Mánudagur, 29. október 2018
Skilgreiningu á lofthita breytt í þágu hjávísinda
Stofnun Sameinuðu þjóðanna, IPCC, er miðstöð þeirra hjávísinda sem gefa sér að maðurinn valdi loftslagsbreytingum, t.d. með brennslu jarðefnaeldsneytis.
IPCC breytti nýverið skilgreiningu sinni á lofthita. Nýja skilgreiningin tekur mið af því hvernig lofthitinn verður næstu 15 árin, já, segi og skrifa framtíðarhiti, í samanburði við nýliðin 15 ár.
Vitanlega veit enginn hvert hitastigið á jörðinni verður í framtíðinni. IPCC stendur heldur ekki fyrir vísindarannsóknir heldur er þetta áróðursmiðstöð fyrir gefna niðurstöðu.
Hjávísindi eru skilgreind á Vísindavefnum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 29. október 2018
Breki stofnar stjórnmálaflokk
Nýr formaður Neytendasamtakanna, Breki Karlsson, tilkynnir á fyrsta degi í starfi að stjórnmálaflokkur hafi orðið til með kjöri hans í embætti.
Nýi flokkurinn er til höfuðs krónunni. Óvíst er hvort Neytendaflokkurinn halli sér að dollar, evru eða myntkörfu.
Neytendaflokkurinn er í ágætis færum að fá mann á alþingi. Þar eru ekki nema sjö flokkar og auðvitað þurfum við fleiri.
Krónan minnir á skopparakringlu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 29. október 2018
Blaðamenn fá falleinkunn
Stjórnmálamenn eru í návígi við blaðamenn, oft heimildir frétta og þekkja til baksviðs þeirra málefna sem verða að fréttum.
Stjórnmálamenn gefa blaðamönnum og fjölmiðlum falleinkunn, samkvæmt rannsókn Birgis Guðmundssonar, dósents við félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri.
Niðurstaðan kemur ekki á óvart. Blaðamenn eru iðulega ekki hótinu betri en þeir sem slengja fram illa ígrunduðum og órannsökuðum fullyrðingum á samfélagsmiðlum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 29. október 2018
ASÍ er auðvaldið
Lífeyrissjóðir ráða ferðinni í stærstu fyrirtækjum landsins. Verkalýðshreyfingin stýrir lífeyrissjóðum til jafns við atvinnurekendur. Stjórnir fyrirtækja ákveða laun æðstu stjórnenda. Eftirfarandi tillaga var samþykkti á nýafstöðnu ASÍ-þingi:
að hafna ofurbónusum og óhóflegum arðgreiðslum til fyrirtækjaeigenda og að fulltrúar launþega í lífeyrissjóðunum ynnu í samræmi við stefnu verkalýðshreyfingarinnar. Samtökin vilja að stjórnarmenn lífeyrissjóða beiti sér fyrir því að starfsfólk fyrirtækja njóti arðsemi ekki síður en hluthafarnir.
Auðvaldið er sem sagt ASÍ og það er örlátt á bónusa og arð en lætur naumhyggju ráða í launum almennra starfsmanna.
Ný forysta ASÍ auðvaldsins hlýtur að taka til hendinni í stjórn stærstu fyrirtækja landsins og gefa þar með tóninn fyrir annan atvinnurekstur. Þegar kemur að kjarasamningum eru ASÍ félögin að stórum hluta að semja fyrirtæki í eigu launþega. Það ætti ekki að vera flókið.
Telur jafnvægi í forystu ASÍ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)