Föstudagur, 31. desember 2021
Kolbrún og Skúli, frelsi og sósíalismi
,,Í langan tíma höfum við vegna farsóttar búið við höft sem takmarka mannréttindi fólks, hafa alvarlegar efnahagslegar afleiðingar og valda kvíða og ótta," skrifar Kolbrún Bergþórsdóttir í leiðara Fréttablaðsins.
Kolbrún bætir við
Hér skal þeim þakkað sem á tímum farsóttar hafa spurt krefjandi og óþægilegra spurninga. Þar á meðal eru stjórnmálamenn, sem reyndar eru flestir úr sama flokknum. Hver skyldi vera skýringin á því?
Skúli Helgason borgarfulltrúi Samfylkingar skrifar grein í Vísi sem setur orð Kolbrúnar í samhengi
En það segir líka sína sögu að smittölur hafa margfaldast og náð svimandi hæðum einmitt þegar brestir hafa komið í samstöðuna. Þetta er ekki tíminn til að láta frjálshyggjuviðhorf ná yfirhöndinni.
Skúli fer nálægt því að segja ómíkrón-afbrigði Kínaveirunnar Sjálfstæðisflokknum að kenna. Sósíalísk samstaða er svar við loftslagsbreytingum sem og besta sóttvörnin. Frelsið á heima í skúffu embættismanna, segir Skúli efnislega, og þeir skammti okkur leyfi til að strjúka um frjálst höfuð. Allt í nafni samstöðunnar.
Kolbrún bendir á hið augljósa. Þeir sem efast um sósíalískar sóttvarnir koma flestir úr einum flokki. Sósíalistarnir eru í mörgum flokkum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 30. desember 2021
Laumuspil á RÚV, slökkt á Kveik
Á Þorláksmessu var tilkynnt að Baldvin Þór Bergsson yrði yfirmaður Kastljóss RÚV. Kortéri fyrir jól er þægilegt að fela fréttir. Í fréttayfirliti RÚV er hvergi getið um að einn úr stjórnendateymi Stefáns útvarpsstjóra hafi verið sendur inn á fréttadeild að stýra Kastljósi. Baldvin Þór kynnti sjálfur breytinguna með færslu á Facebook.
Lögreglurannsókn stendur yfir á aðild RÚV að stuldi á síma Páls skipstjóra Steingrímssonar og gögnum sem afrituð voru úr snjalltækinu og birt í fylgiritum RÚV, eins og tilfallandi lesendur vita. Til stóð að niðurstaða rannsóknarinnar lægi fyrir í desember en það dregst fram yfir áramót. Baldvin Þór var í skrifstofuvinnu þegar afbrotið var framið og líklega með hreinan skjöld.
Þar sem niðurstöðu lögreglurannsóknar er beðið getur Stefán útvarpsstjóri ekki auglýst stöðu fréttastjóra. Rakel Þorbergsdóttir hættir á morgun. Nýr fréttastjóri getur illa verið sakamaður en nokkrir eru grunaðir. Ef allt væri með felldu væri búið að rannsaka innanhúss aðkomu starfsmanna að glæpnum og gerðar viðeigandi ráðstafanir. En Stefán útvarpsstjóri treystir ekki undirmönnum sínum að segja satt. (Geðveik staða fréttastofu að yfirmenn treysta ekki sannsögli undirmanna). Á meðan er enginn fréttastjóri. Vinnubrögðin einkennast af lausung og reiðileysi.
Fréttaskýringarþátturinn Kveikur er miðstöð atlögunnar að heilsu og eigum Páls skipstjóra. Kveikur er vikulegur þáttur. En í desember hefur verið slökkt á Kveik.
Á nýju ári gæti slokknað á fleiri týrum á Glæpaleiti en Kveik einum.
Miðvikudagur, 29. desember 2021
Siðareglur þingmanna
Sjöunda grein siðareglna alþingismanna hljómar svona:
Þingmenn skulu í öllu hátterni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virðingu.
Í fimmtu grein c-lið segir að þingmenn skulu
ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með framkomu sinni
Sumir þingmenn ættu að lesa betur heima.
![]() |
Tóku sér frí rétt fyrir gellu-takeover |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 29. desember 2021
Bretar sigra ómíkrón án lokana
Bretar eru bjartsýnir á sigur yfir ómíkrón-útgáfu Kínaveirunnar og að sá sigur vinnist án víðtækra samfélagslokana. Bretar taka líklega upp styttri einangrun smitaðra og fylgja þar fordæmi Bandaríkjamanna.
Dálkahöfundur Telegraph þakkar dugnaði Breta að bólusetja og örva með þriðju sprautu að betur takist til í eyríkinu en á meginlandi Evrópu. Íslendingar eru enn betur settir en Bretar með bólusetningar og örvunarskot.
Ómíkron-útgáfan er veldur vægari einkennum en delta-afbrigðið, gildir almennt en sérstaklega hvað varðar bólusetta og örvaða. Sæmilegustu líkur eru á að um miðjan janúar taki ómíkrón-bylgjan að hjaðna hér á landi og ekki þurfi að þreyja veiru á þorra og góu. Nokkuð góð tíðindi það.
![]() |
Niðurstaða liggur væntanlega fyrir á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 28. desember 2021
Þinggellur og n-orðið
Þingkona kallar sjálfa sig ,,gellu". Sjálfsupphafning með öfugum formerkjum. Bannorð, neikvætt og lítisvirðandi, auglýsir sjálfstraust að ekki sé sagt hroka. Sambærilegt og að bandarískur svertingi noti n-orðið um sjálfan sig.
Þeim svarta nægir húðleðrið að öðlast rétt til að uppnefna sjálfan sig.
Hvít forréttindakona þarf ekki einu sinni kynþokka til að verða gella að eigin áliti.
![]() |
Völdu báðar hvítt fyrir gellu-takeover |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 27. desember 2021
Heimsendir: plágur í stað loftslags
Fræðin eru orðin bragðlítil um að manngerð hamfarahlýnun valdi heimsendi. Ragnarökin verða veirur, segja alþjóðastofnanir:
Sérfræðingahópur á vegum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) er meðal þeirra sem varað hafa við þessu. Þar er ekki aðeins rætt um að næsta plága kunni bæði að vera meira smitandi og lífshættulegri, heldur einnig að stutt geti verið í hana.
Yfirstandandi plága er vegna Kínaveirunnar sem á uppruna sinn í rannsóknastofu í Wuhan. Sem sagt manngerð plága.
Eins lengi og heimsendir er manngerður eru sérfræðingar sáttir. Völdin verða alltaf þeirra. Það er jú markmiðið.
![]() |
Stóra plágan er ekki ennþá komin fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 26. desember 2021
Orð og samhengi
Umsögnin ,,ég er geðveikur" er á yfirborðinu játning. Tilgangur orðanna getur verið allt annar en að gera hreint fyrir sínum dyrum. Til dæmis að vekja samúð og safna liði í opinberri umræðu.
Áfram Brandon gæti á yfirborðinu verið stuðningur við einhvern Brandon, til dæmis ökuþór, en í raun þýtt fari Joe Biden norður og niður.
Samhengið skiptir máli.
![]() |
Joe Biden hrekktur í beinni útsendingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 25. desember 2021
Óvissan og ferðalagið
Öryggi frá vöggu til grafar einkennir velmegunarlífið. Teikn eru um að ekki sé lengur hægt að ganga að því vísu. Farsóttin veldur áhyggjum um heilsu og afkomu, og hefur gert það í tvö ár. Eldgos og jarðskjálftar við túnfót höfuðborgarinnar eru með ófyrirséðum sögulokum.
Farsótt og jarðhræringar sóttu okkur heim um það leyti sem við vorum að jafna okkur á óvissunni sem fylgdi svokölluðu bankahruni 2008. Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur markaði þau pólitísku skil að í fyrsta sinn frá hruni endurnýjar meirihluti á alþingi umboðið. Í áratug var viðvarandi pólitískur ófyrirsjáanleiki. Hornsteinar stjórnskipunar léku á reiðiskjálfi. Þríeykið stjórnarskráin, fullveldið og blessuð krónan var undir fallöxinni.
Horft um öxl er mesta furða hve vel tókst til að lægja öldurnar og finna réttan kúrs úr brimrótinu sem Geir H. Haarde gerði að umtalsefni í beinni útsendingu 6. október 2008.
Menn vaxa af verkum sínum. Gildir líka um þjóðir. Öryggið ofan þilja þarf kjölfestu neðan sjólínu. Á meðan svo háttar er óvissan skemmtun á ferðalaginu.
![]() |
Skjálfti upp á 4,2 fannst vel á höfuðborgarsvæðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 24. desember 2021
Trú
Við trúum á heilbrigðisvísindin í farsótt. Nema þegar við viljum undanþágur. Trú á manngert veður er útbreidd og að koltvísýringur spilli náttúrulegu loftslagi. Loftslagstrú er þó sett ofan í skúffu þegar fólki langar að ferðast og tekin upp til dygðaskrauts þegar heim er komið.
Maðurinn var ekki hreinni og skírlífari þegar hann trúði á óræðan guð. Veraldleg hentisemi réð ekki síður ferðinni fyrrum en nú um stundir.
Helsti munurinn á óræðum guði og vísindatrú nútímans er að í fyrra tilvikinu er upphaf og eilífð en tilgangslaus endurtekning í seinna fallinu.
Maðurinn sem tegund er ekki nema um 200 þúsund ára. Jörðin er 4,5 milljarða ára. Við höfum fyrir satt að maðurinn hafi orðið til með líffræðilegri þróun. Sem væntanlega stendur enn yfir.
Samkvæmt viðurkenndum vísindum er maðurinn tilviljun. Ef ein stökkbreyting í fyrndinni hefði orðið á annan veg hefðum ,,við" orðið slöngur eða fiðurfé. Svo er hitt sjónarhornið, líka viðurkennt og kallað nauðhyggja, að allt sem er gæti ekki verið öðruvísi. Fyrst líf á annað borð kviknaði á móður jörð hlaut það að leiða til mannskepnunnar.
Hvorugt sjónarhornið, að lífið sé annað tveggja tilviljun eða lögmál, kemur heim og saman við daglega reynslu okkar, síst nauðhyggja. Við höfum frjálsan vilja. Ég gæti sleppt að skrifa þetta blogg, fengið mér tár og hugsað um fótbolta. Tilviljunin heggur þó nærri. Fyrir 65 milljónum ára spókuðu sig risaeðlur á henni jörð. Hvergi var maðurinn. Fyrir tilviljun eyddu hamfarir stórum eðlunum og bjuggu í haginn fyrir smærri lífverur, fíngerðari og hugvitssamari; okkur.
Tilviljun er tilgangslaus. Það er sjálf skilgreiningin á tilviljun. En ef það er eitthvað sem einkennir manninn er það leit að tilgangi. Við finnum aldrei tilganginn, með ákveðnum greini, en leitum hans sí og æ, kynslóð fram af kynslóð. Sú leit getur ekki verið sprottin af þróun. Líffræðileg þróun býr ekki til eðlishvötina ,,tilgangslaus leit að tilgangi". Líffræðin gerir okkur hæf að komast af. Aðlögunarhæfni í síbreytilegri náttúru bjó til tegundina. Það er beinlínis andstætt afkomuöryggi að velta vöngum yfir tilgangi. Éta, lifa og fjölga sér er viðurkenndur darwinismi. Önnur spendýr spá ekki í tilgang lífsins.
Aðeins guð gefur tilgang. Á óræða vísu.
Gleðileg jól
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 23. desember 2021
Hitabylgja á Grænlandi - fyrir 1000 árum
Fyrir 1000 árum var meðalhitinn á Grænlandi um 1,5 gráðum hærri en í dag. Eiríkur rauði flutti þangað og stundaði landbúnað að norrænum hætti. Byggðin þar vestra var möguleg vegna miðaldahlýskeiðsins frá um 900 til 1300.
Litla ísöld tók við og hélst fram undir 1900. Á miðju því tímabili, á 15. öld, lagðist norræn byggð af í Grænlandi.
Sé horft lengra aftur í tímann var enn hlýrra á Grænlandi en menn hafa löngum talið.
Loftslag breytist og hefur alltaf gert. Nýtt í sögunni er að telja loftslag manngert.
![]() |
Meðalhiti tæplega 20 stigum hærri á Grænlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)