Mánudagur, 16. júlí 2018
Sokkinn kostnaður Rússahaturs - á Íslandi
Obama fráfarandi Bandaríkjaforseti ásamt kaldastríðshaukum eins og John McCain stóðu fyrir stjórnarbyltingu í Úkraínu í félagi við Evrópusambandið. Markmiðið var að koma Úkraínu undir áhrifasvæði Nató-ríkja.
Stjórnarbyltingin 2014 hratt af stað atburðaráðs, borgarastyrjöld og innlimun Krímskaga í Rússland, sem varð tilefni vestrænna viðskiptaþvingana gegn Rússlandi.
Ísland, sem Nató-ríki, var þvingað til að taka þátt og kostaði það okkur mikilvæga útflutningsmarkaði í Rússlandi.
Rússar, vel að merkja, hafa aldrei sýnt okkur annað en vináttu, studdu okkur m.a. í landhelgisdeilunni við Breta.
Sammála um að sökin sé Bandaríkjanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 16. júlí 2018
Framhaldshrunið, ESB-umsóknin, 9 ára
Í dag eru 9 ár síðan ólukkustjórn Jóhönnu Sig. samþykkti ESB-umsókn til Brussel. Umsóknin framlengdi fjármálakreppuna, gerði hana að siðferðishruni. Með umsókninni varð slagorðið ,,ónýta Ísland" að baráttumáli vinstrimanna. Vakandi og sofandi formæltu vinstrimenn öllu íslensku.
Icesave-samningarnir voru gerðir til að knésetja Íslendinga og tryggja að þeir færu á hnjánum inn í Evrópusambandið.
Atlaga stjórnar Jóhönnu Sig. að fullveldinu og stjórnskipuninni (það átti að stúta stjórnarskránni) mistókst. Þjóðin hafnaði Icesave í tvígang í þjóðaratkvæðagreiðslu og setti þar með skorður á framgang ESB-aðlögunar.
ESB-umsóknin dó drottni sínum áramótin 2012/2013 þegar Vinstri grænir þvoðu hendur sínar af handvömm Jóhönnu, Össurar og kratanna. Þar með hófst sáttarferli gagnvart Vg-liðum og leiddi þá til hásætis í stjórnarráðinu fimm árum síðar.
Ríkisstjórnin fundar í Snæfellsbæ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 16. júlí 2018
Trump þolir ekki ESB-Evrópu, 2 ástæður
Trump náði forsetakjöri út á stjórnmál sem kennd eru við sjálfsvitund. Til skamms tíma voru sjálfsvitundarstjórnmál séreign vinstrimanna. Kænska Trump fólst í því að hann virkjaði öflugustu sjálfsvitundina, sem er bandarísk þjóðernisvitund. Slagorðið ,,gerum Ameríku máttuga" skóp sigurinn 2016.
ESB-Evrópa er stofnuð til að ganga milli bols og höfuðs á þjóðernisvitund. Engin landamæri þjóðríkja og opingáttarstefna gagnvart flóttamönnum er hvorttveggja andstyggð í augum sitjandi forseta Bandaríkjanna.
Önnur ástæða fyrir óþoli Trump er að ESB-Evrópa lætur Bandaríkin niðurgreiða útþensluna í austur. ESB-Evrópa gerir Rússa, Pútín forseta sérstaklega, að höfuðóvini. Tilgangurinn er að samfylkja ESB-Evrópu gegn sameiginlegum óvini. ,,Hvort viljið þið að Evrópu sé stjórnað frá Brussel eða Moskvu?" er falska tvíhyggjan sem leiðtogar ESB-Evrópu reyna að selja. Hernaðarmátturinn á bakvið útþensluna er Nató, sem Bandaríkin fjármagna að stærstum hluta. Trump sá rautt þegar hann kom auga á samhengið.
Trump og Pútín eru pólitískir sálufélagar. Báðir eru hlynntir þjóðernisvitund og virkum landamærum. En ESB-Evrópa stendur fyrir fjölmenningu og opin landamæri.
ESB-Evrópa er óvinur númer eitt. Af skiljanlegum ástæðum.
ESB versti óvinur Trumps | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)