Föstudagur, 1. desember 2017
Moskva, Stalíngrad og Ísland
Leikur Íslands við Nígeríu verður háður í Volgograd sem einu sinni hét Stalíngrad og var vettvangur hildarleiks í seinna stríði.
Við spilum fyrst í Moskvu þar sem Napóleon beið ósigur og síðan í Stalíngrad en Rússlandsför Hitlers lauk þar.
Sögueyjan spilar sína leiki á söguslóðum. Nema hvað.
Argentína, Nígería, Króatía | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 1. desember 2017
Skandalar eru framleiddir
Vonandi fáum við ekki skandala, segir Grétar Þór stjórnmálafræðingur, en hyggur ekki að því að hneykslismál eru oftar en ekki tilbúin framleiðsla félagsmiðla og fjölmiðla.
Framleiðslan er tiltölulega einföld. Fyrsta verkefnið er að undirbúa jarðveginn. Halldór Auðar Svansson þyrlar upp mold vegna þöggunar á kynferðisbrotum; aðrir dunda sér við undirbúning á öðrum hneykslunarefnum.
Eftir að jarðvegurinn er undirbúinn er fundinn flugufótur fyrir samsæriskenningum sem þegar er búið að setja á flot. Fjölmiðar eins og Stundin, RÚV og Kjarninn koma inn í spilið, gera fréttamál um tittlingaskít. Þá taka samfélagsmiðlar við og magna upp fréttirnar. Jón Þór pírati orðar þetta smekklega: ,,Deilið og taggið vin í VG," þegar hann smíðar sína samsæriskenningu til að sprengja ríkisstjórnina.
,,Þegar bloggheimar loga" endurvinna fjölmiðlar það efni sem best brennur og þar með er komin hringrás tittlingaskítsins sem verður að skítahaug með fnyk í allar áttir. Sem sagt skandall.
Vona að við fáum enga skandala | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 1. desember 2017
Ólafur á milljarða - en aðeins eina æru
Ólafur Ólafsson fjárfestir á milljarða í peningum. Brotabrot af þeim notar hann til að freista þess að endurreisa það eina sem enginn á nema eitt stykki af: æruna.
Al Thani-málið var flétta Ólafs og félaga hans í Kaupþingi að telja almenningi trú um voldugur alþjóðlegur fjárfestir tryði á framtíð Kaupþings. En viðskiptin, þar sem Al Thani átti að hafa keypt hlutabréf í Kaupþingi voru aðeins í þykjustunni. Alveg eins og þegar Ólafur í þykjustunni fékk þýskan banka í lið mér sér að kaupa Búnaðarbankann.
Það tókst að koma lögum á Ólaf í Al Thani-málinu. Sumir endurreisa æruna með því að játa brot sín og bæta fyrir með betri verkum. Ólafur kaupir sér lögfræðiþjónustu.
Mál Ólafs Ólafssonar tekið fyrir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)