Mánudagur, 22. október 2018
Vegurinn, sannleikurinn og nýja verkó
Sósíalistarnir sem yfirtaka verkalýðshreyfinguna eru sértrúarsöfnuður með einn sannleika. Orðfærið er beint upp úr byltingarbókmenntum 19. aldar:
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hjólar í Hörð Ægisson, ritstjóra Markaðarins, í pistli sem hún birtir á Facebook nú í kvöld, en þar segir hún leiðara Harðar í Fréttablaðinu á föstudaginn lýsa sturlaðri stemmningu í herbúðum óvina vinnandi stétta. Segir hún að í pistli sínum hafi Hörður reynt að kúga vinnandi fólk til hlýðni með sjúkri og viðbjóðslegri orðræðu þar sem tilgangurinn sé að skelfa fólk til hlýðni.
Sértrúasöfnuður sósíalista vill gera verkalýðshreyfinguna að framfærslufélagi. Launþegar eiga ekkert sameiginlegt með nýju verkó.
Breytingar keyrðar áfram af mannvonsku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 22. október 2018
RÚV: Darwin hafði rangt fyrir sér
Þróunarkenning Darwin liggur til grundvallar skilningi okkar á þróun lífs á jörðinni. Án kenningarinnar verður óskiljanlegt hvernig eitt lífsform leysti annað af hólmi í jarðsögunni sem telur um 4,5 milljarða ára.
Í upplýstri umræðu er þróunarkenningin tekin sem gefin. RÚV stimplar sig úr upplýstri umræðu þegar stofnunin gengur að því vísu að kynin séu fleiri en tvö. Fyrirsögnin ,,Breyta skilgreiningu á kynjum" er á frétt um að bandarísk heilbrigðisyfirvöld staðfesti að kynin séu aðeins tvö.
Í meðförum RÚV eru þau hversdagssannindi, að kynin séu aðeins tvö, gerð tortryggileg. Og auðvitað er það Trump að kenna.
Þegar RÚV er á annað borð komið út í móa í vitsmunalegri umræðu mætti kannski rukka stofnunina um hve kynin eru mörg. Og í leiðinni spyrja hvaða rétttrúnaðarlíffræði er stunduð á Efstaleiti núna þegar Darwin hefur verið úthýst.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)