Dagskrárvald Samfylkingar og Pírata - með aðstoð RÚV

Samfylking og Píratar eru samstíga í tilraunum til að lama alþingi. Jón Þór pírati viðurkennir að baráttan sé um dagskrárvaldið á alþingi.

Helga Vala Helgadóttir Samfylkingarþingmaður kallar eftir því að umboðsmaður alþingis komi til liðs við stjórnarandstöðuna í baráttunni um dagskrárvaldið. Yfirráðin yfir dagskrárvaldinu skal nota til að flæma dómsmálaráðherra úr embætti.

Fyrir í liði stjórnarandstöðunnar er RÚV sem birtir fréttir um að ,,komi dómsmálaráðherra illa út" í umræðunni skuli ráðherra víkja. Dagskrárvaldið í umræðunni utan alþingis er stórum hluta hjá RÚV, sem dælir hlutdrægum fréttum yfir landslýð í útvarpi, sjónvarpi og á netinu allan sólarhringinn alla daga ársins.


mbl.is Nefndin íhugar að hleypa umboðsmanni að
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kennarar í stríði, bæði innbyrðis og við samfélagið

Aðeins einn kennari af 11 manna stjórn og samninganefnd félags grunnskólakennara (FG) gefur kost á sér til áframhaldandi starfa. Þetta má lesa með samanburði á núverandi stjórn og samninganefnd annars vegar og hins vegar framboðslista.

Ástæðan fyrir atgervisflótta trúnaðarmanna kennara er að uppreisnarhópur innan FG tók völdin, fyrst með kjöri Ragnars Þórs Péturssonar til formanns KÍ og síðan með formannskjöri Þorgerðar Laufeyjar Diðriksdóttur í FG. Þorgerður Laufey setti kjaraviðræður kennara í uppnám daginn sem hún var kjörinn formaður með yfirlýsingu í Kastljósi um að kennarar vildu launahækkun en vinna minna í skólum.

Þegar Ragnar Þór Pétursson var kjörinn formaður KÍ í haust lýsti sitjandi stjórn KÍ yfir vantrausti á hann vegna ásakana um að hann hefði brotið gegn barni sem kennari á Tálknafirði.

Ragnar Þór og Þorgerður Laufey eru í uppreisnarliði sem elur á óánægju innan raða kennara í einn stað og í annan stað setur fram fullkomlega óraunhæfar kröfur, eins og að fá kaup til að vera heima. Í almennu verkalýðshreyfingunni er litið til kennarasamtakanna sem fyrirmyndar um að velta úr sessi sitjandi forystu. Það er hægt að hugsa sér betri fyrirmyndir.


Bloggfærslur 4. febrúar 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband