Fimmtudagur, 26. maí 2022
Kissinger trompar Selenskí
Sókn Rússa þyngist í austurhéruðum Úkraínu. ,,Game over" fyrir Úkraínu ef þetta heldur áfram, segir bandarískur herforingi á CNN. Predikun Kissinger yfir alþjóðaelítunni Davos heggur í sama knérunn og nýlegur leiðari í New York Times: Úkraína verður að kaupa frið við Rússa með afsali á landi.
Biden-stjórnin óttast að Úkraína verði evrópskt Afganistan. Niðurlægjandi ósigur bandalagsríkis selur ekki vel í Bandaríkjunum. Það gæti riðið Demókrötum að fullu í þingkosningum í nóvember.
Eftir útspil Kissinger og kó eykst þeim ásmegin í Evrópu sem vilja koma í veg fyrir úkraínskættaða efnahagskreppu í álfunni. Þrýstingurinn á stjórnina í Kænugarði að biðja um samninga minnkar ekki á næstunni.
Meinið er að Selenskí forseti er ekki í stöðu að kaupa frið með landaafsali. Úkraína býr við óstöðugt stjórnarfar, síðast 2014 var þar stjórnarbylting, og eftirgjöf á landi gæti leitt til byltingarástands. Viðbrögð skrifstofu forsetans við hugmyndinni eru vart prenthæf.
Pólverjar ku hafa sent tvær herdeildir til Úkraínu en hlýtt er á milli Varsjár og Kænugarðs um þessar mundir. Pólverjar gera sér hugmyndir um að fá Galisíu, vesturhluta Úkraínu, sem einu sinni var pólskt land. Selenskí forseti sér möguleika að hermenn frá Nató-ríkinu Póllandi gætu leitt til frekari íhlutunar hernaðarbandalagsins. Langsótt og örvæntingarfullt.
Hvít-Rússar vita af ágirnd Pólverja á úkraínsku landi. Þeir gætu fengið áhuga að taka sér bita af norðurhluta Úkraínu þegar Selenskí forseti falbýður land nágrönnum í vestri. Hvít-Rússar eru í bandalagi við Rússa og fengju leyfi frá Moskvu, ef ekki hvatningu, að nema land með soldátum.
Úkraína gæti verið komin á brunaútsölu fyrr en varir.
![]() |
Segir Úkraínu eiga að afsala sér landsvæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 25. maí 2022
Útlendingar, vinstrimenn og helvíti
Útlendingar sameina íslenska vinstrimenn. Vinstrimenn fyrirlíta íslenska alþýðu, menningu hennar og lífsviðhorf. Mottóið er ,,allt er betra en íslenskt."
Andúðin liggur í erfðamenginu. Þjóðin afþakkar forræði vinstrimanna og hefur allaf gert. Flokkar þeirra skipta um nafn og kennitölu, ýmist fjölgar þeim eða fækkar, en alltaf segir almenningur nei, takk.
Aðeins einu sinni í Íslandssögunni fá vinstrimenn meirihluta, þegar þjóðin var hugstola eftir svokallað hrun. Á valdatíð Jóhönnustjórnarinnar lék allt á reiðiskjálfi. Stjórnarskráin var í uppnámi, fullveldinu var nærri fargað í þágu útlendinga í Brussel og fjármálakerfið var afhent útlendingum á silfurfati.
Vinstrimenn nenna ekki að bíða eftir næstu móðuharðindum til að komast yfir landsstjórnina. Þrautaráðið er að fylla landið útlendingum. Skipta um þjóð í landinu.
Vinstripresturinn Davíð Þór, spaugari á yngri árum og ritstjóri klámrits, tónar boðskapinn: þeir sem efast um ágæti yfirtölu útlendinga á Fróni fari beina leið til helvítis.
Kjöftugum ratast þar óviljandi satt orð í munn. Vinstrimönnum er helvíti hugstæðara en himnaríki. Gúlagið fremur en grænir hagar.
Amen.
![]() |
Orð Davíðs stangist á við siðareglur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 24. maí 2022
Einstæður leki - er landsrétti treystandi?
Engin fordæmi eru fyrir því að starfsmaður landsréttar leki trúnaðargögnum, staðfestir Gunnar Viðar skrifstofustjóri landsréttar í Fréttablaðinu. En einmitt það gerðist í vor þegar gögnum var lekið í RÚV, Stundina og Kjarnann, RSK-miðla. Gögnin varða lögreglurannsókn á byrlun og gagnastuldi þar sem fjórir blaðamenn RSK-miðla eru sakborningar.
Viðtakandi lekans var Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður sem óðara kom gögnunum til Þórðar Snæs Júlíussonar ritstjóra Kjarnans. Gunnar Ingi sýndi af sér hegðun sem illa samræmist starfsreglum lögmanna. En lögmaðurinn er þekktur fyrir að ásaka aðra um að brot á siðareglum.
Gunnar Viðar skrifstofustjóri landsréttar lætur að því liggja að lekinn hafi verið óviljandi ,,mistök." Sú afsökun er ótrúverðug. Gögnin voru viljandi og af yfirlögðu ráði send úr húsi landsréttar. Það er ekki eins og þau hafi verið fyrir mistök send á rangan stað. Einhver innan réttarins ákvað að brjóta af sér í starfi og senda trúnaðargögn til sakborninga í lögreglurannsókn á alvarlegum glæp.
Hvernig stendur á því að RSK-miðlar eru í þeirri stöðu að fá starfsmenn landsréttar til að brjóta af sér í starfi?
Landsréttur hlýtur að hefja rannsókn á málavöxtu og gera opinberlega grein fyrir trúnaðarbresti sem grefur undan trausti á réttarkerfinu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 23. maí 2022
Leki í landsrétti til RSK-miðla
Starfsmaður landsréttar lak gögnum til RÚV, Stundarinnar og Kjarnans, RSK-miðla, er lúta að lögreglurannsókn á byrlun Páls skipstjóra og stuldi á síma hans. Fjórir blaðamann RSK-miðla eru sakborningar í málinu.
Í viðtali við DV viðurkennir einn sakborninganna, Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans, að hafa fengið gögn landsréttar frá Gunnari Inga Jóhannssyni lögmanni Aðalsteins Kjartanssonar, blaðamanns Stundarinnar. Starfsmaður landsréttar gerði þau mistök þegar hann sendi Gunnari Inga gögnin að senda þau jafnframt á Eyþór Þorbergsson, varasaksóknari hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra. Þannig uppgötvaðist lekinn.
Þess gögn áttu aldrei að fara úr húsi landsréttar enda málsgöng vegna úrskurðar í máli Aðalsteins Kjartanssonar, sem vill ekki mæta í yfirheyrslu lögreglunnar frekar en hinir sakborningarnir.
Þórður Snær á Kjarnanum fær gögnin, sem sýnir nána samvinnu RSK-miðla, og leggur út af þeim með sínum hætti. Í gögnunum eru m.a. upplýsingar um vitnaleiðslur starfsmanna RSK-miðla, annarra en sakborninga. En Þórður Snær nefnir ekki þau nöfn, þótt það séu stórfréttir. Í DV má lesa:
Þórður segir að í gögnunum séu viðkvæmar og persónugreinanlegar upplýsingar sem ritstjórn Kjarnans hafi metið að ættu ekki erindi við almenning.
Það var og. Það á ekki ,,erindi við almenning" hvaða starfsmenn RSK-miðla eru vitni í málinu.
Eftir því sem fleiri nöfn kvisast út verður almenningi ljóst hversu víðtækt samsæri RSK-miðla var að byrla Páli skipstjóra og stela síma hans. Sú ljóta saga er ekki öll sögð enn.
Á meðan sakborningarnir á RÚV, Stundinni og Kjarnanum gera allt sem í þeirra valdi stendur til að komast hjá skýrslutöku situr málið fast. Blaðamenn RSK-miðla leika lausum hala og þykjast hæfir til að segja almenningi fréttir. Grunaðir glæpamenn auka ekki tiltrú á íslenskum fjölmiðlum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 22. maí 2022
Úkraína er þurfalingur - Rússa eða vesturlanda
Án aðstoðar frá vesturlöndum hefði Úkraína aldrei verið í standi til að berjast við Rússland. Með vestrænni aðstoð gátu Selenskí forseti og stjórnin í Kænugarði haldið aftur af rússneska innrásarliðinu um sinn. En tæplega mikið lengur.
Á austurvígstöðvunum hafa Rússar brotist í gegnum varnarlínu Úkraínumanna. Rússar tóku bæinn Popasna fyrir nokkrum dögum. Þaðan sækja þeir í vestur, austur og norður. Sóknin í norður gæti umkringt stóran hluta Úkraínuhers.
Rússar eru sigurvissir þessa dagana. Selenskí biður um viðræður, sem er veikleikamerki. Til skamms tíma bönnuðu vestrænir bakhjarlar stjórnarinnar í Kænugarði viðræður við Rússa. Þrjár ástæður gætu leitt til breyttra viðhorfa á vesturlöndum.
Í fyrsta lagi er sókn Rússa jöfn og stöðug þótt ekki sé hún hröð. Meiri líkur en minni eru að Úkraínuher tapi á austurvígstöðvum. Ef tapið verður stórt gætu flóðgáttir opnast. Ef Úkraínuher tekst sæmilega til með skipulegt undanhald Donbass-hernum bjargað en héröðin sjálf yrðu rússnesk.
Í öðru lagi bíta viðskiptaþvinganir ekki á Rússa sem skyldi. Þeir selja eftir sem áður gas og olíu austur og vestur, rúblan er stöðug og fá merki um að yfirvofandi sé efnahagsleg upplausn.
Í þriðja lagi er fyrirsjáanlegur skortur á korni á heimsmarkaði. Úkraína er brauðkarfa Evrópu en fátt kemur þaðan af hrávöru í stríðsástandi. Afleiðingar eru dýrtíð í Evrópu og möguleg hungursneyð í Afríku.
Ef vesturlönd telja úkraínskan ósigur fyrirsjáanlegan gætu þau leyft friðarviðræður. En þá færu í hönd óvissutímar í innanlandspólitík Úkraínu. Stjórn Selenskí gæti riðað til falls ef hún viðurkennir yfirráð Rússa yfir Donbass í austri og Kherson-héraðinu norðan Krímskaga. Það yrðu lágmarkskröfur Rússa.
Efnahagur Úkraínu er illa farinn. Niðurlægjandi friðarsamningar ofan á harða efnahagskreppu er uppskrift að langvinnum óstöðugleika ef ekki samfélagslegri upplausn.
Veðmálið um að þrátefli á vígvelli gæti leitt til samninga í anda jafnræðis er tapað. Báðir aðilar hafa fórnað of miklu til að sættast á jafntefli. Úrslit þarf að knýja fram þar sem annar stendur uppi sem sigurvegari.
Í stuttu máli: vesturlönd yrðu að fjármagna væntanlega friðarsamninga til að halda Selenskí-stjórninni við völd. Það myndi kosta óheyrilegar fjárhæðir og e.t.v. loforð um að taka afganginn af Úkraínu inn í Evrópusambandi - sem mörgum í Vestur-Evrópu er þvert um geð. Það yrði stór biti að kyngja fyrir ESB að taka inn ríki með lamað stjórnkerfi er telst varla þykjustulýðræði hvað þá meira.
Ef vesturlönd heykjast á verkefninu yrðu Rússar meira en tilbúnir að sjá um útfærslu friðarsamninga. Úkraína væri þar með hjálenda Rússlands.
Fyrirséð er að Úkraína verði þurfalingur á annarra framfæri til lengri tíma. Tap í stríði, kennir sagan, skilur eftir ónýtt stjórnkerfi stríðsaðila sem veðjaði á sigur. Engar líkur eru á óbreyttu ástandi í Kænugarði eftir frið við Rússa.
![]() |
Selenskí segir stríðið ekki enda nema með viðræðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 21. maí 2022
Eliza forsetafrú í hæpnum félagsskap
Nokkrir vinstrimenn, sumir ritfærir á íslensku, kynna orðið kynþáttmörkun sem þýðingu á enska heitinu ,,racial profiling." Vinstrimenn hafa átt erfitt með að heimfæra rasisma á íslensku lögregluna og vantaði orð fyrir smjörklípuna. Nú er það komið: kynþáttamörkun.
Þeir sem efast um tilgang vinstrimannanna, forsetafrúin er þar á meðal, ættu að fletta upp á skilgreiningu bandarísku samtakanna ACLU sem láta að sér kveða í hatrinu gegn siðuðu samfélagi:
"Racial Profiling" refers to the discriminatory practice by law enforcement officials of targeting individuals for suspicion of crime based on the individuals race, ethnicity, religion or national origin.
Orðið kynþáttamörkun er á yfirborðinu hlutlaust. En það er með innbyggða fordóma, að lögreglan sé rasísk.
Aðferð vinstrimanna er að búa til orð yfir fyrirbæri sem lítið er um, eða jafnvel alls ekki til. Ef orðið nær flugi, fær viðurkenningu, er óðara litið svo á fyrirbærið sem orðið vísar til sé raunverulegt og jafnvel krefjandi samfélagsvandi. Til þess er leikurinn gerður, að fá fólk til að trúa að það búi i skelfilegu samfélagi.
Eliza forsetafrú er í félagsskap sem nýyrðir fordóma gegn löggæslunni á Íslandi. Það má hugsa sér smekklegri aðkomu að íslensku samfélagi.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 20. maí 2022
Sálfræðihernaður í Úkraínu
Ruglingur á Írak og Úkraínu hjá George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, í áróðursræðu fyrir stjórnina í Kænugarði er neðanmálsgrein í sálfræðihernaðinum í Úkraínustríðinu.
Sálfræðistríðið fer fram fyrir opnum tjöldum í fjölmiðlum og fyrir hálfri gátt á samfélagsmiðlum. Í bakherbergjum er plottað og spunnið. Því er slakað út sem talið er að bitið verði á. Svo er slúðrað maður á mann.
Eins og í raunstríðinu á jörðu niðri og í lofthelginni yfir Garðaríki stendur yfir seinni hálfleikur í sálfræðihernaðinum. Í fyrri hálfleik vegnaði stjórninni í Kænugarði vel með Selenskí forseta sem fyrirliða.
Víxlverkun er á milli raunstríðs og sálfræðihernaðar. Til skamms tíma helst baráttuvilji á vígvellinum í krafti yfirþyrmandi velvildar alþjóðar. Litlir sigrar eru gerðir stórir, t.d. brotthvarf Rússa frá úthverfum Kænugarðs og úkraínska sóknin síðustu tíu daga norður af Karkif.
Meginherir Rússa og Úkraínumanna etja kappi í austurhéruðum, Donbass. Þaðan er fátt gott að frétta fyrir Kænugarð. Skipulegt undanhald er herfræði Úkraínuhers þar eystra. Ef ekki er haldið vel á spilum gæti framvindan orðið óskipulagðar hrakfarir.
Meðfram betri stöðu á vígvellinum auka Rússar við sálfræðihernaðinn. Þeir túlkuðu umsóknir Finnlands og Svíþjóðar um Nató-aðild sem fyrsta skref vesturlanda frá Úkraínu. Í gær birti rússneska fréttaveitan RT frásögn af reglulegum samtölum bandarískra og rússneskra herforingja. Yfirbragð fréttarinnar er að dagskráin sé staðan eftir Úkraínustríðið. Nærtæk ályktun er að handverksmenn í stríðsfaginu sjái leikslokin fyrir. Í sama knérunn hjó bandaríski varnarmálaráðherrann fyrir nokkrum dögum þegar hann fór fram á vopnahlé. Á sigurbraut biðja menn ekki um leikhlé.
Uppgjöfinni í Asovstálsmiðjunni er fylgt eftir með fréttum að úkraínskir hermenn leggi niður vopn í Donbass. Á eru floti kenningar um að úkraínska herstjórnin sé þreytt á afskiptum Selenskí forseta og ráðgjafa hans. Misklíð á æðstu stöðum fóðrar vonleysi.
Stríð vinnast og tapast á vígvellinum. En baráttuþrek á vettvangi ræðst af tiltrú. Þegar saman fara ósigrar í vopnaviðskiptum og sálfræðihernaði er stríðstaugin þanin til hins ítrasta.
![]() |
Sagði innrásina í Írak tilefnislausa og grimma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 19. maí 2022
Blaðamenn sameinast um óheiðarleika
Lygari til leigu, sögðu blaðamenn hér áður um almannatengla. Á þeim tíma var faglegur metnaður blaðamanna að segja fréttir byggðar á staðreyndum og traustum heimildum. Almannatenglar voru í hinu liðinu; drógu fjöður yfir sannleikann og sögðu ekki nema hálfa söguna.
Nú er öldin önnur. Blaðamenn verðlauna glæpi. Tilgangur glæpanna er að hanna frásögn í þágu hagsmuna. Sannindi eru aukaatriði, pólitísk málafylgja aðalatriði. Blaðamenn eru á flótta undan réttvísinni, neita að mæta til yfirheyrslu hjá lögreglunni sem rannsakar sakamál þar sem a.m.k 4 blaðamenn eru sakborningar.
,,Blaða- og fréttamenn þurfa að þétta raðirnar og standa saman gegn þeim ógnum sem steðja að stéttinni," segir annar tveggja formanna í blaðamannafélögum sem nú sameinast.
Það á að þétta raðirnar um óheiðarleika og lögbrot. Blaðamenn standi saman gegn réttarríkinu.
Ekki einu sinni almannatenglum dytti í hug lífslygin sem blaðamenn hafa gert að sinni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 18. maí 2022
Uppgjöf kynnt sem björgun
Uppgjöf úkraínska hersins á Asovstal við Maríupól er sálrænt fremur en hernaðarlegt áfall. Borgin var þegar komin í hendur Rússa, stálverksmiðjan í útjaðrinum skipti litlu hernaðarlega en hafði þeim mun meira áróðursgildi.
Skilaboð stjórnarinnar í Kænugarði þartil fyrir skemmstu voru að herinn í Asovstal ætti að berjast til síðasta manns. Goðsagan um 300 Spartverja var heimfærð upp á úkraínsku stálin stinn í hafnarborginni.
Baráttuandi er ómælanlegur þáttur í stríðsrekstri en skiptir höfuðmáli, einkum þegar á bjátar. Og það hallar á úkraínska herinn í Donbass.
Til að bjarga andlitinu er uppgjöfin í Maríupól kynnt sem björgun. Úkraínsku hermennirnir eru fangar Rússa og halda lífi. Það er nokkurs konar björgun. Tvennum sögum fer af ástæðum ,,björgunarinnar." Ein er að úkraínsku hermennirnir hafi ákveðið að forða eigin skinni, þvert á beinar skipanir að berjast til síðasta manns. Í framhaldi kúventi stjórnin í Kænugarði og gaf skipun um að leggja niður vopn.
Uppgjöf blæs ekki baráttuanda í brjóst. Þvert á móti. Er hetjurnar í Asovstal gefast upp gæti einhverjum undir linnulausri stórskotahríð Rússa í Donbass dottið eitthvað svipað í hug.
Donbass er, þrátt fyrir allt, að mestu byggð Rússum. Ýmsum í vesturhluta Úkraínu kann að þykja óþarft að fórna lífi og limum fyrir landssvæði sem aðeins að forminu til er úkraínskt.
Pólitíska atburðarásin tekur mið af síversnandi stöðu á vígvellinum. Bandaríkin og Nató ætla að taka við Svíþjóð og Finnlandi og kalla það sinn sigur og ósigur Rússa. Eftir uppgjöf í Úkraínu þurfa Washington og Brussel líka að bjarga andlitinu.
![]() |
Koma síðustu hermönnunum frá Asovstal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 17. maí 2022
Hatrið á hvítri móður
Guðríður Þorbjarnardóttir átti sveininn Snorra í vesturheimi á 11. öld, samkvæmt arfsögn sem rataði í bækur. Guðríður varð stytta í höndum Ásmundar Sveinssonar og fékk heitið Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku.
Nýverið var styttunni stolið undir þeim formerkjum að hún væri rasísk og komið fyrir í öðru verki. Gjörningurinn er í takt við samtímakenningu, fræðilega kynþáttahyggju (critical race theory), er kennir að allir hvítir á hörund séu rasistar.
Í gær fór styttan af Guðríði til síns heima. Sama dag sagði í fréttum að frá 2014 hefur 14 sinnum verið ákært fyrir hatursorðræðu. Ekki er hermt hvort ákært hafi verið fyrir hatur á hvítum mæðrum. Sennilega ekki, þær eru jú allar rasistar samkvæmt kenningunni og njóta sem slíkar ekki verndar gegn ,,háðung, rógburði, smánun eða ógnun."
![]() |
Fyrsta hvíta móðirin ekki lengur í eldflauginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)