Umhverfisstofnun: loftslag, alnæmi og erfðasyndin

Umhverfisstofnun birti yfirlýsingu til stuðnings þeirri pólitísku afstöðu að manngert veðurfar geri jörðina óbyggilega, ef ekki verður brugðist við.

Netmiðillinn Viljinn spyr Umhverfisstofnun nánar út í yfirlýsinguna og fær þetta svar:

„Ég vitna bara í Andra Snæ [Magnason, rithöfund], og segi ef vísindasamfélagið hefði ekki ekki sameinast um að finna lyf við alnæmi, að þá hefði það ekki tekist.“

Nýstárleg nálgun, óneitanlega. Alnæmi er sannanlega manngerður sjúkdómur með því að menn komust í snertingu við veika simpansa og apaveiran stökkbreyttist í aids, alnæmi.

Maðurinn ber aftur ekki ábyrgð á koltvísýringi í andrúmsloftinu nema að örlitlum hluta. Umhverfisstofnun er komin inn á svið trúarbragða þegar stofnunin kennir manninum um koltvísýring í andrúmslofti.

Næst þegar eldgos verður á Íslandi mun Umhverfisstofnun væntanlega feta slóð Jóns eldklerks sem í upphafi móðuharðindanna kenndi syndugu líferni mannanna um reiði guðs.  


Logi, Viðreisnar-Tobba með Pútín gegn Trump

Logi í Samfó og Þorgerður Katrín í Viðreisn eru sammála Pútín Rússlandsforseta: Trump ætti ekki að afturkalla þá fáeinu hermenn Bandaríkjanna sem enn eru í Sýrlandi.

Brottförin ,,gæti skapað eldfimt ástand", segir talsmaður Pútín.

Forveri Trump, Obama með frú Clinton sem utanríkisráðherra, settu sér markmið að koma Assad Sýrlandsforseta frá völdum. Assad sigraði andstæðinga sína með hjálp Rússa. Brottför síðustu hermanna Bandaríkjanna er viðurkenning á ósigri.

Stefna Trump er að fórna ekki bandarískum mannslífum í átökum sem varða ekki bandaríska hagsmuni. 

Í Norður-Sýrlandi eru í grunninn þrennir hagsmunir: tyrkneskir, kúrdískir og sýrlenskir. Að baki þessum hagsmunum standa tvö fullvalda ríki, Tyrkland og Sýrland. Kúrdar eru þjóð, dreifð um Tyrkland, Sýrland og Írak, en án þjóðríkis.

Bandaríkin geta ekki búið til kúrdískt þjóðríki. Stórveldið getur ekki einu sinni umskapað starfandi fullvalda þjóðaríki, sbr. Írak.

Helsta von Kúrda eru samningar við Sýrland og Rússland um einhvers konar sjálfsstjórnarhérað. Tyrkir vilja ekki slíka lausn enda sjálfsstjórn vísir að þjóðríki, sem fyrirsjáanlega gerir tilkall til landamærahéraða Tyrklands, sem byggð eru Kúrdum.

Þess vegna er ástandið í Norður-Sýrlandi eldfimt. Trump-hatur Loga og Þorgerðar Katrínar er ástæðan fyrir því að skötuhjúin eru komin í eina sæng með Pútín í utanríkismálum. Þau Logi og Þorgerður Katrín reyna að slá pólitískar keilur í innanlandspólitík en afhjúpa í leiðinni fádæma grunnhyggni í utanríkismálum. Enda bæði ESB-sinnar. 

 


mbl.is Gæti skapað eldfimt ástand, segir Lavrov
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þórður kjarnasósíalisti: peningarnir vaxa á trjánum

Kjarninn er málgagn vinstrimanna, samfylkingarfólks sérstaklega. Ritstjóri Kjarnans segir í fréttaskýringu að peningar verði til upp úr þurru, nánast vaxi á trjánum. Fyrirsögnin slær tóninn:

Tæpur helmingur alls nýs auðs sem skapast fer til ríkustu Íslendingana

Afhjúpandi orðalag, ,,auður skapast". Enda stendur Þórður Snær ritstjóri við peningatréð, þetta sem vex hjá stjórnarráðinu og er skattfé almennings, og krefst þess að fá að plokka seðlana í útgáfu með þann boðskap að ,,auður skapast" án þess að mannshöndin komi þar nærri.

Andlegt slekti ritstjórans er einmitt á talandi stundu að búa til sæluríki sjálfssprottins auðs. Í Venesúela.


Bloggfærslur 9. október 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband