Miðvikudagur, 24. maí 2017
Fjölmenning elur af sér hryðjuverk
Í skjóli fjölmenningar rækta múslímar um öll vesturlönd menningarkima sem í vaxandi mæli ala af sér hryðjuverkamenn. Vinstriútgáfan Guardian í Bretlandi finnur þennan samnefnara í samantekt um múslímska hryðjuverkamenn síðustu ára.
Niðurstaða Guardian er að hryðjuverkamennirnir eru ekki á mála tiltekinna samtaka öfgamúslíma heldur styðja þeir almennt íslamska hugmyndafræði, en kjarni hennar er að heimurinn skiptist í trúaða og vantrúaða.
Trúarmenning múslíma er samkvæmt greiningu Guardian rót þess vanda sem við er að glíma. Múslímar aðlagast ekki vestrænum siðum og háttum og ala með sér á andstyggð grunngildum vestrænnar menningar. Og það skýtur skökku við, svo ekki sé meira sagt, að vestrænar þjóðir bjóði heim þessum vandræðum.
Bróðir og faðir Abedis handteknir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 24. maí 2017
Svitabolur Benedikts
Svitabolur með evrutákni er stefna fjármálaráðherra í peningamálum þjóðarinnar. Skiljanlega er Benedikt sveittur yfir ástandinu; Viðreisn er fylgislaus, krónan sterkasti gjaldmiðill í heimi og evran í endalausum vandræðum.
Benedikt er þekktur fyrir sérstakan húmor, sem stundum skautar yfir í smekkleysi.
Pólitísk stefna á svitabol er aulabrandari sem hittir höfundinn sjálfan fyrir.
Var allt í þvotti hjá ráðherra? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 24. maí 2017
Sannfæring og sjálftekt: tveir formenn í vanda
Félagasamtök kjósa sér talsmenn sem búa að sannfæringakrafti, gildir bæði um Öryrkjabandalagið og Neytendasamtökin.
Einstaklingum með sterka sannfæringu hættir til ofmetnaðar, telja sig hafna yfir skráðar og óskráðar reglur.
Skráðar og óskráðar reglur eru límið í samfélaginu. Ef þær eru brotnar af einstaklingum sem sannfærðir eru um að eigið ágæti sé meira en annarra er komið út í ógöngur.
Fyrirframgreiðsla endurgreidd að fullu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 24. maí 2017
Mannkynið varð til í Evrópu
Nýjar rannsóknir færa upphaf mannsins til Evrópu frá Afríku. Til skamms tíma var talið að sameiginlegur forfaðir okkar tegundar, homo sapiens, og núlifandi apa kæmi frá Afríku. Aðskilnaður tegundanna hafi orðið fyrir um 7 milljónum ára.
Tveir steingervingar af formanni, sem fundust í Búlgaríu og Grikklandi, og eru 7,2 milljónir ára staðsetja upphaf tegundarinnar í Suður-Evrópu.
Týndi hlekkurinn er nefndur Graecopithecus freybergi, með viðurnefnið ,,sá gríski". Fái fundurinn staðfestingu í vísindasamfélaginu verður Grikkland bæði fæðingarstaður mannkyns og lýðræðis.
Grikkland í dag er marggjaldþrota land með örlög Evrópusambandsins í hendi sér. Sem minnir okkur á tvenn íslensk spakmæli um að oft velti lítil þúfa þungu hlassi og að allt sé í heiminum hverfult.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)