Föstudagur, 17. febrúar 2017
Hagvöxtur til hægri, kreppa til vinstri
Hagvöxtur verður við pólitískan stöðugleika, traust ríkisfjármál og tilrú. Sígild hægripólitík, jafnvægi á milli íhaldssemi og einstaklingsfrelsis, skapar þessi skilyrði.
Ef jafnvægið raskast, eins og gerðist fyrir hrun, hleypur slæmska í hagkerfið með þekktum afleiðingum.
Vinstripólitík er andstaðan við íhaldssemi og einstaklingsfrelsi; bylting og samfélagstilraunir. Pólitískur stöðugleiki, skikkanleg ríkisfjármál og tiltrú þrífst illa eða alls ekki í vinstripólitík.
Hægrimenn tala um að skapa verðmæti, en hafa minni áhyggjur af útdeilingu þeirra. Aðaláhyggjuefni vinstrimanna er að deila út verðmætum, en þeir láta sér í léttu rúmi liggja hvort og hvernig þau verða til.
Skynsamar þjóðir setja hægriflokka í ríkisstjórn en úthluta vinstriflokkum það hlutverk að veita aðhald í stjórnarandstöðu.
Blússandi hagvöxtur áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Föstudagur, 17. febrúar 2017
Falsfréttir og falskur veruleiki
Fjölmiðar eins og RÚV eru á undanhaldi frá hlutlægri fréttamennsku og á hraðri leið inn í kjaftakvörn samfélagsmiðlunar þar sem mestur hávaðinn fangar athyglina.
RÚV stundar skipulagða kjaftakvarnarblaðamennsku með einhliða áróðri um málefni sem stofnunin tekur upp á sína arma, núna síðast loftslagsvá.
Yfirgengileg einföldun og misþyrming talnaefnis eru ær og kýr kjaftakvarnarinnar á Efstaleiti.
Almenningur veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið enda fátt um fína drætti í andófinu gegn fölskum veruleika RÚV.
Mikill meirihluti hefur áhyggjur af loftslagsmálum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)