Sunnudagur, 28. október 2018
Eru 1,3 milljónir kr. ofurlaun?
,,95% launþega í landinu eru með 1,3 milljónir á mánuði eða minna," segir í viðtengdri frétt. Hagstofan segir okkur að meðalheildarlaun á Íslandi á síðasta ári voru 706 þús. kr. á mánuði.
Það liggur í augum uppi að við getum ekki kallað það ofurlaun sem ekki ná tvöföldum meðallaunum.
Tilfinningaþrungin umræða um meint launamisrétti er ekki byggð á staðreyndum heldur ýkjum og ósannindum.
Gæti orðið erfitt að lenda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 28. október 2018
Trump og orðheldinn skáldskapur
Trump er gagnrýndur af forvera sínum, Obama, fyrir skáldskap um fyrirætlanir sínar, t.d. skattalækkun á millistéttina. Aðrir gagnrýnendur Trump, Washington Post til að mynda, segja sitjandi forseta þann orðheldnasta í seinni tíma sögu Bandaríkjanna.
Ósannindi eru fylgifiskur stjórnmála, um það eru bæði gömul dæmi og ný. En það sker í augu að einni og sami stjórnmálamaðurinn er gagnrýndur bæði fyrir að ljúga og halda orð sín.
Ef farin er leið málamiðlunar, og sagt að Trump fari ýmist með sannindi eða ósannindi, svona eftir hvernig stendur á, er hann orðinn að venjulegum stjórnmálamanni. Hvert er þá vandamálið?
Obama hneykslast mjög á Trump | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)