Stefán RÚV-stjóri, hælbítar og meindýr

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri, Þórður Snær ritstjóri Kjarnans og Aðalsteinn Kjartansson á Stundinni kæra Pál skipstjóra fyrir að hóta sér. Meint hótun var tölvupóstur Páls til Stefáns, svohljóðandi:

Góðan daginn Stefán

Nú fer ég fram á að þið samstarfsfélagar látið [nafn, tekið út af pv] í friði, það ónæði sem þið hafið valdið fjölskyldunni með vinnubrögðum ykkar er til háborinnar skammar, og ef þið látið ekki af þessari háttsemi ykkar neyðist ég til að grípa til annarra ráða til þess að stoppa ykkur...

Kv. Páll Steingrímsson

Þórður Snær og Aðalsteinn fá afrit.

Ekki er hægt lesa úr tölvupósti Páls annað en hann ætli að fara með málið lengra, t.d. vekja athygli yfirvalda eða siðanefndar á einelti blaðamanna RSK-miðla. Tölvupósturinn var sendur í sumar.

Í haust var konan, sem Páll biðst vægðar fyrir, öryggisvistuð á sjúkrastofnun. Hún kiknaði undan álaginu og þótti sjálfum sér og öðrum hættuleg. Þegar konan var færð á sjúkrastofnun hrópaði hún ítrekað nafn fjölmiðlamanns á RÚV og vildi að haft yrði samband við hann. Andleg veikindi taka á sig ýmsar myndir.

Þremenningarnir krydda kæruna með tveggja ára spjalli Páls við meindýraeyði, já starfandi meindýraeyði, um hvernig ætti best að lóga meindýrum og hælbítum. Þeir sem þekkja til sveita vita að hælbítar eru hundar sem narta í fé, bíta það í hælinn.

RSK-miðlar (RÚV, Stundin og Kjarninn) eru alræmdir fyrir fréttaskáldskap þar sem ein fjöður verður að fimm hænum á augabragði. Sama aðferð eru notuð í kærumálinu gegn Páli skipstjóra. Tölvupósturinn frá í sumar á ekkert sameiginlegt með tveggja ára gömlu fésbókarspjalli um hvernig dýrum er lógað til sveita. 

Kæra þremenninganna er fyrst og fremst upplýsandi um hugarfar. Stefán, Þórður Snær og Aðalsteinn flokka sig með meindýrum og hælbítum.

Játningin kemur þeim, sem þekkja til vinnubragða RSK-miðla, ekki á óvart. Nýmæli, á hinn bóginn, er hreinskilni þremenningana.

 


mbl.is Páll mætir til yfirheyrslu í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjárkúgun Gulla er ekki vandamálið

Guðlaugur Þór heimtaði af Bjarna fjármálaráðuneytið ellegar myndi hann skora Bjarna á hólm í einvígi um formennsku Sjálfstæðisflokksins.

Guðlaugur Þór er með sterkt bakland í flokknum. Í mörg herrans ár er hann duglegri en flestir dauðlegir að taka í hendur flokksmanna og sitja stærri og smærri fundi. Dugnaðurinn skilar sér í persónufylgi.

Á blaðamannafundi, þar sem Guðlaugur Þór kynnti framboðið, og á samfélagsmiðlum, mátti finna fyrir ýktu persónufylgi þar sem aðdáendur ákalla goðið eins og poppstjörnu.

Ég hef tvisvar eða þrisvar tekið í hönd goðsins og varð ekki uppnæmur. Ekki fyrir það, Gulli er ábyggilega þekkilegur strákur.

Vandamál Gulla er að hann er til sölu. Það hefur afleiðingar sem ég varð sjálfur vitni að.

Fyrir prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík haustið 2006 fékk Guðlaugur Þór fúlgur fjár frá auðmönnum, einkum Jóni Ásgeiri kenndum við Baug. Markmiðið var að fella Björn Bjarnason þáverandi dómsmálaráðherra í prófkjörinu. Guðlaugur Þór var með 500 til 700 manns í vinnu fyrir sig. Samkvæmt úttekt DV 23. apríl 2010 var Guðlaugur Þór ,,mestur fjáraflamanna" úr röðum stjórnmálamanna á árunum fyrir hrun.

Guðlaugur Þór felldi Björn Bjarnason úr öðru sætinu og varð ráðherra í hrunstjórninni skammlífu.

Eftir hrun tók við vinstristjórn Jóhönnu Sig. sem stefndi á ESB-aðild. Ég starfaði í Heimssýn, samtökum andstæðinga aðildar. Breski stjórnmálamaðurinn Daniel Hannan, góðvinur Guðlaugs Þórs, og eitilharður ESB-andstæðingur kom í heimsókn. Á fundi með Heimssýn var rætt um að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-umsóknina, sem þá var farin til Brussel. Hannan taldi hugmyndina góða enda var vinstristjórnin ekki með umboð þjóðarinnar til að sækja um aðild.

Tvísýnt var um baráttuna fyrir fullveldinu á þessum tíma. ESB-sinnar réðu ferðinni. Flugvélaframar af áhrifafólki fóru vikulega til Brussel að kynnast gósenlandinu og framselja fullveldið. Aðlögunarferlið innlimaði Ísland sneið fyrir sneið, bút fyrir bút. Það skipti máli hvort menn voru heilir í afstöðu sinni eða ekki.

Guðlaugur Þór var alfarið á móti tillögu sem tefldi pólitískri framtíð hans sjálfs í tvísýnu. Hann sagði að ef það yrði þjóðaratkvæðagreiðsla gæti vinstristjórnin sprungið og þá yrði efnt til þingkosninga. Hann mætti ekki við kosningum núna, vegna umræðunnar um fjárstuðninginn sem hann fékk frá auðmönnum fyrir hrun.

Það hefur afleiðingar að selja sig. Æ síðan ég varð vitni að þessum ummælum Guðlaugs Þórs hef ég vantreyst honum. Þegar hann barðist fyrir innleiðingu þriðja orkupakkans sem utanríkisráðherra velti ég fyrir mér hvaða tök Norðmenn hefðu á Guðlaugi Þór. Það var norskt hagsmunamál en ekki íslenskt að taka orkupakkann inn í EES-samninginn.

Guðlaugur Þór má mín vegna haga sér eins og pólitískur gangster og stunda fjárkúgun á samherjum. En aldrei, aldrei treysti ég manni sem selur fullveldið fyrir pólitískan frama.


mbl.is Segir Guðlaug hafa velt fyrir sér breytingum á verkaskiptingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gulli loftslagsmarxisti

Eftir tilkynningu um framboð til formanns Sjálfstæðisflokksins, og viðtöl við valda fjölmiðlamenn, fór Guðlaugur Þór á vinnufund um loftslagsmál. Líkt og á blaðamannafundinn hafði verið smalað á vinnufundinn, einkum væntanlegum landsfundarfulltrúum.

Guðlaugur Þór gerir loftslagsmarxisma hátt undir höfði í þann mun sem hægrimenn almennt þvo hendur sínar af Grétufræðum. Repúblíkanar í Bandaríkjunum hafna fræðunum. Nýr forsætisráðherra Bretlands, Risi Sunak, ætlar ekki á næstu loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.

Loftslagsmarxismi er um 30 ára gömul hugmyndafræði. Hún verður til um sama leyti og kommúnisminn hrundi. Vinstrimenn þurftu nýja hugmyndafræði um illsku borgaralegs kapítalisma. Loftslagsmarxismi er eins og vísindalegur sósíalismi; bábiljufræði. 700 loftslagsvísindamenn hafna grunnforsendum hugmyndafræðinnar. Vinstrimenn með háskólapróf og aðgerðasinnar kynna ruglið sem sannindi og krefjast ,,hugarfarsbreytingar." Gulli er ábekingur.

Í framboðstilkynningu sagðist Guðlaugur Þór ætla að lækka skatta. Gulli getur ekki þjónað tveim herrum, en hann kann að tala tugum tveim og sitt með hvorri. Loftslagsmarxismi krefst hærri skatta og stóraukinnar íhlutunar stjórnvalda í daglegt líf fólks. Loftslagsmarxisti sem boðar skattalækkun er álíka trúverðugur og sá sauðdrukkni sem talar fyrir bindindi.

Guðlaugur Þór var sem utanríkisráðherra málaliði alþjóðavæðingar. Hann nefndi ekki sjálfstæði þjóðarinnar í framboðsræðunni. Enda lagði hann ofurkapp á að keyra í gegnum alþingi 3. orkupakkann sem færir ESB ítök á íslenskum orkumarkaði.

Guðlaugur Þór viðurkenndi að 3. orkupakkinn hefði enga þýðingu fyrir Ísland á meðan enginn væri sæstrengurinn. Hvers vegna barðist hann fyrir samþykkt pakkans á alþingi? Jú, hann varð að játast hugmyndafræðinni. Loftslagsmarxisminn þekkir engin landamæri og virðir ekki fullveldið, allra síst smáþjóða. Formannsframbjóðandinn er innvígður og innmúraður í alþjóðafélagsskap loftslagsmarxista.

Áður en Guðlaugur Þór lauk framboðsfundinum veitti hann fáeinum fjölmiðlamönnum áheyrn. Einn þeirra sem fékk einkafund með Gulla er Helgi Seljan. Sá er ekki þekktur fyrir áhuga á loftslagsmálum.

Áhugi Helga Seljan beinist allur að dómsmálum, af skiljanlegum ástæðum. Hvað þeim Helga og Guðlaugi Þór fór á milli skal ósagt. Hitt er vitað að RSK-miðlar styðja af alhug framboð Guðlaugs Þórs til formennsku í Sjálfstæðisflokknum. Ástæðan er ekki að Glæpaleiti og hjáleigum sé umhugað um réttarríkið.


mbl.is Guðlaugur Þór býður Bjarna birginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstra-Ísland ekki lengur stefna Samfylkingar

Mesti áhrifavaldur Samfylkingar fyrstu ár flokksins var Sjálfstæðisflokkurinn. Breiðfylking vinstrimanna var stofnuð til höfuðs Sjálfstæðisflokknum, átti að verða ,,hinn turninn". Ekki gekk það fyllilega eftir. Fljótlega var tekið að leita hófanna eftir samstarfi við móðurflokk íslenskra stjórnmála. 

Ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, 2007-2009, skildi eftir sig óbragð, einkum hjá sjálfstæðismönnum sem fannst Samfylking hlaupast undan merkjum þegar þjóðin þurfti á samstöðu að halda í kjölfar bankahrunsins.

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, Jóhönnustjórnin, var fyrsta og eina hreina vinstristjórn lýðveldissögunnar. Samfylkingin fékk um 30 prósent fylgi í kosningunum 2009 og Vinstri grænir nær 20 prósent.

Óformlegt slagorð Jóhönnustjórnarinnar var ,,Ónýta Ísland." Vinstra-Ísland skyldi leysa af hólmi 1944-lýðveldið. Ný stjórnarskrá og ESB-aðild voru hornsteinar. Jóhönnustjórnin gróf sína eigin gröf með stöðugum árásum á allt íslenskt. Bankahrunið var ekki í neinum skilningi til marks um að íslenskt samfélag væri misheppnað, - nema hjá vinstrimönnum.

Þjóðin gaf vinstriflokkunum tveim rauða spjaldið í þingkosningunum 2013. Fylgi Samfylkingar minnkaði um tvo þriðju, fór í 12,9% en Vinstri grænir töpuðu ,,aðeins" helming fylgisins, urðu tíu prósent flokkur.

Eftir að Vinstri grænir hófu stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokk og Framsókn fyrir fimm árum var fyrsta viðbragð Samfylkingar að gagnrýna frá vinstri. Undir formennsku Loga Einarsson vildi flokkurinn bandalag vinstriflokka s.s. Pírata og Viðreisnar til að endurræsa stefnu Jóhönnustjórnarinnar sálugu. Ný stjórnarskrá og ESB-aðild voru áfram á dagskrá. Flokkurinn komst hvorki lönd né strönd með róttæka vinstripólitík liðins tíma.

Undir formennsku Kristrúnar verður stefnt til hægri. Markmiðið er að ryðja Vinstri grænum úr vegi og komast í landsstjórnina með Sjálfstæðisflokknum og Framsókn.

Verkefni Kristrúnar er snúið, svo ekki sé meira sagt. Vinstri grænir eru orðnir hagvanir í stjórnarráðinu. Það sem meira er: hvorki Sjálfstæðisflokknum né Framsókn dytti í hug að skipta út Vinstri grænum fyrir Samfylkinu. Samfylkingin, sem arftaki Alþýðuflokks, er til muna andstæðari framsóknarmennsku en Vinstri grænir. Sjálfstæðismenn sjá ekkert hjá krötum sem slægur er í og ekki fæst hjá Kötu.

Nú er ekkert sem segir að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn haldi styrk sínum og enn síður að flokkarnir sitji í landsstjórn sjálfkrafa. En það verður að taka mið af veruleikanum. Þessir tveir flokkar eru með um 40% fylgi. Án Sjálfstæðisflokks og Framsóknar verður ekki mynduð þriggja flokka ríkisstjórn.

Leiðangur Kristrúnar að gera Samfylkinguna stjórntæka felur í sér hagnýta pólitík en fyrst og fremst ábyrga pólitík. Það þýðir óformlegt uppgjör við Pírata og Viðreisn í stjórnarandstöðunni. Til að hagur Samfylkingar vænkist þarf samvinnan við Pírata og Viðreisn að veikjast.

Til að verða stjórntæk þarf Samfylkingin að leggja á hilluna upphlaupspólitík. Það er til nokkuð mikils mælst, sé tekið mið af stefnu flokksins síðustu árin.

 


mbl.is Breyta nafni Samfylkingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þóra safnar liði gegn Stefáni RÚV-stjóra

Bróðir Þóru Arnórsdóttur, Auðunn, stillir Stefáni Eiríkssyni útvarpsstjóra upp við vegg í viðtali á press.is, málgagni Blaðamannafélags Íslands, sem samstarfsmaður Þóru, Sigríður Dögg Auðunsdóttir stýrir. Viðtalið ber með sér að brátt sverfur til stáls á Glæpaleiti.

Þóra er einn sakborninga í RSK-sakamálinu þar sem koma við sögu byrlun, gagnastuldur og brot á friðhelgi einkalífs. Ákærur eru væntanlegar. Staða Þóru á RÚV hangir á bláþræði.

Auðunn knýr útvarpsstjóra til að játa að hafa ekki staðið með Helga Seljan, vini og nánum samstarfsmanni Þóru, sem tók pokann sinn á RÚV um síðustu áramót.

Augljóst er að hér eru á ferðinni samantekin ráð blaðamannamafíunnar, sem kenna má við RSK-miðla. Auðunn flytur sama boðskap og Aðalsteinn Kjartansson, einn sakborninganna, flutti í lögregluyfirheyrslu í september; að Stefán útvarpsstjóri ætti að veita mafíunni meiri stuðning.

Helgi og Þóra bjuggu til leikrit í fyrra, tíu dögum eftir að fyrsta yfirheyrslan í RSK-sakamálinu fór fram. Helgi mætti í þátt hjá Gísla Marteini og þóttist geðveikur vegna andmæla Samherja við söguburði um mútur í Namibíu. Um áramótin fékk Helgi sér nýtt starf, alheill á geði, en jafn veikur á svelli siðferðisins, - sem kom honum í koll upphaflega. 

Stefán var ekki trúgjarn á geðveika leikritið og spilaði ekki með blaðamannamafíunni.  Tilfallandi bloggari var það ekki heldur og fékk á sig holskeflu frá RSK-miðlum, vinum þeirra og velunnurum

Í viðtali Auðuns við Stefán er látið eins og miðlægt atriði í Helga-málum hafi verið að RÚV kom ekki í veg fyrir notkun á fréttaklippum í youtube-ræmur sem Samherji gerði til að andmæla skáldskap Helga og félaga um aðild útgerðarinnar að mútugreiðslum í Namibíu. Það er fyrirsláttur. Stefán hefur afþakkað aðild að leikriti Helga og Þóru um að Samherji hafi gengið svo hart fram að sjónvarpsmaðurinn varð vitstola. Hvað sem um Stefán má segja býr hann að greind fyrir ofan frostmark.

Í reynd sýndi Stefán Helga langlundargeð langt umfram það sem eðlilegt getur talist. Helgi var úrskurðaður að hafa alvarlega brotið siðareglur RÚV í mars. Hann var á launum allt árið en vann lítið sem ekkert. RSK-sakamálið varð þekkt á RÚV snemma í október, eftir fyrstu yfirheyrslur lögreglu. Þá átti útvarpsstjóri vitanlega að grípa í taumana og rannsaka aðild starfsmanna RÚV að alvarlegu sakamáli. Stefán gerði ekkert til að upplýsa málið. Hann lét Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóra róa í nóvember, sem var óbein viðurkenning á alvöru lögreglurannsóknarinnar. Stefán var í þeirri neyðarlegu stöðu að geta ekki auglýst starf fréttastjóra fyrr en um áramótin; hann vissi ekki hvaða starfsmenn voru til rannsóknar lögreglu. RSK-mafían skammtaði útvarpsstjóra upplýsingar eins og skít úr hnefa.

Þegar Stefán kvaddi Helga Seljan um áramótin lagði hann sig í líma að flaðra upp um manninn sem alvarlega braut siðareglur og sagði:

„Hvað Helga Seljan varðar sérstaklega þá er það sigur fyrir íslenska þjóð og blaðamennsku að þessi öflugi blaðamaður haldi áfram sínum störfum.“

Fyrir áratug valdi þáverandi útvarpsstjóri önnur orð um Helga Seljan:

Páll brást ókvæða við spurningunni eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi þar sem Páll segir: „Þú ættir að skammast þín, þú ert óþverri.“

Síðar heyrðist Páll kalla Helga skíthæl. Helgi svaraði því á þann veg að viðbrögð Páls væru barnaleg. Þá svaraði Páll um hæl: „Það er skárra að vera barn en skíthæll.“

Helgi hefði ekki haldið starfi stundinni lengur eftir siðadóminn ef útvarpsstjóri væri með bein í nefinu. Sé dómur siðanefndar yfir Helga frá 2022 borinn saman við orð Páls Magnússonar útvarpsstjóra árið 2013 um Helga Seljan sést hnignunarferli siðleysis og ósvífni sem endar í glæparannsókn. Stefán er eins og leir í höndunum á blaðamannamafíunni, gerir ekkert þótt rauðu ljósin á mælaborðinu séu við að springa undan álaginu.

Frá 14. febrúar í ár situr útvarpsstjóri uppi með sakborning, Þóru Arnórsdóttur, sem yfirmann á RÚV. Fyrir minni yfirsjónir hefðu flestir millistjórnendur og yfirmenn á opinberum stofnunum orðið að víkja, tímabundið í það minnsta. Þóra sat sem fastast og situr enn.

Ákærur eru væntanlegar. Hlutur Þóru í málinu verður afhjúpaður með gögnum, líklega svæsnari en þau sem þegar eru kunn. Stundaglasið tæmist. Starfandi yfirmaður RÚV á ákærubekk gerir Glæpaleiti að alþjóðlegu aðhlátursefni.

Sakborningarnir í RSK-sakamálinu vita hvað er í vændum og líst illa á. Arnar Þór, sakborningur á Kjarnanum, skrifaði málsvörn í þágu Þóru, klappar sama stein og bróðir hennar. Viðhlæjendur á öðrum fjölmiðlum taka undir. Íslensku blaðamannastéttina setur alla niður þegar fjórir verðlaunablaðamenn eru á sakabekk. Dómgreindarleysið er slíkt blaðamenn RSK-miðla fengu verðlaun eftir að uppvíst varð um stöðu þeirra sem sakborninga.

Takist Þóru að safna nægu liði til að beygja Stefán heldur hún kannski stöðu sinni um hríð. En skriftin er á veggnum og öllum læs.

Sitjandi útvarpsstjóri gæti orðið sá síðasti. Glæpaleiti sekkur með manni og mús ef RSK-mafían heldur áfram um stjórnvölinn. 

 


mbl.is Stóðu ekki nægjanlega vel við bakið á fréttamönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðalsteinn gagnrýnir Stefán útvarpsstjóra

Sakborningur í RSK-málinu, Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Stundinni, gagnrýnir Stefán Eiríksson útvarpsstjóra fyrir að styðja sig ekki í starfi á RÚV. Aðalsteinn var liðsmaður Kveiks á RÚV en hætti fyrirvaralaust 30. apríl 2021.

Í lögregluskýrslu, sem tekin var af Aðalsteini 9. september síðast liðinn er haft eftir blaðamanninum að meginástæðan fyrir uppsögn á RÚV sé þessi: ,,En það sem hafði mestu áhrif hafi verið meðhöndlun fyrrum vinnuveitanda á áreiti starfsmanna Samherja sem hann varð fyrir."

Sneiðin er bersýnilega til Stefáns útvarpsstjóra. Hvaða ,,áreiti" Aðalsteinn varð fyrir er óljóst, sennilega tilbúningur manns á höttunum eftir samúð sem hann sýnir ekki öðrum.

Aðalsteinn er þrautþjálfaður í blekkingum. Hann mætti sem fórnarlamb í Kastljós á RÚV eftir lögregluyfirheyrsluna og sagðist ætla að kæra meðferðina á sér til Mannréttindadómstóls Evrópu. Engin kæra hefur verið send. Kæran var tilbúningur til að úr yrði frétt sem réttlætti að Aðalsteinn fengi Kastljósþátt fyrir sig.

Önnur veigameiri skýring er á snöggum vistaskiptum Aðalsteins 30. apríl í fyrra. 

Þrem dögum eftir að Aðalsteinn hætti á RÚV og fór samdægurs á Stundina var Páli skipstjóra byrlað og síma hans stolið. Síminn fór upp á Efstaleiti þar sem hann var afritaður. Gögnum úr símanum var komið til Aðalsteins á Stundinni og Þórðar Snæs á Kjarnanum.

RÚV var miðstöðin í glæpnum gegn skipstjóranum. En RÚV ætlaði aldrei að birta, og birti aldrei, fréttir upp úr stolnum símanum. Stundin og Kjarninn sáu um þá hlið. RÚV kom í kjölfarið, endursagði áður birtar fréttir og krafði stjórnmálamenn um viðbrögð.

Almenningur stendur í þeirri trú að RÚV, Stundin og Kjarninn séu þrír sjálfstæðir fjölmiðlar. En þetta er einn mafíu-fjölmiðill sem lýtur sameiginlegri ritstjórn. Hvergi er opinberlega greint frá bandalaginu. Samráðið er á bakvið tjöldin. Sjálfir krefja fjölmiðlar aðra um gagnsæi og að allt sé upp á borðum. Um þá sjálfa gildir leyndarhyggja. Í myrkrinu eru skipulögð lögbrot sem ekkert heiðarlegt fólk getur réttlætt.

Fyrir föstudaginn 30. apríl 2021 vissu RSK-miðlar að von væri á stolnum gögnum. Aðalsteinn var sendur á Stundina til að taka við þýfinu og koma í umferð. Það gekk eftir. Það átti að láta líta svo út að ,,rannsóknarblaðamenn" Stundarinnar og Kjarnans hefðu komist af sjálfsdáðum yfir upplýsingar. Því fer fjarri. Engin rannsóknarvinna fór fram, aðeins byrlun og stuldur.

Byrlun og þjófnaður eru almennt ekki viðurkenndar starfsaðferðir blaðamanna. Nema á Íslandi. Þar fá blaðamenn verðlaun að virkja minnimáttar til óhæfuverka. 

Hvort Aðalsteinn hafi eingöngu verið viðtakandi stolinna gagna er opin spurning sem verður svarað þegar ákærur birtast. Lögregluyfirheyrslan gefur til kynna að lögreglan viti mun meira en hún lætur uppi. Gögnin sem gera fjóra blaðamenn að sakborningum eru fyrst og fremst símtöl og fjarskipti á milli blaðamannanna sjálfra annars vegar og hins vegar blaðamanna við veiku konuna sem fengin var til að byrla og stela.

Trúlega kann Stefán útvarpsstjóri Aðalsteini litlar þakkir fyrir gagnrýnina. Vandræðin eru næg fyrir á Glæpaleiti.


Siða-Sunna: RÚV-umræða um Samherja

Dóttir starfsmanns RÚV, Þórhildur Sunna, eini þingmaður sögunnar með siðadóm á bakinu, boðar RÚV-umræðu um Samherja á alþingi í dag.

Í framsögu mun Siða-Sunna eflaust réttlæta byrlun, gagnastuld og brot á friðhelgi til að ,,taka niður Samherja." RSK-sakamálið er á lokastigi og ákærur væntanlegar. RÚV sendir út neyðarkall, vinstriþingmenn setja í gang viðbragðsáætlun. Það er ástæða umræðunnar.

Helga Vala, þingmaður Samfylkingar og móðir starfsmanns RÚV, leggst á árarnar að bera blak af glæpum blaðamanna sem búa til pólitískan áróður og kalla fréttir.

Báðar eru þær bullandi vanhæfar; ein er dóttir starfsmanns RÚV en hin móðir innherja ríkisfjölmiðilsins.

Í RSK-sakamálinu skipulagði RÚV byrlun og þjófnað en lét Kjarnann og Stundina um að koma þýfinu í umferð. Til verknaðarins var fengin andlega veik kona. Áhangendur RSK-miðla hljóta að vera stoltir. 

Fjórir blaðamann eru sakborningar. Þóra Arnórsdóttir á RÚV, Þórður Snær Júlíusson á Kjarnanum Aðalsteinn Kjartansson, á Stundinni og Arnar Þór Ingólfsson á Kjarnanum. 

Siða-Sunnu og Helgu Völu verður ekki skotaskuld að fegra glæpinn enda þjónaði hann pólitískum tilgangi. Ekki er ólíklegt að fyrrum starfsmenn RSK-miðla, nú þingmenn, láti ljós sitt skína í umræðunni. Að ógleymdum þeim sem RÚV á hönk upp í bakið á. Fróðlegt verður að sjá hvaða þingmenn ganga fram fyrir skjöldu og réttlæta glæpi. 

Á heimasíðu alþingis heitir dagskrárliðurinn: ,,Sérstök umræða um rannsókn á Samherjamálinu og orðspor Íslands."

Málshefjandi er sjálfur með stórskaddað orðspor, dóm fyrir að brjóta siðareglur þingmanna. Þingmaðurinn líklegastur til að styðja Siða-Sunnu sá sig knúinn að leggja fram vottorð að vera ekki búðaþjófur.

Siðbrjótur og ekki-þjófur með vottorð láta sér annt um orðspor Íslands.  Bein útsending er kl. 11. Æruverðugir þingmenn sýna úr hverju þeir eru gerðir. Handhafar löggjafarvaldsins sem verja lögbrot eru sérstök tegund stjórnmálamanna sem vert er að leggja á minnið.

 


Þórður Snær og glæpur Páls skipstjóra

Síminn hringir hjá Páli skipstjóra Steingrímssyni 20. maí í fyrra kl. 14:56. Á línunni er Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans. Daginn eftir ætlar Þórður Snær að birta frétt upp úr stolnum síma skipstjórans. Samtalið er eftirfarandi:

Þórður Snær: Páll?

Páll: Það er hann.

Þórður Snær: Heill og sæll ég heiti Þórður Snær og er ritstjóri Kjarnans. Hvernig sæki ég að þér?

Páll: Bara ágætlega.

Þórður Snær: Þú kannast alveg við mig?

Páll: Jú, jú.

Þórður Snær: Ég ætlaði að segja að við... að okkur hafa borist talsvert magn gagna sem sýna fram á að greinarnar sem þú hefur verið að skrifa undanfarin ár séu unnar í samvinnu við launaða starfsmenn og ráðgjafa innan Samherja.

Páll: Okei.

Þórður Snær: Og vildi einfaldlega gefa þér tækifæri til að bregðast við þessu.

Páll: Þú hefur sem sagt þessi gögn undir höndum?

Þórður Snær: Já.

Páll: Glæsilegt að þú sért búinn að viðurkenna það.

Þórður Snær: Já.

Páll: Ég mun þá afhenda lögreglunni þessar upplýsingar. Þetta samtal er tekið upp. Þú verður spurður út í þetta af lögreglu.

Þórður ítrekar spurninguna um hvort skipstjórinn vilji bregðast við en Páll kveðst ekkert hafa að segja. Samtalinu er slitið. Það mælist rúmlega mínúta að lengd.

Sex dögum fyrir símtalið hafði Páll kært til lögreglu byrlun og símastuld. Skipstjórinn vissi ekki hverjir stæðu að baki atlögunni að sér fyrr en hann fékk símtalið. Verðlaunablaðamaðurinn afhjúpaði sjálfan sig.

Spurningin sem Þórður Snær leggur fyrir Pál, hvort hann hafi fengið aðstoð við að skrifa greinar, er efst í huga ritstjórans. Annars væri það ekki fyrsta og eina spurningin.

Höfuðsynd Páls skipstjóra var að fá aðstoð við að skrifa greinar í fjölmiðla. Fæstir myndu kenna athæfið við stórglæpi. Í meðförum Þórðar Snæs og félaga á Stundinni og RÚV, RSK-miðla, verður þessi fjöður að fimm hænum: skæruliðadeild Samherja. Af símtalinu að dæma væri nær að tala um ritvinnsludeild Samherja.

Til að gögnin kæmust í hendur Þórðar Snæs þurfti að byrla Páli skipstjóra, stela síma hans og afrita. Það eru alvarlegir glæpir, banatilræði, þjófnaður og brot á friðhelgi. Nokkuð langt seilst til að upplýsa hvernig skipstjóri ber sig að við greinarskrif.

Þórður Snær er sakborningur í lögreglurannsókn. Ekki Páll skipstjóri, sem varð fyrir árás á líf, heilsu og einkahagi til að fjölmiðlar mættu upplýsa hvernig stæði á ritstörfum hans.

Í huga ritstjórans er Páll aftur sekari en syndin. Þórður Snær á hinn bóginn maður mannréttinda og sannleikans ,,sem valdið vill kæla." 

Blaðamenn standa að baki líkamsárás og þjófnaði og verðlauna sjálfa sig fyrir verknaðinn. En kalla það ,,kælingu" er lögregla rannsakar glæpinn.

Kómedía mannlífsins gerist ekki svartari.

 


Skítugar sprengjur í hreinu stríði?

Ef kjarnorkusprengja, skítug eða ekki, verður sprengd í Úkraínu færist heimurinn nær ragnarökum. Eftir Híroshíma og Nagasaki í lok seinna stríðs er kjarnavopnum ekki beitt í stríðsátökum. Ein sprengja réttlætir aðra sem aftur kallar á þá þriðju. 

Eyðingarmáttur kjarnorku er slíkur að siðmenningunni stendur ógn af. Notkun þessara vopna fæli í sér meiri manngerðar hamfarir en nokkur sögulega dæmi eru um og gæti bókstaflega gert heiminn óbyggilegan.

Vísun í geislavirk vopn sem ,,skítugar sprengjur" gefur til kynna að stríðið á gresjum Garðaríkis sé hingað til í einhverjum skilningi ,,hreint". Því fer víðsfjarri. Fallnir og særðir eru líklega á skrifandi stundum milli 300 og 400 þúsund, mest ungir karlmenn. Akrar og innviðir ónýtast og milljónir flýja.

Sporin hræða. Stórstríðið sem hleypti öllu í bál og brand á öðrum áratug síðustu aldar hófst með ,,skítugu" morði á ríkiserfingja Austurríkis-Ungverjalands miðsumars 1914. Enginn ráðamaður stórríkjanna ætlaði að efna til fjögurra ára stríðs sem kostaði milljónir mannslífa og bjó í haginn fyrir grimmilega öfgahugmyndafræði er stefndi lóðbeint til seinna stríðs. Samt varð það niðurstaðan.

Sé haft í huga um hvað barist er þar eystra, öryggishagsmuni Rússlands annars vegar og hins vegar fullveldisrétt Úkraínu, er þyngra en tárum taki að siðmenningin sé ekki lengra komin en svo að blóðfórnir á iðnaðarskala þurfi til vegna ágreinings sem má leysa með samningum.

Orðræða um beitingu kjarnavopna í Úkraínu vekur vonandi nægan hroll með siðmenntuðum að friðarúrræði komist á dagskrá. Ellegar má örvænta um þetta skrítna fyrirbæri, mannkyn.


mbl.is „Skítug sprengja“ ekki á dagskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálslyndar öfgar

Giorgia Meloni er fyrsti kvenkyns forsætisráðherra Ítalíu. Hún mætti á litlum Fíat í embættistökuna. Meloni er umhugað um ítalskan iðnað, hún er kosin til að vinna í þágu ítölsku þjóðarinnar.

Nýr forsætisráðherra Ítalíu talar fyrir kristni, fjölskyldusamheldni og samfélagsgildum. Meloni gagnrýnir neysluhyggju og alþjóðlega forræðishyggju sem rænir þjóðir sjálfsvitund. 

Sú ítalska er sögð öfgamaður. Þeir sem helst gagnrýna hana fyrir öfga kenna sig við frjálslyndi og fjölbreytni.

Frjálslyndið og fjölbreytnin krefst skilyrðislausrar hlýðni við alþjóðavæðingu sem þolir hvorki kristni né fjölskylduna og hatast við samfélagsgildi. Þeir frjálslyndu og fjölbreyttu átta sig ekki á að án kjölfestu trúar, fjölskyldu og sameiginlegra gilda er úti um samfélagsfriðinn.

Í ófriði, eðli málsins samkvæmt, er fátt um fína drætti hvað áhrærir frjálslyndi og fjölbreytni. Ófriður býr til hatrammar fylkingar, ekki umburðarlyndi og skilning.

Vestrænt frjálslyndi á upptök sín í andófi gegn gerræði og forréttindum þeirra fáu á kostnað alþýðu manna. Nú um stundir er það einmitt gerræði, t.d. skoðanakúgun og útilokun, sem einkennir meint frjálslyndi. Forréttindastétt frjálslyndra skipa æðstuprestar nýsannleika sem trúa að kynin séu þrjú, fimm eða seytján og að loftslagið sé manngert.

Í nafni nýsannleikans skal almenningur fylkja liði frá raunheimi inn í alþjóðavæddan bábiljuheim þar sem ímyndanir eru teknar fram yfir skynveruleikann.

Meloni sagði nei, takk, sama og þegið. Fyrir það er hún stimplaður öfgamaður.


mbl.is Meloni formlega tekin við embætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband