Jón Karl tapaði fyrir krónunni

Jón Karl Ólafsson er einn af þessum laumu ESB-sinnum sem notaði hvert tækifæri til að tala niður fullveldið og krónuna.

Árið 2008 sagði Jón Karl að krónan yrði ekki til eftir áratug. Nú eru tíu ár liðin, krónan við hestaheilsu og ESB-menn afhjúpaðir sem loddarar.

En Jón Karl hyggur á pólitískan frama, þó ekki innan Viðreisnar, heldur sjálfum móðurflokknum. Játning á fyrri yfirsjónum og loforð um betrun er við hæfi. Annars kemur enginn frami.


mbl.is Jón Karl að hugsa málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Churchill: bjargvættur eða rasisti?

Winston Churchill bjargaði bresku þjóðinni og líklega evrópsku lýðræði örlagadaga vorið 1940. Herir Hitlers réðu allri Mið- og Vestur-Evrópu, allt frá Noregi til Miðjarðarhafsstrandar Frakklands. Spán og Ítalíu sátu fasistarnir Franco og Mussolini. Póllandi var skipt milli Þýskalands og Sovétríkjanna.

Nær allt meginland Evrópu var sem sagt ýmist undir fasisma eða kommúnisma vorið 1940. Eftir ófarir breska hersins í Frakklandi og flótta frá Dunkirk mæltu öll rök með því að Bretar gerðu friðarsamninga við Hitler og gæfu honum þar með frjálsar hendur í austri, til að vinna Þjóðverjum lebensraum, lífsrými.

Winston Churchill var hornkerling breskra stjórnmála vorið 1940, þótti aflóga drykkfellt gamalmenni og stríðsæsingamaður. Stórkostlegt dómgreindarleysi þáverandi forsætisráðherra, Neville Chamberlain, sem gerði friðarsamninga við Hitler og Mussolini síðsumars 1939, gaf Churchill tækifæri til að verða forsætisráðherra. En það stóð tæpt.

Churchill reis undir ábyrgðinni, neitaði að gefast upp fyrir fasisma, byggði brú til Bandríkjanna í gegnum Ísland og bjargaði bæði Bretum og Evrópu frá Hitler og nasisma. Í stríðslok var Churchill ásamt Roosevelt Bandaríkjaforseta og Stalín í Sovétríkjunum þríeykið sem var með öll ráð heimsins í hendi sér.

En Churchill var líka rasisti. Honum er með réttu borið á brýn að fyrirlíta aðra kynþætti en þann hvíta. Hann er jafnvel sagður bera ábyrgð á hugurdauða 2 til 3 milljóna Indverja.

Ian Jack dálkahöfundur vinstriútgáfunnar Guardian ræðir arfleifð breska heimsveldisins og kemur inn á þátt Churchill. Bæði Bretar og ekki síður fyrrum nýlenduþegnar þeirra eiga erfitt með að gera upp hug sinn gagnvart nýlendusögunni. Andstæðir pólar eru að nýlenduveldi Breta hafi verið menningarauki annars vegar og hins vegar rányrkja með skipulögðum manndrápum sem ívafi.

Bandaríkin, sem voru nýlenda Breta til 1776, eru ekki hluti af deilunni um arfleifð heimsveldisins. Það gefur til kynna að deilan snýst ekki um söguna heldur pólitískan samtíma. Eins og raunar öll saga gerir, aðeins í mismiklum mæli.

Var Churchill bjargvættur vestræns lýðræðis eða rasisti? Hann var hvorttveggja. Var hann góður maður eða vondur? Bæði og, eins og fólk er flest. Var hann stórmenni? Já, tvímælalaust.


Bloggfærslur 6. janúar 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband