Mótmæli í þágu hálaunastéttar - milljón á mánuði

Meðallaun ljósmæðra eru 850 þús. kr. á mánuði. Jæja-hópurinn boðar mótmæli á Austurvelli til að ljósmæður fái 18 prósent hækkun, fari yfir milljón á mánuði.

Mótmæli á Austurvelli til að sérfræðistétt fái yfir milljón á mánuði er um leið ákall til þjóðarinnar að auka launamisrétti í landinu.

Jæja-hópurinn er alveg milljón. Bókstaflega.


mbl.is „Vaknið ríkisstjórn!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virkir í athugasemdum

DV/Eyjan bað mig að skrifa 150 orð um laun ljósmæðra í með eða móti umfjöllun. Eftir birtinguna létu virkir í athugasemdum til sín taka. Umræðan er hér að neðan.

 
 
 
Elínbjört Jónsdóttir
Þær eru líklega með meiri menntun en margir ASÍ félagar og námslán borga þær sem aðrir jafnvel rukkaðir yfir gröf og dauða.
Like · Reply · 5 · 20h
 
Kristján Kristinsson
Þetta er bara hatursfull orðræða hjá Páli. Svo er hann sjálfur ríkisstarfsmaður þannig að það er mjög sérstakt þetta hatur út í ríkisstarfsmenn. En miðað við þessi bull skrif þá getur hann varla verið ánægður með sitt stéttarfélag sem berst af krafti að leiðrétta kjör sinna félagsmanna: sjá: http://ki.is/pistlar/4295-launathroun-framhaldsskolakennara

Og já, það fara heil mánaðarlaun á ári í ég veit ekki hvað mörg ár að borga niður þessi námslán.
Like · Reply · 8 · 19h
 
Ingibjörg Ottesen
Páll, vilti bara ekki fara og lemja svolítið á þeim?
Like · Reply · 2 · 20h
 
Guðmundur Tryllitæki Jònsson
Eru það ekki bara einhverjir sjallar sem eru à mòti þvì aðrir fà lìka meiri peninga.
Like · Reply · 3 · 20h
 
Sigrún Katrín Kristjánsdóttir
Milljarðamæringur labbar inná bar. Og við það hækka meðallaun allra þar inni í 100 millur á mánuði.
Like · Reply · 6 · 19h
 
Kristján Kristinsson
Nú væri gaman að vita hvað Páll Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari við Fjölbrautaskólann í Garðabæ og þar að leiðandi ríkisstarfsmaður, er með í laun. Koma svo.
Like · Reply · 5 · 19h
 
Hjalti Gardarsson
Ástæðan fyrir hærri heidarlaunum ljósmæðra er vaktavinna Páll Vilhjálmsson. Ég neita að trúa því að þú sért svona stjarnfræðilega vitlaus að vera að bera saman dagvinnulaun ASÍ félaga og vaktavinnulaun ljósmæðra. Ég trúi því frekar að þú sért svona illa innrættur. Berðu saman grunnlaun, þá færðu réttan samanburð fólið þitt.
Like · Reply · 17 · 19h
 
Helga Dögg Sverrisdóttir
Heildarlaun ljósmæðra helgast líka af aukavinnu sem þær fá margfalt betur borgaða en hefðbundin vakt. Margar heilbrigðisstéttir geta leyft sér að vera í lægra vinnuhlutfalli )60-80%) og tekið aukavaktir þar til 100% starfi er náð. Launin hækka töluvert við það.
Like · Reply · 2 · 19h
 
Hjalti Gardarsson
Í launasamanburði á aldrei að tala um meðallaun eða heildarlaun. Það á að tala um grunnlaun. Annars er alktaf verið að bera saman epli og appelsínur.
Like · Reply · 11 · 18h
 
Sigrun Haraldsdottir
Helga Dögg Sverrisdóttir aukavaktirnar eru væntanlega ekki “margfalt” betur borgaðar. 100% er tvöföld tímalaun, ekki margföld. En eins og Hjalti bendir á eru það grunnlaun sem á að bera saman ekki heildarlaun. Það hlýtur þú að vita sem gamall formaður sjúkraliða á norðurlandi
Like · Reply · 6 · 18h
 
Stefán Kristvinsson
í alvöru... er virkilega einhver að vitna í öfgamanninn Palla Vill ?
Like · Reply · 7 · 18h · Edited
 
Olgeir Andresson
Palli vaknar einn daginn upp við að engin er til í heiminum nema hann, hann gengur um borgina og gerir allt sem hann langar til að gera því engin getur skammað hann eða þvælst fyrir honum. En er gaman að gera skemmtilega hluti þegar engin er með þér ? Höfundur: Jens Sigsgaard .... Núna er Palli orðin stór strákur og er enn einn.
Like · Reply · 1 · 18h
 
Anna Margrét Guðbjartsdóttir
Stend með ljósmæðrum
Like · Reply · 3 · 17h
 
Kristján Birnir Ívansson
Ljósmóðirinn sem tók á móti Páli á sínum tíma hlítur að sjá eftir því í dag.
Like · Reply · 6 · 17h
 
Adda Sigurjóns
Þannig að ég sem leikskólakennari á þá bara að halda kjafti og berjast ekkert fyrir hærri launum svona úr því að ég fékk háskólanámið mitt hér á Íslandi Páll Vilhjálmsson? Og ég vildi óska þess að fólk hætti að tala um meðallaun ljósmæðra og annarra vaktavinnustarfsmanna út frá allri yfirvinnunni og stórhátíðarálaginu, það á að tala um grunnlaun í kjarabaráttu. Alltaf.
Like · Reply · 4 · 17h
 
Guðríður Magnúsdóttir
Hver ætli seu meðallaun þingmanna og ráðherrana og þá skulum við tiltaka og reikna allt inní. allar gjafir frá ríkinu, alla styrki (hús og bíl),tína allt til, því það erum við öll sem borgum það líka eins og laun ríkisstarfsmanna
Like · Reply · 2 · 15h
 
Kristján Hafberg Elínarson
Æ af hverju Páll Vilhjálmsson sem myndi mótmæla betra veðri i sumar bara til að fara i taugarnar á Íslendingum.
Like · Reply · 1 · 15h
 
Gestur Logi
Sammála Páli, þetta er eiginlega hætt að vera fyndið þessar glórulausu launakröfur í ljósmæðrum, og hvernig stendur á því að það þurfi margra ára sérfræðinám til þess að taka á móti börnum? Það á bara að bæta við nokkrum ljósmæðrakúrsum í hjúkkunámið (án þess að lengja það nám), það er hvort sem er alltaf kallað á lækni ef eitthvað kemur upp á í fæðingunni, þar endar ábyrgð ljósmóðurinnar væntanlega og hún á þess vegna ekki að vera á einhverjum ofurlaunum ef það þarf alltaf að kalla á lækni þegar hætta steðjar að.
Like · Reply · 1 · 12h · Edited
 
Hjalti Gardarsson
Ef þú sem felur þig bak við þennan uppdiktaða karakter værir ekki svona greindarskertur, þá myndirðu vita það að Ísland er með lægstu tíðni burðarmáls-, nýbura- og ungbarnadauða í heiminum. Og vegna þessarar heimsku þinnar þá veistu heldur ekki að það er ekki út af einhverri tilviljun. Svo undirstrikarðu flónsku þína með því að halda að aðalstarf ljósmóður sé að taka á móti börnum við fæðingu.
Reply · 8h
 
Gunna Jóh
Hjalti Gardarsson og þú ert líklega nógu vel gefin til að geta dæmt um vit manns út frá einu kommenti sem lýsir skoðun hans
Reply · 4h
 
Gestur Logi
Hjalti Gardarsson Orð eins og "heimska", "greindarskortur", "flónska" eru ein og sér mjög heimskuleg rök hjá þér. Fólk má hafa aðrar skoðanir en þú hvort sem þér líkar það betur eða verr. Það ert þú sem ert mesti hálfvitinn hérna. Það er fullt af fólki sem blöskrar þessar launakröfur ljósmæðra. Einnig finnst mörgum þetta viðbótarnám til þess að öðlast ljósmæðraréttindi fáránlega langt. Já og hvað annað er það sem ljósmæður gera (fyrir utan það að taka á móti börnum) sem þarfnast margra ára sérfræðimenntunar? Komdu með dæmi.
Reply · 4h · Edited
 
Steinar Immanuel Sörensson
ég á nú ekki orð yfir þessum pistli hjá Páli, ekki myndi ég vilja að þessi maður kenndi börnunum mínum
Like · Reply · 7h
 
Viðar Pétursson
Auðvitað er fúlasti maður íslands á móti.
Like · Reply · 1 · 7h
 
Arnar Guðmundsson
Undarlegt að nefna að sumir fá svo sannarlega fáránlegar launahækkanir gegn um kjararáð og telja það svo einhver rök fyrir því að aðrir, svo sem ljósmæður, eigi að fá meiri hækkun en aðrir hafa fengið. - Það tala þó margir þannig að ljósmæður eigi að verða Ljósmæður sérhagsmuna.
Like · Reply · 7h
 
Kristinn Jonsson
Hlustar einhver á þennan Palla lengur . Þetta er bara eitt ropið hjá athyglisjúkum manninum
Like · Reply · 7h
 
Sigþór Guðjónsson
Þetta mál snýst ekki um að halda með KR eða Val þetta er ekki stöðukeppni þetta snýst um líf og limi ungbarna og mæðra þeirra ef einhver hefur misst botninn úr málefninu !
Like · Reply · 5h
 
Gylfi Viðar Ægisson
Ljósmæðrunum legg ég lið
LEGG ÁHERSLU Á ÞAÐ RÍKA
Almenning ég allan bið
að standa með þeim líka

Gylfi Ægisson.
Like · Reply · 5h
 
Stefanía H. Sigurðardóttir
Páll hefur líklega ekki séð launaseðla ljósmæðra sem þurfa að auki að kaupa dýrar tryggingar vegna vinnu sinnar.
Like · Reply · 4h
 
 

Trump og ættarsamfélagið

Donald Trump lagði Evrópu og Bretland að fótum sér, eða fótumtróð hvort tveggja, fer eftir sjónarhorni. Bandaríkjaforseti er afurð vinstrimenningar frá hippatímanum, skrifar Guardian:

afstæðishyggja vex upp úr menningarstríðinu á sjötta áratugnum. Nýja vinstrið tók afstæðishyggjuna upp á sína arma til að afhjúpa vestræna fordóma karllægrar borgarastéttar. Einnig af háskólafólki sem boðaði póstmódernisma er hélt því fram að almenn sannindi væru ekki til, aðeins sértæk sannindi sem voru menningarlega og félagslega skilgreind. Lýðhyggjumenn til hægri rændu afstæðishyggjunni og gerðu að sinni.

Og afleiðingin varð Trump, samkvæmt þessari greiningu, sem er vel að merkja ekki ný af nálinni.

Ofanritað er engilsaxneskt sjónarhorn á Trump. Í þýskum menningarheimi eru blæbrigðin önnur. Der Spiegel segir:

Óvinur er orð gamla heimsins. Í stríðum eru óvinir, í kalda stríðinu var óvinátta milli austurs og vesturs. Innan vesturhlutans var slík tilfinning óhugsandi. Þar ríkti vinátta í öllum deilumálum. Trump er maður gamla heimsins og því miður er hann oft heltekinn af forneskjulegum tilfinningum. Heift, hatur og andúð; allt verður honum spurning um heiður. Í nýja heiminum gerir Trump allt öfugt. Hann fer með fjandskap gegn vinum, einkum Þýskalandi. Í hermálum, viðskiptum, Íran-samkomulaginu og gasviðskiptum við Rússland treður Trump illsakir við Þýskaland, einkum með gemsanum.

Mat Þjóðverja á Trump helgast af þýskum hagsmunum, eðlilega. Allt frá lokum nasisma eru Bandaríkin lýðræðisleg kjölfesta Þýskalands. Þýskir sakna vinar og viðskiptafélaga.

Sameiginlegt þýskri og engilsaxneskri greiningu á Trump er að með honum verður pólitík persónuleg. Minn heiður, mínar staðreyndir, mitt sjónarhorn. 

Rómverjar kynntu til sögunnar ,,res publica", vettvang almennings, þar sem meginreglur giltu en ekki persónulegur geðþótti. Áður en ,,res publica" fékk vægi í vestrænni stjórnmálamenningu réð ferðinni hugmyndakerfi ættarsamfélagsins.

Í ættarsamfélaginu er heiður einstaklings og fjölskyldu í fyrirrúmi. Íslendingasögurnar geyma minni frá þessum tíma um stolt, sóma og blóðhefndir. Ílíonskviða Hómers er um reiði Akkillesar eftir móðgun Agamemnons.

Trump er endurkoma stjórnmála ættarsamfélagsins. Við skyldum velja ætt okkar af kostgæfni.

 


mbl.is Heimsókn Trump er lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. júlí 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband