Solla í stöðnun, Kata í nýsköpun

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir leiddi Samfylkinguna til ríkisstjórnarsamstarfs við Sjálfstæðisflokk árið 2007. Samstarfið átti að sýna að Samfylkingin væri stjórntæk, vafi lék á. Samið var um stöðnun. Sjálfstæðisflokkur stjórnaði í anda nýfrjálshyggju og Samfó dinglaði með án nokkurs pólitísks framlags.

Hrunið 2008 batt endi á tálsýnina að Samfylkingin væri stjórntæk. Flokkurinn fylltist mikilmennskubrjálæði og krafðist þess að móðurflokkur íslenskra stjórnmála, Sjálfstæðisflokkur, tæki að sér að gera landið að hjálendu ESB. Í framhaldi sprengdi Samfylkingin ríkisstjórnina.

Þegar Katrín Jakobsdóttir tók Vinstri græna í stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar fyrir rúmu ári stóð valið á milli stjórnar eða varanlegrar stjórnarkreppu. Katrín gerði kröfur, fékk t.a.m. forsætisráðuneytið, sem Ingibjörg Sólrún gat ekki látið sig dreyma um.

Katrín segist líta á samstarfið sem pólitísk nýsköpun. 

Það má velta fyrir sér, í ljósi sögunnar, hvers vegna aldrei kom til tals að kenna samstjórn krata og frjálshyggjumanna 2007 við framþróun. Sögulega gætu dómsorðin um stjórnarmyndunina 2007 orðið þau að þar mættust pólitískar stefnur, alþjóðlegur kratismi og kreddufrjálshyggja, sem báðar voru komnar vel fram yfir síðasta söludag. 

 

 

 


Heimsveldið hikandi og hnignun alþjóðavæðingar

Bandaríkin bera uppi alþjóðavæðinguna eftir seinna stríð. Hervald og efnahagsmáttur Bandaríkjanna skóp alþjóðastofnanir eins og Nató, Alþjóðabankann og Evrópusambandið. 

Fyrstu áratugina eftir stríð var alþjóðakerfið vestrænn valkostur við kommúnismann í austri. Eftir að Sovétríkin féll fyrir bráðum 30 árum átti eitt og sama sniðmátið að gilda fyrir alla heimsbyggðina.

Innrásin í Írak 2003 var prufukeyrsla á sniðmátinu. Innrásin mistókst. Þrátt fyrir efnahagslega og hernaðarlega yfirburði urðu Bandaríkin að játa sig sigruð.

Reynt var að fela mistökin með því að kalla alþjóðavæðinguna stríð gegn Ríki íslams. Þar eru endaskipti höfð á sannleikanum. Innrásin kom fyrst, Ríki íslams á eftir. Á meðan Hussein stjórnaði Írak og Assad öllu Sýrlandi var ekkert Ríki íslams.

Þeir fimm þúsund hermenn sem enn dvelja í Írak eru meira til sýnis en að þeir skipti einhverju máli.

Á meðan Bandaríkin voru valkostur við Sovétríkin voru þau trúverðugur oddviti vestrænna gilda andspænis kommúnisma, sem vel að merkja, er vestrænn. Andspænis trúarmenningu múslíma eru Bandaríkin ekki valkostur. Vestræn pólitísk menning er ekki sú útflutningsvara sem menn héldu hana vera. 

 


mbl.is Bandaríkin ekki lengur „lögga“ heimsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. desember 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband