Uppreisn æru á Bessastöðum

Forseti Íslands veitir mönnum ,,uppreist æru". Dæmi eru um að forsetinn láti rannsaka mál sem honum þykir tvísýnt um.

Á morgun, þegar formenn stjórnmálaflokkanna heimsækja forsetann, hlýtur uppreisn æru að vera mál málanna enda boðað til kosninga vegna laga um æru dæmdra manna.

Fjölmiðlar, með RÚV í fararbroddi, verða að líkum á tröppum Bessastaða og spyrja mann og annan um ærumál. Ekki síst æruverðugan forseta lýðveldisins.


mbl.is Formenn boðaðir á fund forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni sigurvegari: ábyrgð eða óreiða

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra flutti blaðlaust merkilegustu stjórnmálaræðuna á Íslandi eftir hrun. Valið stendur milli þess hvort landinu sé stjórnað eða að óreiða ríki í landsstjórninni.

Í nóvember verður þjóðin spurð hvort hún vilji ábyrgð eða óreiðu.

Sjálfstæðisflokkurinn er fyrsti kostur til að tryggja ábyrga landsstjórn.


mbl.is Bjarni fundar með Guðna á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Framsókn sveitaútgáfa BF?

Það er kallað eftir ábyrgð í landsmálum. Dómgreindarlausir þingmenn taka ákvörðun á næturfundi að sprengja ríkisstjórnina. Valið stendur um hér starfi ríkisstjórn eða óreiðuöfl nái yfirhöndinni.

Í þeim ljóta leik ætlar Framsóknarflokkurinn sér varla að vera landsbyggðarútgáfa Bjartar framtíðar. Eða er það tilfellið?

Framsókn á leik. Kostirnir eru tveir. Axla ábyrgð eða ganga í lið óreiðuaflanna.


mbl.is Einhugur innan Framsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningar í nóvember

Eðlilegast er að kjósa til alþingis um miðjan nóvember. Stjórnmálaflokkar hefðu mánuð til að setja saman framboðslista og annar mánuður færi í kosningabaráttu.

Ákvörðun um kosningar eru skýr og ótvíræð skilaboð um hvaða afleiðingar dómgreindarbrestur hefur í stjórnmálum.

Litlar líkur eru á að heybrækurnar á alþingi komi sér saman um nýja meirihlutastjórn í dag eða á morgun. Þjóðin þarf að sjá og fá sig fullsadda af þeim fyrirbrigðum sem sitja þingið. Snöggar kosningar verða eins og refur í hænsnabúinu við Austurvöll.


mbl.is Flestir vilja kjósa strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjanghæ-RÚV: nú verður kosið um barnaníð

Sjanghæ-RÚV býður þjóðinni upp á kosningar um barnaníð þar sem fyrirfram er búið að stimpla stærsta flokk landsins sem hæli barnaníðinga.

Sjanghæ-fréttamennska RÚV snýst um að hirða mannorðið af fólki í beinni útsendingu. RÚV vitnar til nafnlausra heimilda og segir þær nægja til vega mann og annan í beinni. Engin leyndarhyggja þar, allt upp á borðinu eða þannig.

Fyrirsjáanleg kosningabarátta mun slá allt út í pólitískum fáránleika sem þjóðinni hefur verið boðið upp á. Og er þá langt til jafnað.

 


mbl.is Bjarni í mjög erfiðri stöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjúk umræða, geðveik niðurstaða

RÚV gerir föður forsætisráherra ábyrgan fyrir barnaníði. Benedikt hafði gert það eitt að skrifa upp á meðmælabréf manns sem hafði tekið út sína refsingu, þ.e. borgað sína skuld við samfélagið. Í kjölfarið kemur Egill Helgason og segir að meðmæli með dæmdum manni sé allt annað og meira en að skrifa upp á víxil.

Ef maður skrifar upp á víxil fyrir einhvern er maður ábyrgur fyrir skuldinni sem er mæld í peningum en ekki persónueinkennum skuldara. Benedikt Sveinsson verður ekki ábyrgur fyrir gjörðum lögráða manns þótt hann mæli með að hann fái uppreisn æru. Enn langsóttara er að Benedikt sé ábyrgur fyrir afbrotum sem Hjalti Sigurjón Hauksson er búinn að taka út refsingu fyrir.

En eins og annar RÚV-ari segir blygðunarlaust: Sjálfstæðisflokkurinn ber ábyrgð á barnaníði og verður að fara úr ríkisstjórn.

Þessi umræða er sjúk og niðurstaðan er geðveik; ríkisstjórnin er fallin.

Sjúklingarnir vilja yfirtaka geðdeildina. Góða fólkið þrammar nú til Bessastaða og heimtar að forsetinn, sem veitti barnaníðingum uppreisn æru á færibandi, skipi forystufólk sjúklinganna í landsstjórnina. Það verður fyrsta ríkisstjórn virkra í athugasemdum.

 


mbl.is „Ekki lengra gengið að sinni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. september 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband