Þriðjudagur, 21. mars 2017
Sjálfstæðið, Evrópukirkjan og Pawel pakkavinur
Ísland hélt velli í fjármálakreppunni vegna þess að við hugsuðum sjálfstætt en létum ekki Evrópukirkjuna, sem tók við að þeirri kaþólsku, segja okkur fyrir verkum. Á þessa leið er greining írska fræðimannsins Cormacs Lucey.
Þrátt fyrir skýra og einboðna reynslu af bjargræði fullveldis er enn til á Íslandi átrúnaður á ESB-kirkjuvaldið. Einn andsetinn er þingmaður Viðreisnar, Pawel Bartoszek, sem líkir sambandinu við pakka. Til skamms tíma vildu ESB-sinnar ,,kíkja í pakkann" en Pawel er slíkur pakkavinur að hann þarf ekki að gaumgæfa innihaldið.
Forseti framkvæmdastjórnar ESB, Jean-Claude Juncker, líkir Evrópusambandinu við ástarsamband. Gamalt orðtak, ættað úr hreintrúarkirkjunni, segir að berja skuli börn til ásta. Írar voru barðir til ástar á ESB. Pawel finnst það í góðu lagi. Eins lengi og hann fær pakkann sinn.
Sjálfstæðið lykillinn að árangri Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 21. mars 2017
Soros Píratavinur með ítök í Arion
Milljarðamæringurinn George Soros, en Píratar teljast til skjólstæðinga hans, er kominn með ítök í Arion banka.
Soros keypti nýverið hlut í Goldman Sachs sem aftur leiðir fyrirsjáanlega yfirtöku á Arion banka.
Hver skyldi afstaða Pírata vera til velgjörðarmanns síns?
Völdu frekar vogunarsjóðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 21. mars 2017
Þjóðfrelsi trompar alþjóðleg völd og áhrif
Sigur Trump í Bandaríkjunum og ákvörðun Breta um úrsögn úr Evrópusambandinu eiga það sameiginlegt að fórna völdum á alþjóðvettvangi fyrir aukið fullveldi.
Alþjóðavæðing síðustu áratuga gróf undan fullveldi þjóða án þess að skapa öryggi og velmegun. Þvert á móti jókst óöryggi og efnahag margra hnignaði á vesturlöndum beinlínis vegna alþjóðvæðingar.
Sigur Trump og Brexit er ósigur alþjóðavæðingar.
Brexit mikilvægara en konungdæmið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 21. mars 2017
Sýrlandi, Írak skipt upp; Kúrdaríki
Innrás Bandaríkjanna í Írak 2003 og stuðningur þeirra við uppreisnarmenn í Sýrlandi hratt af stað atburðarás sem leiða mun til uppskiptingar á þessum ríkjum.
Ríki íslams er sameiginlegur óvinur þeirra þriggja stóru aðila sem mest láta sig skipta framvindu mála: Bandaríkin, Rússland og Tyrkland. Kúrdar, sem búa í norðurhéruðum Írak, Sýrlands og suðurhluta Tyrklands eru í laustengdu bandalagi við Bandaríkin og Rússland en svarnir óvinir Tyrkja, sem óttast að nýtt Kúrdaríki taki land af þeim.
Bandarískur sérfræðingur í málefnum miðausturlanda, Joshua Landis, hvetur Bandaríkin til að styðja fremur Kúrda en Tyrki til að ráðast í síðasta höfuðvígi Ríkis íslam, Raqqa. Tyrkir og bandamenn þeirra úr röðum súnni-múslíma keppa við Kúrda um að frelsa Raqqa. Þótt Tyrkir eigi að heita í liði Bandaríkjanna, sem Nató-þjóð, eru þeir grunaðir um að vilja fremur að herskáir súnni-múslímar, sömu ættar og Ríki íslams, verði öflugir á svæðinu en að vegur Kúrda vaxi.
Stríðsátökum í miðausturlöndum er hvergi nærri lokið.
Lykilhlutverk Rússa eftir loftárásir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)