Grínistinn og n-orđiđ

Niggari er neikvćtt orđ um ţeldökka, sem einu sinni voru kallađir svertingjar, ţar áđur negrar, á tímabili afrískir-ameríkanar en núna oftast litađir. Í flokk litađra fara allir sem ekki eru hvítir á hörund, eins og hvítt sé ekki litur.

Bandarísk stjórnmálaumrćđa er ađ nokkrum hluta í höndum grínista, eins og víđa í vestrćnum heimi. Grínistinn Bill Maher er frjálslyndur og gagnrýninn á trú, bćđi kristna og múslímska. Hann er hvítur en kallađi sjálfan sig ,,heimilis-niggara" en ţađ orđ var notađ um ţeldökka sem unnu á heimilum hvítra á dögum ţrćlahalds, til ađgreiningar frá ţeim sem ţrćluđu á akrinum. ,,Heimilis-niggari" er tvöföld neikvćđni, vísar bćđi til hörundslitar međ gildishlöđnu orđalagi og hins ađ viđkomandi sé undirgefnari en hversdagslegur ţeldökkur á akrinum.

Krafist er ađ Bill Maher verđur sviptur vinnunni sem atvinnugrínisti hjá HBO. Niggari er orđ sem enginn sómakćr lćtur sér um munn fara í hálfkćringi. Ađeins er leyfilegt ađ rćđa orđiđ í samhengi viđ orđsifjafrćđi, líkt og hér er gert.

 


Vald međ lágstaf og óákveđnum greini

Valdiđ á Íslandi er ekki međ hástaf og ákveđnum greini. Valdinu er dreift á marga, bćđi einstaklinga, stofnanir og félagasamtök.

Ástráđur Haraldsson lögmađur ţekkir ólíka kima valdsins. Eins og margir ađrir valsar á hann milli einkareksturs og opinberra starfa og verđur ekki fátćkari fyrir bragđiđ.

En vitanlega hljómar ţađ mun betur ađ ,,lenda í slag viđ valdiđ" heldur en ađ horfast í augu viđ ađ stundum fćr mađur ekki allt sem mađur vill - jafnvel ţó mađur kunni öll versin í valdabraskinu.


mbl.is Ekki gaman ađ lenda í slag viđ valdiđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Stórar hugmyndir og sterkir leiđtogar

Evrópusambandiđ er stór hugmynd í tilvistarvanda, skrifar George Soros. Loftslagsvá af mannavöldum er önnur stór hugmynd í tilvistarvanda. Jafnvel varkár mađur eins og Joseph E. Stiglitz splćsir lífshćttu loftslagsváarinnar viđ ađra hugmynd í hćttu, sem er alţjóđhagkerfiđ.

Soros nefnir sterka leiđtoga ađalandstćđinga Evrópuhugmyndarinnar og ţeir eru allir forsetar; Pútín í Rússlandi, Erdogan í Tyrklandi, el-Sisi í Egyptalandi og Trump í Bandaríkjunum. Stiglitz nefnir ađeins einn, en sá er líklega sterkastur af ţeim sterku - Trump.

Tilvistarvandi stórra hugmynda er ekki bundinn viđ vesturlönd. Um 20 prósent jarđarbúa, 1,6 milljarđur múslíma, burđast međ hugmyndina um ađ spámađur á Arabíuskaga hafi á ármiđöldum fengiđ uppskrift af jarđlífinu frá guđi. Múslímar eiga enga sterka leiđtoga og vandrćđi ţeirra eru ţví meiri, samanber ástandiđ í miđausturlöndum.

Í nettengdum heimi, ţar sem ódćđi í Kabúl er stórfrétt í Reykjavík fáeinum augnablikum síđar, er eftirspurn eftir stórum hugmyndum sem útskýra heimsástandiđ. Fólk vill skilning á tilverunni og stórar hugmyndir ramma einstaka atburđi í heildstćđa mynd.

En ţađ er líka eftirspurn eftir sterkum leiđtogum sem líklegir eru til ađ breyta ófremdarástandi í eitthvađ bćrilegra.

Sameiginlegt sterku leiđtogunum, sem nefndir eru hér ađ ofan, er ađ ţeir standa ekki fyrir stórar hugmyndir. Pútín og Erdogan gćta rússneskra og tyrkneskra hagsmuna. El-Sisi valdar innanlandsástandiđ í Egyptalandi. Jafnvel Trump er ađeins međ takmarkađa hugmynd: make America great again.

Stórar hugmyndir ţurfa spámann. Án Jesú vćri kristni neđanmálsgrein í sífelldum ófriđi ćttbálka fyrir botni Miđjarđarhafs. Lenín og Stalín gerđu kommúnisma ađ heimshreyfingu. Litli mađurinn međ frímerkjaskeggiđ braut Evrópu undir eina hugmyndafrćđi fyrir miđja síđustu öld.

Viđ sitjum uppi međ stórar hugmyndir í lífshćttu, sterka leiđtoga en engan spámann. Ráđlegging Voltaire er nćrtćk, um ađ í viđsjálum heimi ćttum viđ ađ rćkta garđinn okkar. En minnumst ţess ađ Voltaire veitti ráđiđ í ađdraganda frönsku byltingarinnar.


Bloggfćrslur 3. júní 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband