Fimmtudagur, 12. janúar 2017
Er Björn Valur þjófur?
Björn Valur Gíslason varaformaður Vinstri grænna var einu sinni í atvinnurekstri sem fór illa. Stal hann undan skatti? Stal Björn Valur frá viðskiptafélögum sínum?
Hefur hann verið spurður?
Ef ekki er þá ekki rétt að spyrja hann?
Orðin hér að ofan, þau inndregnu, eru höfð eftir Birni Val í færslu þar sem varaformaðurinn hvetur til áhlaups á forsætisráðherra.
Björn Valur hvetur til að fjölmiðlar þjófkenni forsætisráðherra með spurningum.
Er æskilegt að gera stjórnmálin að leðjuslag brigsla og subbuskapar?
Yfir til þín, Björn Valur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 12. janúar 2017
Söguskipti í stjórnmálum: reiðin og vinstripólitík
Stórir atburðir skilgreina samtímann, samanber hrunið 2008. Smærri atburðir, fremur en stórir, eiga það til að verða taldir til söguskipta - þegar ein söguleg þróun tekur við annarri.
Í samtímanum var ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir aðeins neðanmálsgrein við hrunið. Í lýðveldissögunni var þetta fyrsta hreina vinstristjórnin. Flokkarnir sem stóðu að Jóhönnustjórninni, Samfylking og Vinstri grænir, töldu sig marka þáttaskil. Vorið 2009 skyldi upphaf langs valdatíma vinstrimanna.
Leiðtogar vísuðu í gagnólíka framtíðarsýn Jóhönnustjórnarinnar. Steingrímur J. talaði um norræna velferðarstjórn en Jóhanna og Össur voru fangar hugmyndarinnar um ESB-Ísland. Kratar og kommar höfðu þar söguleg sætaskipti. Kommar, forverar Vg, boðuðu miðja síðustu öld Sovét-Ísland en kratar norræna velferð.
Valdatími vinstrimanna 2009 - 2013 var samfelld þrautarganga einmitt af þessari ástæðu. Kratar og kommar búa að gerólíkri pólitískri sýn á framtíð lands og þjóðar.
Söguskiptin í íslenskum stjórnmálum urðu 2013 urðu þegar Samfylking og Vinstri grænir töpuðu meira en helmingnum af fylgi sínu. Valdatómarúmið á vinstri væng stjórnmálanna fylltu Píratar upp í með reiðibylgjupopúlisma sem náði hámarki á liðnu vori með afsögn forsætisráðherra. Eftir það fjaraði undan Pírötum.
Saga vinstrimanna hér á landi er af sameiningu í orði en sundrungu á borði. Jóhönnustjórnin leiddi fram á stóra sviðið þessa sögulegu staðreynd. Vinstripólitík á Íslandi er mótsögn sem breytist í reiði þegar reynt er að hrinda henni í framkvæmd.
Hefur setið djúpt í hnakkinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 12. janúar 2017
Panama-Óttarr og tveir forsætisráðherrar
Óttarr Proppé er ráðherra í ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar en var ekki í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs.
Vinstrimenn setja völd ofar dómgreind og siðsemi. Það er gömul saga og ný.
Panama-skjölin eru aðeins fíkjublað til að fela hræsnina.
Segir mun á stöðu Sigmundar og Bjarna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)