Illgjarnir þingmenn og einelti Stundarinnar

Stundin notar harðvítuga forræðisdeilu til að koma höggi á félagsmálaráðherra. Þingmenn Pírata eru í samvinnu við Stundina að gera höggið sem þyngst. Í kjölfarið kemur bloggher Samfylkingar og krefst afsagnar ráðherra - gagngert til að veikja ríkisstjórnina.

Stundin kemur upp um sig þegar í inngangi fréttarinnar af forræðisdeilunni þar sem ásakanir um kynferðislega misnotkun föður er í fyrirsögn. Í inngangi segir: 

Bragi Guðbrandsson hjá Barnaverndarstofu beitti sér fyrir því að prestssonur fengi að umgangast dætur sínar sem hann var grunaður um að misnota. Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra vissi allt en hélt málinu leyndu fyrir Alþingi.

Með leyfi: hvernig getur félagsmálaráðherra ,,vitað allt" um heiftarlegar deilur skilnaðarhjóna um forræði barna? Er ráðherra með aðgang að einkalífi fólks?

Stundin notar lævíst og villandi orðalag til að gera hlut fóðursins sem verstan. Þegar föðurfjölskyldan óskar eftir umgengni við börnin vegna dauðvona ömmu þeirra heitir það í texta Stundarinnar að forstjóri Barnaverndarstofu ,,hafi hlutast til um framgang málsins hjá barnavernd af greiðasemi við fólk sem hann vorkenndi vegna veikinda." Stundin dregur upp þá mynd að embættismaður hafi fallið fyrir veikindavæli föðurfjölskyldunnar svo að perra-pabbinn kæmist í tæri við dætur sínar. En, sum sé, amman var dauðvona en ekki með kvef.

Undirþemu Stundarinnar, prestar-eru-perrar, er haldið lifandi í frásögninni með samsæriskenningum um að vel tengdir prestar skáki í skjóli sambanda við valdhafa til að hylma yfir óþokkaverk.  

Allir eldri en tvævetra vita að í forræðisdeilum er öllum brögðum beitt þegar fyrrum hjón/sambúðarfólk deilir um umgengni við börnin. Þess vegna fer ekki vel á því að forræðisdeilur séu reknar í fjölmiðlum.

Ritstjórn Stundarinnar veit upp á sig sökina. Leiðari ritstjórans, Ingibjargar Daggar Kjartansdóttur, sem sjálf er skilnaðarbarn, er óbein viðurkenning á hve hálum ís Stundin skautar. Leiðarinn segir efnislega að ef grunur vaknar um misnotkun barna eigi að afhausa þann grunaða - helst opinberlega. Málflutningur sem gefur sér að grunur jafngildi sekt er í stíl við galdrabrennublaðamennsku Stundarinnar. Sálfræðilegt álitamál er hvort Ingibjörg Dögg sé í tilvistarangist sem skilnaðarbarn. Eitt er víst: dómgreindin, sú litla sem ritstjórinn kann að eiga, var í pásu þegar leiðarinn var skrifaður.

Verstur er þó hlutur þingmanna Pírata. Þeir ganga fram með djöfulmóð til að slá pólitískar keilur í fjölskylduharmleik. Ekkert barn, misnotað eða ekki, mun hafa nokkurn hag af málflutningi Stundarinnar og Pírata.

Fjölskylduharmleikir, hvort heldur kynferðisleg misnotkun kemur við sögu eða ekki, eiga sinn vettvang. Sá vettvangur er hvorki sirkusinn við Austurvöll né galdrabrennublaðamennska Stundarinnar. 

  

 


mbl.is „Ég er ekki kunningi Braga“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. apríl 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband