Þriðjudagur, 14. febrúar 2017
Ha? Múslímar og hryðjuverk
Daglega stunda múslímar hryðjuverk gegn konum - með því að gera þær að annars flokks borgurum.
Múslímar almennt og yfirleitt líta svo á að dauðarefsing sé viðeigandi ef einhver gengur af trúnni.
Þar fyrir utan, vitanlega, er múslímatrú viðurkenndur friðarboðskapur þótt skátasamtök eins og Ríki íslams geri grikki annað veifið.
Stefnir RÚV og 365 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 14. febrúar 2017
Ekkert óljóst á barmi gjaldþrots
Fréttatíminn er á barmi gjaldþrots, eins og fram hefur komið. Aðaleigandi útgáfufélagsins hrindir af stað samskotasöfnun í nafni sósíalisma en hann hefur þekktan auðmann sem meðeiganda en áður voru þeir þrír.
Þegar hlutafélag er á barmi gjaldþrots er ekkert óljóst.
Kannski eilítil óvissa.
Óljós framtíð Fréttatímans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 14. febrúar 2017
ESB verði Stór-Evrópa og bandalagsþjóðir
Til að bjarga Evrópusambandinu frá tortímingu þarf að kljúfa sambandið í tvo hluta. Stór-Evrópu annars vegar og hins vegar laustengdari bandalagsþjóðir. Guardian segir frá þessari tillögu sem er til umræðu meðal ráðandi afla í Brussel.
Stofnaðilar ESB, þ.e. Þýskaland, Frakkland, Ítalía og Benelux-löndin, yrðu kjölfestan í Stór-Evrópu. Sameiginleg ríkisfjármál og hernaðarsamvinna yrðu hornsteinar samstarfsins.
Austur-Evrópuríki, t.d. Pólland, Ungverjaland og Eystrasaltsríkin, stæðu utan Stór-Evrópu og yrðu laustengd við stórríkið.
Tillaga um Stór-Evrópu sýnir klofninginn í ESB eftir úrsögn Breta. Sambandssinnar telja einu vonina að auka miðstýringuna til að forða ESB frá glötun. Andstæðingar stórríkis eru þvert á móti þeirrar sannfæringar að miðstýring sé rót þess vanda sem ESB glímir við.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 14. febrúar 2017
Sjálfsvitundin verður hægripólitík
Til skamms tíma sátu vinstriflokkar einir að pólitík sjálfsvitundarinnar. Hægriflokkar sinntu efnahagsmálum en létu vinstrimönnum eftir sjálfsvitundina. Þjóðfélagshópar eins og hommar, femínistar, bdsm-arar, kattavinir, hassistar, loftslagssinnar, fjölmenningarfólk, landamæraleysingjar og fleiri ræktuðu sjálfsvitundina á vinstripólitískum forsendum.
Yfirheiti sjálfsvitundarstjórnmála er félagslegt frjálslyndi. Sum þjóðríki, t.d. Holland og Svíþjóð, búa að langri hefð félgslegs frjálslyndis.
Frummyndin af Donald Trump, ljóshærði Hollendingurinn Geert Wilders, sem vill banna Kóraninn, helgirit múslíma og loka moskum, gerir það gott í skoðanakönnunum fyrir þingkosningar þar í landi eftir mánuð. Hann er svo róttækur að Bretar settu bann á heimsókn hans til að halda fyrirlestur.
Fréttamaður BBC heimsótti Holland og komst að því að Wilders væri þegar búinn að vinna kosningarnar. Ástæðan?
Jú, jafnvel andstæðingar Wilders, viðurkenna að kosningarnar snúast um sjálfsvitund hollensku þjóðarinnar. Og það er ekki lítill hópur að virkja, sjálf þjóðin, sem krefst þess að samfélagsleg gildi gangi framar sjálfsvitund jaðarhópa.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)