Hælisleitendur: 3 milljarðar í umframkeyrslu - lausnin er einföld

Hælisleitendur kosta skattborgarana um 5 til 6 milljarða króna á ári, þar af eru 3 milljarðar umfram áætlanir.

Hælisleitendur koma til Íslands í flugvélum. Til Evrópu kemur enginn í flugvél, heldur á mandrápsfleytum yfir Miðjarðarhaf. Hvers vegna? Jú, í Evrópu gildir tilskipun um að flugfélög beri ábyrgð á farþegum sínum. Flugfélögin flytja þess vegna ekki hælisleitendur.

Við gætum tekið upp með einföldum hætti reglur sem gilda í Evrópu. Ef áhugi er fyrir viðtöku hælisleitenda er hægt að auglýsa að sendiráð Íslands tækju við umsóknum. Enginn hælisleitandi kæmi til landsins nema að hafa verið áður samþykktur.

Það þjónar hvorki hagsmunum samfélagsins né hælisleitenda að þeir séu í óvissu hér á landi um sín mál.


mbl.is Geti afgreitt umsóknir samdægurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskir álfar á Írlandi

Álfatrú þekkist á Íslandi. Dæmi eru um að vegastæðum hafi verið breytt vegna álfabyggða. Kenningin er að álfatrú sé úr heiðni, trú á vætti var römm hér í eina tíð.

En Írland, sem lítt skartaði heiðni, var orðið kristið löngu áður en heiðnir menn norræni tóku að herja á eyjuna grænu, virðist einnig hneigt til álfatrúar.

Guardian segir frá írskum þingmann sem telur skýringar á dularfullum vegaskemmdum þær að vegurinn liggur yfir álfabyggð. Merkilegt að írskir og íslenskir álfar eiga það sameiginlegt að vegir eru gjarnan lagðir yfir byggð þeirra.


Múslímskur rasismi: níðst á hvítum stúlkum

Hópur múslímskra karlmanna frá Pakistan og Bangladess níddist á hundruðum hvítra stúlkna. Þingmenn á breska þinginu krefjast þess að refsing mannanna verði þyngd og tekið mið af því að afbrotin eru kynþáttaníð - rasismi.

Afbrotamennirnir voru allir múslímar en fórnarlömbin hvítar stúlkur.

Frétt mbl.is, sem byggð er á frétt BBC, getur hvorki uppruna mannanna né fórnarlambanna. Hversu langt getur pólitískur rétttrúnaður gengið?


mbl.is Níddust á hópi ungra stúlkna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. ágúst 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband