Gestabók

Skrifa í Gestabók

  • Skráðir notendur gefi upp notandanafn og lykilorð efst á síðunni og skrifi svo færslu í reitinn hér að neðan. Gestabókarfærslan birtist strax.
  • Óskráðir notendur geta einnig skrifað færslu. Athugasemdir þeirra birtast strax og ekki þarf að staðfesta uppgefið netfang.

Gestir:

öfugmæli dagsins

Í þýska sjónvarpinu er haft eftir Össuri,að Ísland fagni ákvörðun ESB um aðildarviðræður!!

Ólafur Stefánsson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 24. feb. 2010

öfugmæli dagsins

Í þýska sjónvarpinu er haft eftir Össuri,að Ísland fagni ákörðun ESB um aðildarviðræður !!

Ólafur Stefánsson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 24. feb. 2010

Endurgreiðsla ríkisbanka á framboðsstyrkjum Hrunhöfðingjafjölskyldunnar.

Viðskipti | mbl.is | 8.10.2009 | 12:55 Hagar semja við banka um endurfjármögnun hafa undirritað drög að samkomulagi við Nýja Kaupþing banka og NBI um endurfjármögnun félagsins með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki lánanefnda bankanna. Fjármögnunin mun tryggja að Hagar greiði skuldabréfaflokk félagsins á gjalddaga hans 19. október 2009. Í fyrradag var ákveðið á aðalfundi Húsasmiðjunnar hf. að að færa hlutafé hennar niður í núll. Bókfært verðmæti hlutafjárins hjá Högum hefur verið afskrifað. Að forsvarsmanna Haga hefur afskriftin engin áhrif á endurgreiðsluhæfni félagsins á skráðum skuldabréfaflokki Haga, samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar. Svona verðlaunar vinstri gagnsæja ríkisstjórnin með óflokksbunda og ópólitíska viðskiptaráðherra Jón Ásgeir & Co. Nú verður að stoppa þessa ósvinnu, burt með fjölskylduna alla úr íslensku viðskiptalífi.

Guðm. R. Ingvason (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 8. okt. 2009

Sigmar Þormar

Gott Páll; Meira um Jón Baldvin

Áfram með þín skrif. Ég vil bæta við um Jón Baldvin að þegar hann var ráðherra réðst hann með krafti og klóm á alla viðleitni til við að byggja upp samstarf Íslendinga á ýmsum sviðum við Kanada (sem ég og fleiri unnum að). Passaði ekki inn í ESB hugmyndafræði hans sem þú lýsir svo vel.

Sigmar Þormar, mán. 10. ágú. 2009

Vestarr Lúðvíksson

sammála þér Páll

þetta er afar ógeðfellt allt saman ! það þarf sennilega "blóðuga" byltingu - til að hlutirnir komist upp á borðið, svo hægt verður að hreinsa til !

Vestarr Lúðvíksson, mán. 3. ágú. 2009

Síðasti naglinn í líkkistu Icesave

Heill og sæll Páll, vel skrifað og vel sagt frá á þínu bloggi, þú ert málefnalegur og vel hugsandi maður,til hamingju, Tómas J. Knútsson

Tómas J. Knútsson (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 1. ágú. 2009

Einar Sveinn Hálfdánarson

Sleggjudómar

Hvers lags sleggjudómar eru þetta eiginlega? Að atkvæði greitt Sjálfstæðisflokknum sé með spillingu? Ertu að tala um flokkinn sem kom í veg fyrir sölu Orkuveitunnar? - Viðtaka fjár kortéri áður en það var bannað samkvæmt lögum var auðvitað jafnámælisverð ári áður. Hafði Sjálfstæðisflokkurinn úr meiru fé að spila, hlutfallslega, en aðrir flokkar? (Að sjálfsögðu verður að miða við stærð flokka; Frjálslyndir þurfa minna en Samfylking í sinn rekstur). Hverning stendur á að eingöngu hafa komið fram upplýsingar um styrki til eins flokks, sé sú tilgáta rétt að Samfylking og frambjóðendur þar hafi haft hlutfallslega meira fé milli handanna en Sjálfstæðisflokkurinn? Einar S. Hálfdánarson

Einar Sveinn Hálfdánarson, sun. 12. apr. 2009

Hver er bjargvætturinn?

Davíð sýndi okkur í Kastjósinu að "verkstjónin" í sandkassanum við Austuvöll er runnin út í sandinn. Dýrmætur björgunartími farinn til spillis við að svala hatri Jóhönnu á Davíð ... þetta er að verða nokkuð dýrt skemmtiatiði finnst mér og lélegt...

Vilhjálmur Grímsson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 25. feb. 2009

sammála

loksins braut einhver þagnarmúrinn þetta hafa menn bent á baugsmiðlar lúta einni stjórn saga útvarp og allir sem hafa þegið hjálp dýrlinganna verða að fylgja línunni.

þórir gíslason (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 15. des. 2008

Hárrétt !

Saell Páll; nákvaemlega thetta er skodun fjölmidla ( FAZ , DER SPIEGEL & fl. ) hérlendis á örsökum vandans á Fróni; Medaumkvun útlendinga med okkur er af skiljanlegum ástaedum takmörkud, medan sömu mennirnir sem sigldu thjódarskútunni í strand, - Davíd Oddsson , Geir Haarde & Co. -, sitja enn vid stjórnvölinn. Thví midur virdast Íslendingar ekki hafa áttad sig á thessu samhengi og kenna thess í stad illum öflum í útlandinu um ófarirnar.

Orri Olaf Magnússon (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 8. nóv. 2008

Hárrétt !

Saell Páll, nákvaemlega thetta er skodun fjölmidla hérlendis ( Frakfurter Allgemeine Zeitung, DER SPIEGEL & fl. ) á orsökum vandans á Fróni; Medaumkvun útlendinga med okkur er skiljanlega takmörkud thegar sömu menninnnir, sem sigldu skútunni í strand, Davíd Oddsson , Geir Haarde & Co. fá ad vera áfram vid stjórnvölinn . Thví midur virdast Íslendingar ekki hafa áttad sig á thessu samhengi & kenna illum öflum í útlandinu um ófarirnar.

Orri Olaf Magnússon (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 8. nóv. 2008

Jón Valur Jensson

Áfram með smjörið, Páll

Páll, þetta gengur ekki, að hætta bara að skrifa. Þín er þörf í vegvilltu ESB-umræðuna. Láttu til þín sjást og heyrast, kæri félagi.

Jón Valur Jensson, fös. 2. maí 2008

Farðu að blogga piltur

Ég sakna þess að geta ekki lesið bloggið þitt á morgnana.

Ragnheiður (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 26. nóv. 2007

öryrki

Alveg er ég sammála því sem þú skrifar um ellilífeyrisþega öryrkja.Þar má margt laga eins og allir vita.En það gerist bara ekkert til bóta.Takk fyrir

Guðrún Hilmarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 26. sept. 2007

Ragnar J. Jónsson

Álver og fólk

Nú hafa grænu karlarnir yfirgefið mörlandann og nú vilja VG og taglhnýtinga (S og F) losa okkur við "gráa" fólkið sem vinnur við álverið í straumsvík. Er þessu liði alveg sama um fólkið se, vinnur í álverinu þar sem því líkar vel og er á bestu launum sem verkafólki býðst á Íslandi. Er ef til vill um öfund að ræða og /eða illvilja? Hugsar enginn um starfsfólkið???

Ragnar J. Jónsson, sun. 1. apr. 2007

Láttu þér nægja að tala við sjálfan þig

Þeir sem smíða kenningar án þess að hafa nokkuð í höndunum ættu að láta sér nægja að tala við sjálfa sig. Þriðja kenningin er eins og aðrar kenningar, hugarsmíð eða hugarleikfimi.

Ríkarður (Óskráður), mið. 7. mars 2007

Fresli

oh no vín í hagkaupum hvað næst ? sjónvarp í júlí

Thor Gislason (Óskráður), fös. 2. mars 2007

Kennara"frí" á starfsdögum

Ágæti blaðamaður! Hefðir þú gefið þér tíma til að skoða málið hefðir þú án efa fengið upplýsingar um það að endurmenntun fer ekki fram á starfsdögum - yfirleitt er um að ræða samstarf eða að kennurunum gefst tími til að sinna annarri tímafrekri vinnu sem erfitt er að sinna "í bútum" eftir að kennslu líkur. Endurmenntun kennara á vetrum fer fram í formi námskeiða eða formlegs náms fyrir utan skilgreindan starfstíma. Kveðja Ásta Björk - grunnskólakennari

Ásta Björk Björnsdóttir (Óskráður), þri. 20. feb. 2007

Þetta er nú meira bullið

Fólk ætti ekki að tjá sig um hluti sem það veit ekki neitt um. Þá á ég við umfjöllun þína um kennara. Ég er kennari og ég sé að þú hefur ekki hundsvit á því sem þú varst að skrifa um.

Guðrún Magnúsdóttir (Óskráður), þri. 20. feb. 2007

Ingibjörg Elsa Björnsdóttir

Landfyllingavitleysa

Gæti ekki verið meira sammála þér varðandi landfyllingarnar. Í ljósi nýjustu skýrslu IPCC eru þær algjört rugl.

Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, sun. 4. feb. 2007

Kosningar

Takk fyrir góða pistla! Eitt kosningamál til viðbótar fyrir vorið: Umbætur fyrir gamla fólkið og öryrkjana. Til stendur, sýnist mér, að fallkandídatar úr ýmsun áttum sjái sér leik á borði og bjóði fram...

V. Grimsson (Óskráður), þri. 2. jan. 2007

Rannsóknarblaðamennskan!!

Sæll Páll, Gott innlegg hjá þér. Það er nauðsynlegt að narta í þetta fólk, ef fólks skyldi kalla eða er það etv. ekki alveg mennskt. Mér skilst að "maðurinn með hattinn" þoli mjög illa þegar gefið er í skyn að hann sé ekki alveg sjálfstæður og undir aðra (Baugs)kominn. Minnimáttarkennd "stjórans" ráði samt oft för í skrifunum. Góð kveðja, Kjartan Magnússon

Kjartan Magnússon (Óskráður), fim. 21. des. 2006

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband