Fimmtudagur, 19. júlí 2018
Fordómar vinstrimanna
Jón Þór þingmaður Pírata vissi ekki hver Pia Kjærsgaard var en vissi þó að hann hefði fordóma gagnvart henni. Eftirfarandi kemur fram í viðtengdri frétt:
Jón Þór var á fundi forsætisnefndar Alþingis í fyrradag þar sem tilkynnt var um komu Kjærsgaard en gerði ekki athugasemd frekar en aðrir. Hann segist ekki hafa áttað sig á því hver hún væri.
Aðalatriðið fyrir vinstrimenn er að hafa fordómana á hreinu. Síðan eru fundnir einstaklingar, hópar og málefni til að heimfæra fordómana upp á.
Svínvirkar.
Greint frá komu Kjærsgaard í apríl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 19. júlí 2018
Ekki hlusta, Helga Vala, þú gætir lært
Danir áttuðu sig á að samfélagið þeirra væri á að glatast í ómenningu hliðarsamfélaga - kölluð gettó á útlensku - og gripu til ráðstafana. Íslendingar gætu lært þá lexíu af Dönum að veita ekki viðtöku fleiri útlendingum en hægt er að aðlaga íslensku samfélagi.
Sumir, t.d. Helga Vala þingmaður Samfylkingar og þingflokkur Pírata í heild sinni, kjósa að hlusta ekki á reynslu annarra þjóða og stinga höfðinu í sandinn.
Lærdómur er ávallt hættulegur fordómum.
Gekk burt þegar Kjærsgaard hóf ræðu sína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)