Rússahatur án foringja

Macron í París er vinur Pútíns; Merkel kaupir gas af Pútín og May í Lundúnum ræður ekki við eigin flokksmenn í Brexit-málum. Trump, eins og alþjóð veit, er sálufélagi Pútín.

Á meðan enginn er foringinn í Rússahatrinu verður það heldur flatt og ótrúverðugt.

Það eru helst frjálslyndir í leit að pólitík sem gefa sig í hatrammt Rússahatur. Og það segir meira um frjálslynda en Rússa.


mbl.is Pútín: „Ég vildi að Trump ynni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Salerni, mannréttindi og almannarými

Í heimahúsum eru salerni almennt ekki kynskipt. Á opinberum stöðum eru salerni að jafnaði aðgreind eftir kyni. Á seinni árum þekkist að sumir segjast hvorki karl né kona.

Það eru mannréttindi að skilgreina sjálfan sig. Maður getur verið kaþólikki, FH-ingur, tunglskinsglópur, meinlætamaður eða hvaðeina annað sem varðar einkalífið.

En rétturinn til að skilgreina sjálfan sig felur ekki í sér að aðrir eigi að taka upp framandi siði og háttu. Okkur þætti önugt að meinlætamaður krefðist þess að salernispappír yrði úthýst úr almannarými og að fólk notaði heldur fingur til að hreinsa bakhlutann. Viðbótarrök um að salernispappír mengaði náttúruna dygðu ekki til. Okkur er tamt að nota pappírsrúlluna.

Fólk sem hvorki telur sig dreng né stúlku, karl né konu, er það frjálst. En við það myndast enginn réttur á aðra, að þeir breyti viðurkenndri háttsemi.

Samfélagið kemur til móts við þá sem búa við skerta líkamsgetu, t.d. fatlaða og aldraða. En ,,trans­fólk og in­ter­sex­fólk", svo notað sé orðfæri formanns ,,mannréttinda- og lýðræðisráðs Reykjavíkurborgar" býr ekki við hömlun eða líkamlega bresti. Það vill einfaldlega vera öðruvísi. Sem er sjálfsagt mál. Jafn sjálfsagt og að við hin erum ýmist kvenkyns eða karlkyns.

Löng hefð er fyrir kynskiptum salernum og búningsklefum í sundlaugum og íþróttahúsum. Fáeinir sem vilja vera öðruvísi eiga engan rétt að breyta hefðinni.


mbl.is Telja ákvæði um salerni úrelt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. júlí 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband