugreiðslur í Namibíu.

Í báðum tilvikum ákærir RÚV og dæmir. Ríkisfjölmiðillinn er með á sínum snærum stjórnmálamenn, þingmenn Samfylkingar og Pírata, sem endurtaka ásakanir RÚV á alþingi og í almennri pólitískri umræðu.

Efsta stig RÚV-réttlætis er múgæsingin sem á að fullkomna verkið. Sighvatur Björgvinsson fyrrum formaður Alþýðuflokksins segir að ,,viðbrögð stjórn­mála­manna fari oft eft­ir viðbrögðum þjóðar­inn­ar."

Sem sagt: RÚV sannfærir þjóðina um sekt Samherja og stjórnmálamenn framfylgja RÚV-réttlætinu.


mbl.is Samherjamálið er á frumstigi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. nóvember 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband