Þriðjudagur, 1. október 2019
Sigríður afhjúpar glópsku vinstrimanna
Vinstrimenn eru í stöðugri leit að sjálfsupphafningu og stökkva á tískusveiflur i von um pólitískan ábata. Sigríður Á. Andersen afhjúpar glópsku vinstrimanna sem fyrir fáeinum árum kröfðust, og fengu í lög, að bensín skyldi blandað jurtaolíu. Afleiðingin:
lög hreinu vinstri stjórnarinnar um endurnýjanlegt eldsneyti sem áttu að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda hafi þvert á móti aukið losunina, valdið stórkostlegri loftmengun í Asíu, auk þess að stuðla að eyðingu regnskóga, ógna líffræðilegri fjölbreytni og ýta undir vinnuþrælkun og illa meðferð á konum og börnum.
Og nú leggja vinstrimenn fram tillögu um að afturkalla eigin glópsku.
Munu þeir biðjast afsökunar? Ekki veðja á það.
Sigríður furðar sig á pálmaolíuviðsnúningi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 1. október 2019
Veðrið á morgun - og eftir 30 ár
Veðurspár fyrir morgundaginn eru sæmilega öruggar. Spá um veður eftir viku er háð nokkurri óvissu. Enginn nennir að spá um veðrið eftir mánuð, óvissuþættirnir eru of margir til að hún sé marktæk.
Engu að síður eru þeir til sem geta spáð hvernig veðrið verður eftir 30 ár, árið 2050. Tim Ball prófessor vekur athygli á þessari mótsögn í loftslagsumræðunni.
En við fáum huggun harmi gegn. Hitabylgjur verða ekki áþján á Íslandi eftir áratugi. Maður er alltaf að læra.
Hitabylgjur ekki alvarleg áþján hérlendis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)